Stórir hagsmunaðilar í landbúnaði vilja stöðva afnám kvótakerfis í mjólkuriðnaði

For­svars­menn í Fram­sókn­ar­flokknum hafa ólík sjón­ar­mið um breyt­ingar á kvóta­kerf­inu í mjólkur­iðn­aði. Sigurður Ingi Jóhanns­son hefur talað fyrir breyt­ingum en Ásmundur Einar Daðason og Guðni Ágústs­son gegn. Kerfið kostar íslenska neyt­endur átta millj­örðum krónum meira á ári en ef mjólkin væri inn­flutt. Nýir búvöru­samn­ingar eru nú ræddir á vegum land­bún­að­ar­ráðu­neyt­is­ins og hefur Ragnar Árnason hag­fræði­pró­fessor verið feng­inn til að meta áhrifin af breyt­ing­unum á kvóta­kerf­inu.

Ólík sjónarmið
Ólík sjón­ar­mið Sigurður Ingi Jóhanns­son land­bún­að­ar­ráð­herra hefur talað fyrir breyt­ingum á kvóta­kerf­inu í mjólkur­iðn­aði á Íslandi á meðan Ásmundur Einar Daðason, sem sjálfur hefur staðið fyrir upp­kaupum á kúa­búum ásamt föður sínum, hefur talað gegn slíkum breyt­ingum í óform­legum sam­tölum. Mynd: Pressphotos.biz/Geirix (Ásgeir Ásgeirsson)

Ragnar Árnason, pró­fessor í hag­fræði við Háskóla Íslands og einn af for­víg­is­mönnum íslenska kvóta­kerf­is­ins, vinnur nú að útreikn­ingum á áhrifum á afnámi á kvóta í mjólkur­iðn­aði fyrir ótil­greindan verk­kaupa sem er stór hags­mun­að­ili í grein­inni. Ragnar stað­festir í sam­tali við Stundina að beiðni um vinnu við síka útreikn­inga hafi komið til sín. „Þetta mál var nefnt við mig bara fyrir fáum dögum. […] Það er hins vegar engar nið­ur­stöður og engin athugun farið fram eins og er. […] Vonandi verður ein­hver nið­ur­staða í þessu ein­hvern tím­ann. Ef þetta væri verk þá myndi vera verk­kaupi og hann myndi kynna málið.“  Ragnar vill ekki gefa upp hver verk­kaup­inn er. „Ég held ég fari ekk­ert að upp­lýsa það neitt frekar.“ Stærstu ein­stöku hags­mun­að­ilar í mjólkur­iðn­aði á Íslandi eru Mjólk­ur­sam­salan (MS) og Kaup­fé­lag Skag­firð­inga (KS) sem er stór hlut­hafi í MS.

Egill Sig­urðs­son, stjórn­ar­for­maður MS og Auðhumlu, stærsta hlut­hafa MS, segir að MS komi ekk­ert að því að kaupa þessa vinnu af Ragnari Árnasyni. Han hafði sam­band við Stundina sér­stak­lega til að koma þessu á fram­færi.  Stundin hefur heim­ildir fyrir því að verk­kaup­inn sé Kaup­fé­lag Skag­firð­inga. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Búvörusamningar

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár