Segir fjármálaregluna fela í sér lögfestingu hægrisinnaðrar efnahagsstefnu

Nýsam­þykkt lög um opin­ber fjár­mál tak­marka svig­rúm fjár­veit­ing­ar­valds­ins til að reka rík­is­sjóð með halla. „Stærstu og mik­il­væg­ustu lög“ haust­þings­ins, segir Guð­laugur Þór.

Segir fjármálaregluna fela í sér lögfestingu hægrisinnaðrar efnahagsstefnu
Hægrisinnuð efna­hags­stefna lög­fest Katrín Jak­obs­dóttir, for­maður Vinstri grænna, vís­aði sér­stak­lega til fjár­mála­regl­unnar þegar hún gerði grein fyrir atkvæði sínu um helg­ina. Sagði hún að með því að sam­þykkja frum­varpið væri Alþingi í raun að lög­festa hægri­s­inn­aða efna­hags­stefnu. Mynd: Pressphotos

Heild­ar­lög um opin­ber fjár­mál voru sam­þykkt á Alþingi á laug­ar­dag með 46 atkvæðum. Einungis þing­menn Vinstri grænna greiddu atkvæði gegn frum­varp­inu, en að sögn Guðlaugs Þórs Þórð­ar­sonar, vara­for­manns fjár­laga­nefndar, eru þetta „stærstu og mik­il­væg­ustu lög“ þessa haust­þings. Með lög­unum er svig­rúm fjár­veit­ing­ar­valds­ins til að reka rík­is­sjóð með halla tak­markað all­veru­lega. Stundin fjall­aði ítar­lega um þennan þátt frum­varps­ins, svo­nefnda fjár­mála­reglu, í sumar og ræddi við tvo hag­fræð­inga sem leist ekki á blik­una.

Samkvæmt 7. gr. lag­anna verða mark­mið fjár­mála­stefnu og fjár­mála­á­ætl­unar um afkomu og efna­hag hins opin­bera að sam­ræm­ast þremur skil­yrðum. Í fysta lagi þarf heild­ar­jöfn­uður yfir fimm ára tíma­bil alltaf að vera jákvæður og árlegur halli alltaf að vera undir 2,5 pró­sentum af lands­fram­leiðslu. Í öðru lagi þurfa heild­ar­skuldir, að frá­töldum líf­eyr­is­skuld­bind­ingum og við­skipta­skuldum og að frá­dregnum sjóðum og bankainn­stæðum, að vera lægri en nemur 30 pró­sentum af vergri lands­fram­leiðslu. Í þriðja lagi er kveðið á um að ef skulda­hlut­fall fari yfir 30 pró­sent skuli sá hluti sem umfram er lækka að með­al­tali á hverju þriggja ára tíma­bili um að minnsta kosti 5 pró­sent á hverju ári.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Ríkisfjármál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár