Átta spurningar til Sigríðar Bjarkar

Lög­reglu­stjóri og inn­an­rík­is­ráð­herra ósam­mála úrskurði Per­sónu­verndar

Átta spurningar til Sigríðar Bjarkar

Sigríður Björk Guð­jóns­dóttir, lög­reglu­stjóri á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, hefur enn ekki svarað beiðni Stund­ar­innar um að veita við­tal vegna úrskurðar Per­sónu­verndar. Per­sónu­vernd telur að Sigríður hafi, sem lög­reglu­stjóri á Suð­ur­nesjum, brotið lög um per­sónu­vernd og miðlun per­sónu­upp­lýs­inga, en bæði Sigríður og Ólöf Nordal inn­an­rík­is­ráð­herra eru ósam­mála þeirri nið­ur­stöðu. Stundin sendi lög­reglu­stjór­anum eft­ir­far­andi spurn­ingar:

1. Hvers vegna upp­lý­st­irðu ekki lög­regl­una á höf­uð­borg­ar­svæð­inu um sam­skipti þín við Gísla Frey Val­dórs­son meðan rann­sókn leka­máls­ins stóð yfir og Gísli hafði rétt­ar­stöðu grun­aðs manns?

2. Per­sónu­vernd telur verk­lag þitt hafa farið í bága við 11. og 12. grein laga um per­sónu­vernd og með­ferð per­sónu­upp­lýs­inga. Í við­tali við RÚV á dög­unum sagðir þú hins vegar: „Nei, ég tel ekki að ég hafi brotið lög“. Telur þú að Per­sónu­vernd hafi rangt fyrir sér, og ef svo er, hvers vegna?

3. Í yfir­lýs­ingu sem þú sendir frá þér á föstu­dag seg­ist þú sem send­andi hvorki hafa getað „vitað né tryggt” að við­hlít­andi heim­ild væri fyrir hendi þegar þú sendir Gísla Frey skýrslu­drög um mál­efni Tony Omos. Samkvæmt úrskurði Per­sónu­verndar var hins vegar lög­reglan á Suð­ur­nesjum „ábyrgð­ar­að­ili að þeirri vinnslu per­sónu­upp­lýs­inga sem fólst í miðl­un­inni” og sem lög­reglu­stjóri bar þér að tryggja að miðl­unin sam­rýmd­ist per­sónu­vernd­ar­lögum. Telur þú að Per­sónu­vernd hafi rangt fyrir sér um þetta? Hvar telur þú að ábyrgðin liggi, ef hún lá ekki hjá þér?

4. Hvers vegna gafstu Per­sónu­vernd ekki nákvæmar upp­lýs­ingar um hvenær þú sendir Gísla Frey skýrslu­drögin um mál­efni Tony Omos?

5. Málsvörn þín und­an­farna daga hefur byggt á því að þú hafir ekki vitað að í miðlun per­sónu­upp­lýs­ing­anna hafi falist lög­brot. Verður tekið til­lit til sam­bæri­legra sjón­ar­miða við með­ferð mála sem eru til rann­sóknar hjá lög­regl­unni á höf­uð­borg­ar­svæð­inu í fram­tíð­inni?

6. Í til­kynn­ingu sem þú sendir frá þér þann 18. nóv­em­ber síð­ast­lið­inn sagð­ist þú hafa hringt í Gísla að morgni 20. nóv­em­ber árið 2013 „til að svara skila­boðum.“ Gísli neit­aði þessu hins vegar í sam­tali við frétta­stofu RÚV sama dag, og sagð­ist ekki hafa skilið eftir nein skila­boð til þín. Voru þau skila­boð sem þú varst að svara ekki frá Gísla komin, og ef svo er, frá hverjum voru þau?

7. Í við­tali við RÚV fyrir jól sagðir þú orð­rétt: „Ég er með átján ára flekklausan feril. Þið eruð að draga mig niður, ég hef ekk­ert gert”. Telur þú að frétta­flutn­ingur af sam­skiptum ykkar Gísla Freys hafi verið til­efn­is­laus og ein­göngu til þess fall­inn að draga þig niður?

8. Óttast þú ekki að áfram­hald­andi seta þín sem lög­reglu­stjóri skaði trú­verð­ug­leika og traust lands­manna til emb­ættis lög­regl­unnar á höf­uð­borg­ar­svæð­inu?

Tengt efni
Frá­sögnum Gísla Freys og Sigríðar ber ekki saman
Inn­an­rík­is­ráð­herra styður lög­reglu­stjóra eftir lög­brot
Lög­reglu­stjóri ósam­mála Per­sónu­vernd
Villandi ummæli í til­kynn­ingu Sigríðar Bjarkar

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Lekamálið

Mest lesið

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Spurningaþraut Illuga: Noregskonungar, viskugyðjur og eitt fjall
6
Þrautir

Spurn­inga­þraut Illuga: Nor­egs­kon­ungar, visku­gyðjur og eitt fjall

Hver var Nor­egs­kon­ungur þá Íslend­ingar gengu Norð­mönnum á hönd – að minnsta kosti sam­kvæmt hefð­bund­inni sögu­skoðun? Hvað heitir sú kona í Banda­ríkj­unum sem var fyrir rétti sökuð um að myrða börn sín þrjú? Ann­að­hvort skírnar- eða eft­ir­nafn dugar. Árið 1975 var Jónas Krist­jáns­son rek­inn sem rit­stjóri Vísis og stofn­aði þá ásamt sam­starfs­fólki nýtt dag­blað. Hvað nefnd­ist það? Hvað heitir nýorðin...

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Ástleysið er sárt
3
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.
Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
6
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár