Skora á forsetann að vísa makrílfrumvarpi til þjóðarinnar

Und­ir­skrift­ar­söfnun hafin gegn frum­varpi sjáv­ar­út­vegs­ráð­herra um úthlutun mak­ríl­kvóta. Frum­varpið felur í sér þá breyt­ingu að kvóta er úthlutað til sex ára í senn. „Þjóðin er hlunn­farin um tugi millj­arða árlega.“

Skora á forsetann að vísa makrílfrumvarpi til þjóðarinnar

Und­ir­skrift­ar­söfnun hefur verið sett af stað þar sem for­seti Íslands er hvattur til að vísa vænt­an­legum lögum um úthlutun mak­ríl­kvóta til þjóð­ar­innar.

Sigurður Ingi Jóhanns­son hefur lagt fram frum­varp á Alþingi þar sem ráð­gert er að úthluta afla­hlut­deildum til sex ára, sam­kvæmt afla­hlut­deild skipa á árunum 2011-2014. Í frum­varp­inu segir meðal ann­ars að óheim­ilt sé að fella afla­hlut­deild úr gildi, að hluta eða öllu leyti, með minna en sex ára fyr­ir­vara. Sex ára gild­is­tími afla­hlut­deilda fram­leng­ist síðan sjálf­krafa um eitt ár í senn hafi þessi ákvæði ekki verið breytt fyrir 1. jan­úar ár hvert. Þá verður heim­ilt að flytja kvóta til á milli skipa innan sömu útgerðar. Um gríð­ar­lega hags­muni er að ræða, enda hafa tekjur útgerð­ar­fé­laga vegna mak­ríls verið um og yfir 20 millj­arðar króna á ári und­an­farin ár.

„Verði frum­varpið að lögum er útgerð­inni í fyrsta sinn veitt óaft­ur­kall­an­legt for­ræði yfir afla­heim­ildum til lengri tíma en eins árs.“

Þessu mót­mælir hóp­ur­inn sem stendur að und­ir­skrift­ar­söfn­un­inni á þeim for­sendum að þetta feli í sér grund­vall­ar­breyt­ingu á til­högun fisk­veiði­stjórn­un­ar­kerf­is­ins. „Verði frum­varpið að lögum er útgerð­inni í fyrsta sinn veitt óaft­ur­kall­an­legt for­ræði yfir afla­heim­ildum til lengri tíma en eins árs og Alþingi getur í reynd ekki aft­ur­kallað þá ráð­stöfun. Um leið leggja stjórn­völd til að veiði­gjöld verði ákveðin til þriggja ára sem aftur bindur hendur Alþingis fram yfir næstu kosn­ingar.

Laga­setn­ing af þessu tagi kemur í veg fyrir að unnt sé að kveða á um skil­yrð­is­laust eignar­hald þjóð­ar­innar á fisk­veiði­auð­lind­inni með ákvæði í stjórn­ar­skrá sem jafn­framt tryggi að þjóðin njóti fulls gjalds af afnotum á auð­lind­inni,“ segir í yfir­lýs­ingu frá hópnum.

Skora á forsetann 

Skora á forsetann
Skora á for­set­ann Hópurinn skorar á for­seta Íslands að vísa lögum til þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu.

Þar segir einnig að ef fram fari sem horfi muni meiri­hluti Alþingis sam­þykkja umrætt frum­varp um nán­ast var­an­lega úthlutun mak­ríl­kvóta. Því hafi verið sett af stað und­ir­skrift­ar­söfnun á þjóð­ar­eign.is þar sem for­seti Íslands er hvattur til að vísa vænt­an­legum til þjóð­ar­innar svo hún fái að ákveða hvort fella skuli lögin úr gildi.

„Við und­ir­rituð skorum á for­seta Íslands að vísa í þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu hverjum þeim lögum sem Alþingi sam­þykkir þar sem fisk­veiði­auð­lindum er ráð­stafað til lengri tíma en eins árs á meðan ekk­ert ákvæði um þjóð­ar­eign á auð­lindum hefur verið sett í stjórn­ar­skrá og þjóð­inni ekki verið tryggt fullt gjald fyrir afnot þeirra.“

Undir þetta skrifa Agnar K. Þor­steins­son, sér­fræð­ingur í upp­lýs­inga­tækni, Bolli Héð­ins­son, hag­fræð­ingur, Elín Björg Ragn­ars­dóttir, fyrr­ver­andi fram­kvæmda­stjóri, Guðrún Pét­urs­dóttir, líf­eðl­is­fræð­ingur, Henný Hinz, hag­fræð­ingur, Jón Sig­urðs­son, fyrr­ver­andi skóla­stjóri Bifröst, Jón Steins­son, hag­fræð­ingur og Þorkell Helgason, fyrr­ver­andi pró­fessor.

Þingmaður hagnast á frumvarpinu

Páll Jóhann
Páll Jóhann Sat í atvinnu­vega­nefnd sem hafði frum­varpið til umfjöll­unar og gæti hagn­ast per­sónu­lega á því.

Mikið hefur verið fjallað um umrætt frum­varp á und­an­förnum dögum. Frétta­blaðið greindi frá því að Marver, útgerð­ar­fé­lag í eigu eig­in­konu Páls Jóhanns Páls­sonar, þing­manns Fram­sókn­ar­flokks­ins, fái úthlutað mak­ríl­kvóta að verð­mæti 50 millj­ónir króna verði frum­varpið að lögum.

„Allt hennar er mitt og allt mitt er hennar.“

Áður en Páll Jóhann tók sæti á þingi skráði hann eign­ar­hlut sinn í fyr­ir­tæk­inu á eig­in­kon­una, en hann var áður fram­kvæmda­stjóri og pró­kúru­hafi þess. Í sam­tali við Stundina sagð­ist Páll Jóhann líta svo á að þrátt fyrir það ætti hann enn helm­ing í fyr­ir­tæk­inu í gegnum eig­in­konu sína, þau ættu það saman. „Allt hennar er mitt og allt mitt er hennar,“ sagði Páll Jóhann.

Páll Jóhann situr í atvinnu­vega­nefnd sem hefur haft frum­varpið til með­ferðar og leit ekki svo á að hann væri van­hæfur til þess að fjalla um málið, vegna þekk­ingar sinnar á sjáv­ar­út­vegi. Í kjöl­far frétta­flutn­ings af mál­inu sagð­ist Páll Jóhann ekki ætla að greiða atkvæði um málið á þingi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár