Sjúklingar láta fresta aðgerðum vegna kostnaðar: „Tvískipt heilbrigðiskerfi í mótun“

Sig­ur­björg Sig­ur­geirs­dóttir stjórn­sýslu­fræð­ingur segir að ríkið svelti opin­bera geir­ann og semji við einka­að­ila.

Sjúklingar láta fresta aðgerðum vegna kostnaðar: „Tvískipt heilbrigðiskerfi í mótun“

Sjúk­lingur sem gengst undir aðgerð vegna æða­hnúta þarf að greiða tæp­lega 78 þús­und krónur úr eigin vasa. Æða­hnúta­að­gerðir eru ekki lengur gerðar á sjúkra­húsum heldur á einka­stofum og greiða Sjúkra­trygg­ingar Íslands aðeins hluta kostn­að­ar­ins.

Frá þessu greindi frétta­stofa RÚV á dög­unum, en dæmi eru um að sjúk­lingar fresti því að gang­ast undir æða­hnúta­að­gerðir vegna kostn­að­ar­ins.

Sig­ur­björg Sig­ur­geirs­dóttir stjórn­sýslu­fræð­ingur, sem stundað hefur rann­sóknir á íslenska heil­brigð­is­kerf­inu, hefur áhyggjur af þró­un­inni og veltir því fyrir sér hvort tví­skipt heil­brigð­is­kerfi sé í mótun.

„Ríkið sveltir opin­bera þjón­ustu og
semur við einka­vædda þjón­ustu“

„Ríkið sveltir opin­bera þjón­ustu og semur við einka­vædda þjón­ustu, en þó þannig að aðeins efna­meiri geta keypt þann hluta þjón­ust­unnar sem fram­kvæmd er með nýj­ustu tækni og lág­marks óþæg­indum, þar sem ekki er samið um þann hluta aðgerð­ar­innar,“ skrifar Sig­ur­björg á Facebook vegna frétta af æða­hnúta­að­gerð­unum og þeim kostn­aði sem fellur á sjúk­linga. 

„Þeir sem eru betur settir í sam­fé­lag­inu njóta fram­far­anna, ekki almenn­ingur. Ójöfn­uð­ur­inn innan þjón­ust­unnar eykst og sú aukn­ing heldur áfram að ger­ast meðan við horfum aðgerð­ar­laus á. Þetta er tví­skipt heil­brigð­is­kerfi í mótun.“ 

Kristján Þór Júlíusson
Kristján Þór Júl­í­us­son heil­brigð­is­ráð­herra

Stefnt að auknum einkarekstri

Eins og Stundin fjall­aði nýlega um bendir margt til þess að hlutur einka­rekstrar í íslenska heil­brigð­is­kerf­inu muni fara vax­andi á næstu árum. Stundin hefur heim­ildir fyrir því að heil­brigð­is­yf­ir­völd séu að kanna hvort hugur lækna sem starfa á heilsu­gæslu­stöðvum liggi til þess að taka við rekstri þeirra af íslenska rík­inu. Heilsu­gæslu­stöðv­arnar myndu þá áfram vera fjár­magn­aðar af íslenska rík­inu en reknar af starfs­mönnum þeirra.

Í sam­eig­in­legri yfir­lýs­ingu frá ráð­herrum rík­is­stjórn­ar­innar, Lækna­fé­lagi Íslands og Skurð­lækna­fé­lagi Íslands sem send var út 8. jan­úar síð­ast­lið­inn stendur til að fram fari „heild­stæð skoðun á skipu­lagi, upp­bygg­ingu og fjár­mögnun heil­brigð­is­kerf­is­ins“ þar sem opnað verður fyrir „mögu­leika á
fjöl­breyttum rekstr­ar­formum“.

„Miðað er við að opnað sé fyrir mögu­leika á fjöl­breyttum rekstr­ar­formum sem byggi á virkri þjón­ustu- og verk­efna­stýr­ingu, skýrum gæða­kröfum sam­hliða jafn­ræði í greiðslum óháð rekstr­ar­formi,“ sagði Kristján Þór Júl­í­us­son heil­brigð­is­ráð­herra nýlega í svari við fyr­ir­spurn Stund­ar­innar um mál­efni heil­brigð­is­kerf­is­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Einkarekstur í heilbrigðiskerfinu

Úttekt

Íslenska útrásin í bresku elli­heim­ilin

Fjár­festa­hópur sem Kvika setti saman hefur á síð­ustu árum verið eig­andi breskra elli­heim­ila. For­svars­menn elli­heim­il­is­ins hafa komið hingað til lands til að mæla fyrir auk­inni einka­væð­ingu í vel­ferð­ar­þjón­ustu á Íslandi. Kvika sjálf, og þar með íslenskir líf­eyr­is­sjóðir, er hlut­hafi í elli­heim­il­unum sem skil­uðu arð­semi umfram vænt­ingar á síð­asta ári.

9 mín. lestur

FréttirEinkarekstur í heilbrigðiskerfinu

Spyr ráð­herra um eft­ir­lit Sjúkra­trygg­inga með einka­rekstri í heil­brigð­is­kerf­inu

Willum Þór Þórsson heil­brigð­is­ráð­herra hefur staðið fyrir stór­auk­inni einka­væð­ingu í heil­brigð­is­kerf­inu frá því að hann tók við starf­inu. Eftirlit með þeim fjár­munum sem fara frá rík­inu til einka­að­ila hefur sam­hliða því ekki verið aukið. Willum Þór svar­aði spurn­ingum um meðal ann­ars á Alþingi um miðjan mán­uð­inn.
Fréttir

Hjúkr­un­ar­heim­ilið Sóltún fékk 20 millj­arða frá íslenska rík­inu

Frá árinu 2009 hefur hjúkr­un­ar­heim­ilið Sóltún fengið tæp­lega 20 millj­arða króna frá íslenskra rík­inu. Um 90 pró­sent af tekjum Sóltúns koma frá rík­inu. Eig­end­urnir hafa tekið á þriðja millj­arð króna út úr rekstr­inum með því að selja fast­eignir og lóðir og lækka hlutafé fyr­ir­tæk­is­ins. Allur rekst­ur­inn byggir hins vegar á umdeildum samn­ingi við íslenska ríkið sem gerður var árið 2000.

9 mín. lestur

FréttirEinkarekstur í heilbrigðiskerfinu

Sjúkra­trygg­ingar kanna gagn­rýni lækna á útvistun aðgerða

Rík­is­stofn­unin Sjúkra­trygg­ingar Íslands seg­ist ætla að kanna þá gagn­rýni sem komið hefur fram frá læknum á Land­spít­al­anum á útvistun á aðgerðum gegn legs­límuflakki. Sjúkra­trygg­ingar segja að heil­brigð­is­ráðu­neytið telji að þörf sé á að útvista aðgerð­unum jafn­vel þó læknar á Land­spít­al­anum segi að svo sé ekki.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár