Lögreglustjórinn segir ósatt í viðtali við Morgunblaðið

Lög­reglan vissi ekki af send­ingu grein­ar­gerð­ar­innar né að Sigríður hefði hringt í Gísla úr leyni­núm­eri. Sak­sókn­ari leið­réttir mál­flutn­ing lög­reglu­stjóra í Kjarn­anum.

Lögreglustjórinn segir ósatt í viðtali við Morgunblaðið

Sigríður Björk Guð­jóns­dóttir, lög­reglu­stjóri á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, segir ósatt í við­tali sem birt­ist í Morg­un­blað­inu í dag. 

Rætt er um sam­skipti hennar við Gísla Frey Val­dórs­son, fyrr­ver­andi aðstoð­ar­mann inn­an­rík­is­ráð­herra í nóv­em­ber árið 2013 og hvers vegna hún hafi ekki upp­lýst lög­regl­una á höf­uð­borg­ar­svæð­inu um þau meðan rann­sókn leka­máls­ins stóð yfir. Orðrétt er haft eftir Sigríði Björk: „Þeirri spurn­ingu hef­ur verið varpað fram hvort ég hefði ekki átt að gera lög­regl­unni á höf­uð­borg­ar­svæð­inu kunn­ugt um sam­skipti mín við Gísla Frey, aðstoð­ar­mann ráð­herra, þegar hún vann að rann­sókn sinni á leka­mál­inu. Því er til að svara að sam­skipti mín við aðstoðar­mann­inn fóru fram eft­ir að hann hafði lekið upp­lýs­ing­um til fjöl­miðla. Jafn­framt að öll sam­skipti aðstoð­ar­manna og tölvu­póst­send­ing­ar voru skoðuð af lög­regl­unni og all­ar upp­lýs­ing­ar um mín sam­skipti lágu þar fyr­ir.” 

Samkvæmt heim­ildum Stund­ar­innar er þetta rangt. Lög­reglan vissi hvorki um send­ingu Sigríðar á grein­ar­gerð­inni til Gísla Freys, né hafði lög­reglan vit­neskju um að Sigríður Björk hefði hringt í aðstoð­ar­mann­inn að fyrra bragði að morgni dags þann 20. nóv­em­ber árið 2013. Hringdi hún þá úr leyni­núm­eri sem lög­reglan kann­aði ekki hver ætti. DV fékk hins vegar stað­fest að núm­erið til­heyrði fjöl­skyldu Sigríðar og fjall­aði um málið þann 18. nóv­em­ber síð­ast­lið­inn.

Kjarninn gerir mál­inu góð skil í dag og ber ummæli Sigríðar undir Helga Magnús Gunn­ars­son vara­rík­is­saksokn­ara. Haft er eftir Helga að lög­reglu hafi ekki verið kunn­ugt um tölvu­póst­inn með grein­ar­gerð­inni.  „Að sjálf­sögðu var póst­hólf Sigríðar ekki rann­sakað, en mér er ekki kunn­ugt um að merki um þessa póst­send­ingu hafi fund­ist í póst­hólfi Gísla Freys og var hún ekki hluti af máls­gögnum,” segir Helgi í skrif­legu svari til Kjarnans og bætir við: „Ákæru­valdið fékk fyrst upp­lýs­ingar um að grein­ar­gerðin hefði verið send þegar Sigríður greindi frá því í fjöl­miðlum eftir að umfjöllun um síma­sam­skipti hennar við Gísla Frey komu til umræðu eftir að dómur gekk.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Lekamálið

Mest lesið

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Spurningaþraut Illuga: Noregskonungar, viskugyðjur og eitt fjall
6
Þrautir

Spurn­inga­þraut Illuga: Nor­egs­kon­ungar, visku­gyðjur og eitt fjall

Hver var Nor­egs­kon­ungur þá Íslend­ingar gengu Norð­mönnum á hönd – að minnsta kosti sam­kvæmt hefð­bund­inni sögu­skoðun? Hvað heitir sú kona í Banda­ríkj­unum sem var fyrir rétti sökuð um að myrða börn sín þrjú? Ann­að­hvort skírnar- eða eft­ir­nafn dugar. Árið 1975 var Jónas Krist­jáns­son rek­inn sem rit­stjóri Vísis og stofn­aði þá ásamt sam­starfs­fólki nýtt dag­blað. Hvað nefnd­ist það? Hvað heitir nýorðin...

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Ástleysið er sárt
3
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.
Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
6
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár