Sigmundur lýsir víðtæku samsæri: „Hvað segir þú skíthæll?“

Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son segir frétta­mann RÚV hafa kallað sig „skít­hæl“. Hann lýsir víð­tæku sam­særi gegn sér í opnu­grein í Morg­un­blað­inu og fer fram á afsök­un­ar­beiðni. Hann átti fundi með útvarps­stjóra þegar hann var for­sæt­is­ráð­herra og boð­aði rit­stjóra Frétta­blaðs­ins á fund.

Sigmundur lýsir víðtæku samsæri: „Hvað segir þú skíthæll?“
Lýsir sam­særi RÚV með erlendum aðilum Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son var end­ur­kjör­inn þing­maður í kosn­ing­unum 29. októ­ber. Mynd: Pressphotos

Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son beitti sér með marg­vís­legum hætti gegn nei­kvæðri umfjöllun um sig og Fram­sókn­ar­flokk­inn sem for­sæt­is­ráð­herra. Hann kall­aði meðal ann­ars yfir­menn fjöl­miðla á fundi. Nú hefur hann skil­greint hóp á Rík­is­út­varp­inu sem er á móti honum. Hópinn kallar hann SDG-RÚV-hóp­inn. Í opnu bréfi sínu í Morg­un­blað­inu í dag lýsir hann umfangs­miklu sam­særi gegn sér sem SDG-RÚV-hóp­ur­inn hafi tekið þátt í.

Fyrr­ver­andi for­sæt­is­ráð­herra sakar Rík­is­út­varpið um að hafa „stigið það skref að leita sam­ráðs við utan­að­kom­andi og erlenda aðila um að steypa rík­is­stjórn Íslands af stóli.“ Í grein­inni talar hann um Icesave-deil­una sem stríð og ásakar Rík­is­út­varpið um að hafa tekið afstöðu gegn þjóð­inni í því.

Segist hafa verið kallaður „skíthæll“

Sig­mundur Davíð lýsir því í bréfi sínu að frétta­maður RÚV hafi beðið hann að hringja í sig eftir að for­seti Íslands synj­aði lögum um Icesave-samn­ing­inn stað­fest­ingar. Hann segir frétta­mann­inn hafa kallað sig skít­hæl. „Ég hringdi og þegar frétta­mað­ur­inn svar­aði heils­aði hann með því að segja: „Hvað segir þú skít­hæll?“ Svo var ég beð­inn að koma í Efsta­leiti í við­tal þar sem ég fékk ekki mikið betri mót­tökur. Æstur starfs­maður frétta­stof­unnar (sem greini­lega trúði eigin áróðri) spurði mig: „Hvað ert þú eig­in­lega búinn að gera, nú hrynur allt!“

Hann full­yrðir að í seinna skiptið sem for­set­inn hafi synjað Icesave-lögum stað­fest­ingar hafi frétta­maður RÚV skellt á hann. „Þegar for­set­inn synj­aði svo í seinna skiptið var ég staddur erlendis en fékk sím­tal frá frétta­stofu RÚV og ekki í þeim til­gangi að flytja mér ham­ingju­óskir. Eftir að ég hafði lýst því að þetta væri góð nið­ur­staða var skellt á mig.“

Forsætisráðherra fundaði með útvarpsstjóra

Strax sum­arið 2013, nokkrum vikum eftir að hann varð for­sæt­is­ráð­herra, fund­aði Sig­mundur Davíð með Páli Magn­ús­syni, þáver­andi útvarps­stjóra. Greint var frá fundum Sig­mundar með yfir­mönnum fjöl­miðla í Stund­inni í apríl síð­ast­liðnum. Á fundi sínum með Páli Magn­ús­syni kynnti for­sæt­is­ráð­herr­ann þáver­andi möppur með úrklippum og afritum af gagn­rýni á Fram­sókn­ar­flokk­inn og vitn­aði í blogg­færslu til­tek­ins starfs­manns Rík­is­út­varps­ins, þar sem flokk­ur­inn var gagn­rýndur. Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son hefur ekki svarað spurn­ingum um fund­ina.

Í opinni grein sinni í Morg­un­blað­inu í dag til­tekur Sig­mundur að við­horf með­lima SDG-RÚV-hóps­ins gagn­vart sér séu ekki leynd­ar­mál, þar sem starfs­menn RÚV hafi tjáð sig um hann á manna­mótum og í við­tölum. „Svo ekki sé minnst á facebook, twitter og blogg þar sem sama fólk lýsir skoð­unum sínum á mér og öðrum stjórn­mála­mönnum. Það eitt fyllir tvær þykkar möppur,“ skrifar Sig­mundur. 

„Ábendingar“ valdhafa

Sig­mundur Davíð fund­aði einnig með Magnúsi Geir Þórð­ar­syni, núver­andi útvarps­stjóra. 

Magnús Geir sagð­ist í sam­tali við Stundina í apríl hafa fengið „ábend­ingar“ og „athuga­semdir“ frá vald­höfum og full­trúum þeirra. Hann vill ekki svara því hvort þær hafi komið fram á fundum með for­sæt­is­ráð­herra. 

„Eðlilega hef ég átt fundi með for­sæt­is­ráð­herra eins og öðrum ráð­herrum, til að ræða mál­efni RÚV. Tilefnið var ávallt eðli­legt, að ræða fjár­mögnun RÚV og starf­sem­ina. Ég kann ekki við að end­ur­segja tveggja manna tal en skoð­anir hans á frétta­flutn­ingi hafa hins vegar komið fram opin­ber­lega,“ sagði hann.

Magnús sagði að „ábend­ingar“ frá vald­höfum hefðu stundum farið út fyrir það eðli­lega. „Stundum hafa þessar ábend­ingar farið yfir þá línu sem eðli­leg er og þá gerir maður athuga­semd. Þá ríður á að við stöndum í lapp­irnar og gefum hvergi eftir. Það er ekki óeðli­legt að menn segi sína skoðun en hins vegar er auð­vitað óeðli­legt með öllu ef slíkar athug­semdir eru settar í  beint eða óbeint sam­hengi við fjár­veit­ingar eða umgjörð stofn­un­ar­innar. Sjálf­stæði almanna­mið­ils­ins er gríð­ar­lega mik­il­vægt í lýð­ræð­is­ríki og okkur, starfs­fólki RÚV, ber að standa fast á þeim prinsippum og gefa hvergi eftir.“

Fundaði með ritstjóra og fréttastjóra Fréttablaðsins

Sig­mundur Davíð kall­aði Sigurjón M. Egilsson, dag­skrár­gerð­ar­mann á Bylgj­unni og fyrr­ver­andi frétta­stjóra 365, einnig á fund með sér í jan­úar 2015. Á fund­inum sýndi Sig­mundur myndir af sér úr fjöl­miðlum til að und­ir­strika að fjöl­miðla­menn beittu sér gegn honum með mynda­vali. Þá taldi hann upp nöfn gagn­rýnenda sinna í fjöl­miðlum og rakti grein­ingu sína á gagn­rýni Sig­ur­jóns á stjórn­mála­flokka, með þeirri nið­ur­stöðu að hann hefði gagn­rýnt Fram­sókn­ar­flokk­inn mest. 

Auk þess að hitta frétta­stjóra stærsta fjöl­miðla­fyr­ir­tækis lands­ins og kvarta undan gagn­rýni á sig hitti Sig­mundur Davíð aðal­rit­stjóra fyr­ir­tæk­is­ins á fundi, sam­kvæmt heim­ildum Stund­ar­innar. Kristín Þor­steins­dóttir, aðal­rit­stjóri 365, kom, sam­kvæmt heim­ildum, að máli við Sigurjón nokkru fyrir fund­inn sem hann átti með for­sæt­is­ráð­herra, og gagn­rýndi hann fyrir að vera óhóf­lega „nei­kvæður“ í garð rík­is­stjórn­ar­innar.

Rit­stjór­inn veitti verð­launFor­sæt­is­ráð­herr­ann Sig­mundur Davíð kvart­aði undan nei­kvæðni og gagn­rýni við frétta­stjóra 365. Aðal­rit­stjór­inn veitti honum verð­laun síðar um árið.

Á fund­inum með Sigmundi not­aði for­sæt­is­ráð­herra síðan sama orða­lag, að Sigurjón væri „nei­kvæður“. Samkvæmt heim­ildum hitti Kristín Sigmund á fundi, þar sem umfjall­anir um Sigmund Davíð og rík­is­stjórn hans voru ræddar. Kristín svar­aði ekki spurn­ingum Stund­ar­innar um málið í apríl. Í des­em­ber sama árs veitti aðal­rit­stjór­inn Sigmundi Davíð og Bjarna Bene­dikts­syni verð­laun fyrir „við­skipti árs­ins“.

Lýsir samsæri RÚV og „Icesave-stríði“

Auk þess að saka Rík­is­út­varpið um að hafa leitað til erlendra aðila um að steypa rík­is­stjórn Íslands af stóli með umfjöllun sinni um leynda eign Sig­mundar og eig­in­konu hans í skatta­skjóls­fé­lagi, sem átti kröfur á íslensku bank­ana, ásakar fyrr­ver­andi for­sæt­is­ráð­herra Rík­is­út­varpið um að hafa tekið afstöðu gegn íslenskri þjóð í því sem hann kallar „Icesave-stríð­inu“, meðal ann­ars með því að kalla „enda­laust“ til fræði­menn sem töldu að Íslend­ingar ættu að borga hol­lenskum og breskum inni­stæðu­eig­endum tjón sitt vegna falls úti­búa Lands­bank­ans.

Sig­mundur DavíðYfirgaf við­tal um skatta­skjóls­fé­lag hans eftir að hafa sagt ósatt.

Þá segir Sig­mundur að við­talið sem hann gekk út úr eftir að hafa verið stað­inn að því að afneita skatta­skjóls­fé­lagi sínu, hafi verið „falsað“. „Ýmiss konar þvætt­ingi öðrum var blandað inn í frá­sögn­ina og loks stuðst við falsað við­tal við mig. Viðtal sem menn höfðu bein­línis æft hvernig mætti láta koma sem verst út fyrir við­mæl­and­ann og rugla hann sem mest í rím­inu um hvað verið væri að ræða. Viðtal sem var tekið á fölskum for­sendum og í fram­haldi af sam­skiptum sem að öllu leyti byggð­ust á hreinni lygi af hálfu starfs­manna og sam­starfs­manna RÚV. Viðtal sem svo var klippt sundur og úr sam­hengi og svörtum fílter og öðrum tækni­brellum beitt í ofaná­lag.“ 

Segir að ráðist hafi verið á sig

Þá beinir Sig­mundur spjótum sínum að SDG-RÚV-hópnum í grein sinni. „Það getur varla talist ásætt­an­legt að póli­tískir aktí­vistar fái gagn­rýni­laust að nota slíka rík­is­stofnun til að reka eigin áróður.“

Hann seg­ist hafa verið meg­inskot­markið í Panama­skjöl­unum. „Eftir því sem frá leið þurfti eng­inn að efast um hvert væri megin skot­markið. Þegar ég hafði stigið til hliðar hvarf skyndi­lega allur áhugi á Panama-skjölum og því hvaða nöfn hefðu birst þar og hvers vegna. Við tóku áhyggjur nokk­urra RÚV-aktí­vista af því að ég kynni að halda áfram í stjórn­málum. Þær áhyggjur leyndu sér ekki á manna­mótum og sam­fé­lags­miðlum. Eftir fylgdu afar sér­stæð afskipti af mál­efnum Fram­sókn­ar­flokks­ins, köllum það ein­lægan áhuga. Sá áhugi birt­ist m.a. í beinum útsend­ingum frá hverjum Fram­sókn­ar­fund­inum á eftir öðrum auk reglu­bund­inna við­tala við fólk sem menn vissu hvar þeir hefðu ... Meira að segja í kosn­inga­sjón­varpi RÚV sáu þátta­stjórn­endur ástæðu til að hefja þátt­inn á geð­vonsku­at­huga­semdum um mig og spurn­ingu um hvort ég ætl­aði ekki að biðj­ast afsök­unar. Það var svo sem ágætt að fá tæki­færi til að svara hinum und­ar­legu athuga­semdum en þó hefur ekki verið venjan á Íslandi að menn séu krafðir um afsök­un­ar­beiðni fyrir að á þá hafi verið ráð­ist.“

Spurningum ósvarað

Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son hefur enn ekki svarað öllum spurn­ingum sem við­koma Wintris-mál­inu svo­kall­aða. Málið sýndi fram á að Sig­mundur hafði veru­legra per­sónu­legra hags­muna að gæta í málum sem við­koma störfum hans fyrir hönd þjóð­ar­innar. Í siða­reglum ráð­herra kemur fram að ráð­herrum beri að greina frá hags­munum sínum, jafn­vel þótt þeir liggi í gegnum fjöl­skyldu­með­limi, en Sig­mundur seldi Önnu Sig­ur­laugu Páls­dóttur, eig­in­konu sinni, helm­ings­hlut sinn í Wintris Inc. á einn doll­ara á gaml­árs­dag 2009, degi áður en lög tóku gildi sem hefðu skyldað hann til að upp­lýsa um hlut­inn sem þing­maður, en þrætti fyrir við­skiptin í við­tal­inu sem hann gekk út úr. Félagið átti 523 millj­óna króna kröfur á þrotabú íslensku bank­anna.

„Ráðherra forð­ast árekstra milli almanna­hags­muna ann­ars vegar og fjár­hags­legra eða per­sónu­legra hags­muna sinna eða fjöl­skyldu sinnar hins vegar og gætir þess að per­sónu­leg tengsl hafi ekki áhrif á störf sín. Takist honum ekki að koma í veg fyrir hags­muna­á­rekstra af þessu tagi skal hann upp­lýsa um þá,“ segir í siða­regl­unum.

Hann hefur ekki gert nákvæma grein fyrir því hvaða eignir voru í Wintris Inc, hvernig var til­kynnt um sölu Sig­mundar á hlut hans í félag­inu til eig­in­konu hans, hvernig var gerð grein fyrir félag­inu á skatt­fram­tölum og hverjum var greint frá til­vist Wintris Inc. og hvenær?

Stundin hefur sent Sigmundi spurn­ingar um grein hans í dag, meðal ann­ars ásak­anir á hendur Rík­is­út­varp­inu og starfs­mönnum þess og svo fundi hans með yfir­mönnum fjöl­miðla:

1. Hvaða frétta­maður Rík­is­út­varps­ins kall­aði þig „skít­hæl“ í sím­tali eftir að for­seti Íslands synj­aði Icesave-lög­unum stað­fest­ingar?

2. Þekkt­irðu við­kom­andi frétta­mann og var um að ræða sam­skipta­hætti sem tíðk­uð­ust milli ykkar tveggja?

3. Hvaða starfs­maður RÚV brást æstur við og sagði „Hvað ert þú búinn að gera, nú hrynur allt!“

4. Var við­kom­andi starfs­maður frétta­stofu eða í dag­skrár­gerð?

5. Er SDG-hóp­ur­inn á RÚV skil­greindur hópur?

6. Hefurðu safnað gögnum um tján­ingu starfs­manna RÚV á sam­fé­lags­miðlum og vef­miðlum um þig og Fram­sókn­ar­flokk­inn?

7. Ertu í eft­ir­far­andi setn­ingu að vísa til mappa sem þú hafðir undir höndum á fundi með Páli Magn­ús­syni, fyrr­ver­andi útvarps­stjóra, á fundi þínum með honum sum­arið 2013? „Svo ekki sé minnst á facebook, twitter og blogg þar sem sama fólk lýsir skoð­unum sínum á mér og öðrum stjórn­mála­mönnum. Það eitt fyllir tvær þykkar möppur“.

8. Með hvaða yfir­mönnum fjöl­miðla átt­irðu fundi með þegar þú varst for­sæt­is­ráð­herra?

9. Hefurðu gert athuga­semdir við efn­is­tök og umfjall­anir RÚV á fundum þínum með Magnúsi Geir Þórað­ar­syni, útvarps­stjóra, og Páli Magn­ús­syni, fyrr­ver­andi Útvarps­stjóra, sem fjallað hafa um fjár­veit­ingar til RÚV?

Sig­mundur hefur ekki svarað spurn­ing­unum.

Útvarpsstjóri hafnar afsökunarbeiðni

Magnús Geir Þórð­ar­son útvarps­stjóri hefur svarað kröfu Sig­mundar Davíðs um afsök­un­ar­beiðni neit­andi.

„Fjöl­miðlar eiga að vera full­trúar almenn­ings og þeim ber að spyrja kjörna full­trúa út í mál­efni er hann varðar. Það sama á við um Sigmund Davíð og aðra kjörna full­trúa en auk þess að vera alþing­is­maður, þá var hann for­sæt­is­ráð­herra í þrjú ár og for­maður í stjórn­mála­flokki um ára­bil. Sig­mundur Davíð hefur ítrekað fengið tæki­færi til að koma sínum sjón­ar­miðum á fram­færi og fjallað hefur verið um þau í miðlum RÚV.“

Þá beinir Magnús Geir því til umkvar­tenda að leita til siða­nefndar.

„Ef við­kom­andi er ósáttur við þá afgreiðslu sem hann fær hjá stofn­un­inni, þá er hægt að beina mál­inu til sjálf­stæðrar siða­nefndar sem leggur sjálf­stætt mat á fram­göngu starfs­manna RÚV en að auki má benda á að allir geta skotið málum til Blaða­manna­fé­lags Íslands.  Ef þing­mað­ur­inn telur á sig hallað þá hvet ég hann til að beina málum í þennan form­lega far­veg sem er til staðar fyrir hann eins og aðra.“ 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Panamaskjölin

Hvernig peningaslóð stjórnenda Kaupþings og maka þeirra liggur til Tortólu
Skýring

Hvernig pen­inga­slóð stjórn­enda Kaup­þings og maka þeirra liggur til Tortólu

Notkun eig­in­kvenna fyrr­ver­andi stjórn­enda Kaup­þings­banka á félögum á aflands­svæð­inu Kypur er enn eitt dæmið um það að þessir aðilar hafi not­ast við slík félög í við­skiptum sínum eftir efna­hags­hrunið 2008. Hreiðar Már Sig­urðs­son, fyrr­ver­andi for­stjóri Kaup­þings, og eig­in­konu hans tengd­ust til dæmis félögum í Panama­skjöl­unum og árið 2019 var sagt frá Tortóla­fé­lagi sem notað var til að halda utan um eignir á Íslandi sem tengd­ust þeim.
Sæmarksstjóri ákærður ásamt lögmanni fyrir stórfelld skattsvik og peningaþvætti
Úttekt

Sæmarks­stjóri ákærður ásamt lög­manni fyrir stór­felld skatt­svik og pen­inga­þvætti

Sigurður Gísli Björns­son, sem í fjölda ára var einn umsvifa­mesti fisk­út­flytj­andi lands­ins, er sak­aður um að hafa stungið rúm­lega millj­arði króna undan sköttum og fært í gegnum falska reiknn­inga og aflands­fé­lög í eigin vasa. Hann er ákærður fyrir stó­felld brot á skatta­lögum, bók­halds­lögum og pen­inga­þvætti. Íslenskur lög­maður sem einnig er ákærður seg­ist sak­laus.
Fengu fjölskyldumálverk í hendurnar eftir umfjöllun Stundarinnar
FréttirPanamaskjölin

Fengu fjöl­skyldu­mál­verk í hend­urnar eftir umfjöllun Stund­ar­innar

Skoskar mæðgur sem komu til Íslands í byrjun árs í leit að svörum við spurn­ingum sem leitað hafa á fjöl­skyldu þeirra eru þakk­látar Íslend­ingi sem sendi þeim mál­verk sem var í eigu ömmu þeirra og langömmu á Íslandi. Gunnar Eggert Guð­munds­son taldi rétt­ast að fjöl­skyldan fengi mál­verkið þar sem þau fengu lítið sem ekk­ert úr búi Áslaugar.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár