Shawarmastríðið í miðbænum: „Við viljum frið“

Hjónin Hlal og Iwona á shawarmastaðnum Mandi vilja frið við eig­anda shawarmastaðarins Ali Baba, sem stað­settur er við hlið­ina í mið­borg Reykja­víkur. Hlal hefur játað að hafa slegið eig­anda Ali Baba í kjöl­far átaka.

Shawarmastríðið í miðbænum: „Við viljum frið“
Eigendur shawarma-stað­ar­ins Mandi Hjónin Iwona Sochacka og Hlal Jarah fluttu bæði til Íslands, hún frá Póllandi og hann frá Sýrlandi. Þau störf­uðu bæði við þrif hjá ISS en hafa nú eign­ast tvö börn á Íslandi og mat­sölu­stað. Eina vanda­málið er að stað­ur­inn er við hlið­ina á sam­keppn­is­að­ila sem þau eiga harðri í deilu við. Mynd: Kristinn Magnússon

Hlal Jarah, veit­inga­maður á shawarmastaðnum Mandí við Ing­ólfs­torg, hefur játað fyrir lög­reglu að hafa slegið Yaman Brikhan, veit­inga­mann á shawarmastaðnum Ali Baba, við hlið­ina á Mandí, í átökum í síð­asta mán­uði.
Slags­málin brut­ust út í kjöl­far þess að Yaman ók háska­lega eftir jarð­ar­för, að mati Hlals og aðstand­enda hans, með þeim afleið­ingum að bróðir Hlals lenti í hættu. Átökin áttu sér stað við veit­inga­stað­inn Kebab­húsið, sem er á horni Ing­ólfs­torgs og Aust­ur­strætis. Sagt var frá átök­unum í Frétta­blað­inu.

Í upp­hafi voru slags­málin á milli Yamans og bróður Hlals, en atvikin hafi þró­ast á þá leið að veit­inga­mað­ur­inn af Ali Baba greip um hreðjar nágranna síns af Mandí í ögrun­ar­skyni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár