Fjarverandi Óttarr sagður á flótta undan umræðu um einkarekið heilbrigðiskerfi

Í óund­ir­búnum fyr­ir­spurnum á Alþingi í dag sögðu þing­menn stjórn­ar­and­stöð­unnar Óttar Proppé forð­ast umræð­una um einka­rekstur í heil­brigð­is­kerf­inu. Svör hans væru loðin.

Fjarverandi Óttarr sagður á flótta undan umræðu um einkarekið heilbrigðiskerfi
Heil­brigð­is­ráð­herra Þingmenn stjórn­ar­and­stöð­unnar gagn­rýna Óttarr Proppé fyrir að gefa óljós svör um einka­væð­ingu heil­brigð­is­kerfis Íslands. Mynd: Af Facebook-síðu Bjartrar framtíðar

Þingmenn stjórn­ar­and­stöðu gagn­rýndu orð Óttars Proppé, heil­brigð­is­ráð­herra um einka­væð­ingu heil­brigð­is­þjón­ust­unnar í óund­ir­búnum fyr­ir­spurnum á Alþingi í dag. Þingmenn segja svör Óttars um til­komu einka­sjúkra­hús Klíník­ar­innar vera loðin og segja Óttar reyna að koma sér undan umræð­unni.

Rætt var um ummæli Óttars á Alþingi þann 23. mars þegar rætt var um mál­efni Klíník­ur­innar í óund­ir­búnum fyr­ir­spurna­tíma, en þá sagði Óttarr: „Það er ekki ég sem veiti starfs­leyfi fyrir starf­semi eða stofum, aðstöðu sér­fræð­inga úti í bæ, það er emb­ætti land­lækn­is­ins sem veitir starfs­leyfi fyrir stöð­inni.“

Embætti land­læknis sendi út til­kynn­ingu þann 19. apríl vegna mis­skiln­ings sem gætir í umræðu um heil­brigð­is­þjón­ustu. Leið­réttir land­læknir bæði ummæli sem Óttarr Proppé lét falla á Alþingi og full­yrð­ingu sem birt­ist í frétt Morg­un­blaðs­ins dag­inn eftir. Land­læknir telur að túlkun heil­brigð­is­ráðu­neyt­is­ins á heil­brigð­is­lögum geri það að verkum að einka­rekstur og einka­væð­ing á sviði sér­hæfðrar heil­brigð­is­þjón­ustu og sjúkra­hús­þjón­ustu geti haldið áfram að vaxa hér á landi. „Embætti land­læknis hefur ítrekað reynt að leið­rétta þann mis­skiln­ing að emb­ættið veiti leyfi til rekstrar heil­brigð­is­þjón­ustu. Samkvæmt lögum um land­lækni og lýð­heilsu á land­læknir að stað­festa að fyr­ir­hug­aður rekstur heil­brigð­is­þjón­ustu upp­fylli fag­legar lág­marks­kröfur,“ sagði í til­kynn­ing­unni. 

„Hvar er hann nú?“

Óttarr Proppe var ekki við­staddur þing­fund og kröfð­ust þing­menn stjórn­ar­and­stöð­unnar svara. Sigurður Ingi Jóhanns­son segir ráð­herr­ann ekki skýra nægi­lega vel frá málum. „Hann hefur nú komið fram í fjöl­miðlum og sagt að þetta sé ekk­ert á hans valdi. Af hverju not­aði hann ekki eitt­hvað af þessum fyr­ir­spurnum sínum til að upp­lýsa þingið um hver staðan væri í stað þess að leiða okkur á villi­götur? Hér var einu sinni tón­elskur þing­maður, oft í gulum fötum, sem tal­aði mikið um heið­ar­leika í stjórn­málum, sam­starf og sam­vinnu og minna fúsk. Hvar er hann nú?“

Birgitta Jóns­dóttir, þing­maður Pírata, segir svör Óttars loðin. „Ég vil taka undir þau orð sem hér hafa komið fram og jafn­framt minna á að hæst­virtur ráð­herra var nú í dauðarokk­sveit þannig að tón­elskan vakti oft kátínu, undran og óhug. En aftur á móti hefur það verið ein­kenn­andi fyrir þau orð sem komið hafa frá hæst­virtum heil­brigð­is­ráð­herra er að þau eru alltaf loðin, alltaf þannig að hæst­virtur ráð­herra virð­ist ekki geta komið með afger­andi svör um mjög brýn mál,“ segir Birgitta og segir málið mjög alvar­legt.

Öll spjót að rokkbóndanum

„Nú standa öll spjót á rokk­bónd­anum Óttari Proppé heil­brigð­is­ráð­herra. Hann verður að koma hingað suður, ég hlust­aði á hann á Aldrei fór ég suður og hann var ágætur þar,“ segir Lilja Rafney Magn­ús­dóttir, þing­maður Vinstri grænna. Svandís Svav­ars­dóttir, þing­maður Vinstri grænna, tekur undir og segir: „ Ég sé ekki betur en að ástandið sé þannig núna að hann sé á harða­hlaupum undan fjöl­miðlum.“

Fleiri vitna í rokk­feril Óttars Proppé. Einar Brynj­ólfs­son, þing­maður Pírata, segir Óttar vera ósam­kvæmur sjálfum sér þegar hann stað­festi þann 23. mars að ekki yrði farið út í einka­rekstur í heil­brigð­is­kerf­inu. „Nú sýn­ist mér og það er vont að upp­lifa það, ég vissi það ósköp vel að mað­ur­inn væri í hljóm­sveit sem heitir HAM, en að hann gæti skipt svo auð­veld­lega um ham kemur mér því miður á óvart.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Einkarekstur í heilbrigðiskerfinu

Íslenska útrásin í bresku elliheimilin
Úttekt

Íslenska útrásin í bresku elli­heim­ilin

Fjár­festa­hópur sem Kvika setti saman hefur á síð­ustu árum verið eig­andi breskra elli­heim­ila. For­svars­menn elli­heim­il­is­ins hafa komið hingað til lands til að mæla fyrir auk­inni einka­væð­ingu í vel­ferð­ar­þjón­ustu á Íslandi. Kvika sjálf, og þar með íslenskir líf­eyr­is­sjóðir, er hlut­hafi í elli­heim­il­unum sem skil­uðu arð­semi umfram vænt­ingar á síð­asta ári.
Spyr ráðherra um eftirlit Sjúkratrygginga með einkarekstri í heilbrigðiskerfinu
FréttirEinkarekstur í heilbrigðiskerfinu

Spyr ráð­herra um eft­ir­lit Sjúkra­trygg­inga með einka­rekstri í heil­brigð­is­kerf­inu

Willum Þór Þórsson heil­brigð­is­ráð­herra hefur staðið fyrir stór­auk­inni einka­væð­ingu í heil­brigð­is­kerf­inu frá því að hann tók við starf­inu. Eftirlit með þeim fjár­munum sem fara frá rík­inu til einka­að­ila hefur sam­hliða því ekki verið aukið. Willum Þór svar­aði spurn­ingum um meðal ann­ars á Alþingi um miðjan mán­uð­inn.
Hjúkrunarheimilið Sóltún fékk 20 milljarða frá íslenska ríkinu
Fréttir

Hjúkr­un­ar­heim­ilið Sóltún fékk 20 millj­arða frá íslenska rík­inu

Frá árinu 2009 hefur hjúkr­un­ar­heim­ilið Sóltún fengið tæp­lega 20 millj­arða króna frá íslenskra rík­inu. Um 90 pró­sent af tekjum Sóltúns koma frá rík­inu. Eig­end­urnir hafa tekið á þriðja millj­arð króna út úr rekstr­inum með því að selja fast­eignir og lóðir og lækka hlutafé fyr­ir­tæk­is­ins. Allur rekst­ur­inn byggir hins vegar á umdeildum samn­ingi við íslenska ríkið sem gerður var árið 2000.
Sjúkratryggingar kanna gagnrýni lækna á útvistun aðgerða
FréttirEinkarekstur í heilbrigðiskerfinu

Sjúkra­trygg­ingar kanna gagn­rýni lækna á útvistun aðgerða

Rík­is­stofn­unin Sjúkra­trygg­ingar Íslands seg­ist ætla að kanna þá gagn­rýni sem komið hefur fram frá læknum á Land­spít­al­anum á útvistun á aðgerðum gegn legs­límuflakki. Sjúkra­trygg­ingar segja að heil­brigð­is­ráðu­neytið telji að þörf sé á að útvista aðgerð­unum jafn­vel þó læknar á Land­spít­al­anum segi að svo sé ekki.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár