Segist „mjög upptekinn“ af „agaðra verklagi og breiðari aðkomu“ þrátt fyrir samráðsleysið á desemberþingi

Óttarr Proppé og flokkur hans tóku þátt í að keyra umdeild mál í gegnum þingið með hraði í litlu og jafn­vel engu sam­ráði við hags­muna­að­ila, sér­fræð­inga og stofn­anir á des­em­ber­þingi.

Segist „mjög upptekinn“ af „agaðra verklagi og breiðari aðkomu“ þrátt fyrir samráðsleysið á desemberþingi

Óttarr Proppé, for­maður Bjartrar fram­tíðar, segir í við­tali við Frétta­blaðið að hann sé „enn mjög upp­tek­inn af því að koma að auknu sam­starfi, agaðra verk­lagi og breið­ari aðkomu í póli­tík“. Á des­em­ber­þingi tók hann hins vegar þátt í að keyra umdeild mál í gegnum þingið með hraði í litlu eða engu sam­ráði við hags­muna­að­ila, sér­fræð­inga og stofn­anir. Eins og fjallað er um í nýjasta tölu­blaði Stund­ar­innar á þetta einkum við um frum­varpið um Líf­eyr­is­sjóð starfs­manna rík­is­ins og frum­varp um mál­efni fatl­aðra. 

Lífeyrisréttindi skert og stéttarfélögum veittur sólarhringsfyrirvari

Líf­eyr­is­sjóðs­frum­varpi Bjarna Bene­dikts­sonar var útbýtt 12. des­em­ber og hafði að geyma ýmsar breyt­ingar frá sam­bæri­legu frum­varpi um jöfnun líf­eyr­is­rétt­inda sem lagt hafði verið fram á síð­asta þingi. Þrátt fyrir að breyt­ing­arnar væru gríð­ar­lega umdeildar var hags­muna­að­ilum og stofn­unum aðeins gef­inn sól­ar­hrings­frestur til að skila Alþingi athuga­semdum um málið. Á meðal þeirra sem gagn­rýndu frum­varpið harð­lega voru BHM, BSRB, Kenn­ara­sam­band Íslands og Lands­sam­band lög­reglu­manna sem töldu að frum­varpið gengi gegn sam­komu­lagi stétt­ar­fé­laga við ríki og sveit­ar­fé­lög og fæli í sér ólög­mæta skerð­ingu á líf­eyr­is­rétt­indum fjölda fólks. Líf­eyr­is­sjóðs­frum­varpið var rætt á sex nefnd­ar­fundum efna­hags- og við­skipta­nefndar og í aðeins rúmar fjórar klukku­stundir í þing­sal. Þrátt fyrir hinn gríð­ar­lega nauma umsagn­ar­frest bár­ust þing­inu 70 umsagnir um frum­varpið, meðal ann­ars gagn­rýni og til­lögur til úrbóta frá stofn­unum, stétt­ar­fé­lögum og sér­fræð­ingum. Samt tók frum­varpið engum efn­is­legum breyt­ingum í með­förum þings­ins. Það var sam­þykkt með 38 atkvæðum Bjartrar fram­tíðar, Fram­sókn­ar­flokks­ins, Sjálf­stæð­is­flokks­ins og Við­reisn­aren af þeim höfðu ein­ungis 10 tjáð sig um málið á þing­inu eða komið að umfjöllun þess í efna­hags- og við­skipta­nefnd.  Óttarr Proppé greiddi atkvæði með frum­varp­inu en sá aldrei ástæðu til að tjá sig um efni þess. Þingmenn Vinstri grænna og Pírata sögðu málið van­reifað og krefj­ast meiri tíma, yfir­legu og umfjöll­unar enda gríð­ar­legir hags­munir í húfi. 

Ekkert samráð við fatlaða

Frum­varpi um breyt­ingu á lög­um um mál­efni fatl­aðs fólks var útbýtt þann 21. des­em­ber og klárað dag­inn eftir, að kvöldi 22. des­em­ber. Með frum­varp­inu var ákvæði um skuld­bind­ingu vel­ferð­ar­ráð­herra til að leggja fram frum­varp um not­enda­stýrða per­sónu­leg aðstoð (NPA) látið renna út en heim­ild veitt til að fram­lengja samn­inga um NPA sem gerðir hafa verið við fatl­aða. Aðeins tveir þing­menn tjáðu sig um málið og tóku form­legar umræður um frum­varpið því aðeins 3 mín­útur. Það var afgreitt á slíkum hraða að engum hags­muna­að­ilum eða stofn­unum gafst ráð­rúm til að koma á fram­færi athuga­semdum. Eins og bent er á í yfir­lýs­ingu frá Öryrkja­banda­lag­inu stríðir slíkt ákvarð­ana­ferli gegn þeim kröfum um aðkomu fatl­aðra að laga­setn­ingu sem Samn­ingur Sam­ein­uðu þjóð­anna um rétt­indi fatl­aðs fólks leggur á stjórn­völd.

Óttarr Proppé hefur und­an­farin ár talað mikið um að bæta þurfi vinnu­brögð á Alþingi, dýpka sam­talið og stuðla að betri umræðu­hefð í stjórn­málum. „Hand­ar­baksvinnu­brögð og fúsk eiga ekki rétt á sér. Það þarf að vanda sig,“ sagði hann í eld­hús­dags­um­ræðum á Alþingi þann 26. sept­em­ber síð­ast­lið­inn og gagn­rýndi til­raunir til að „troða málum í gegnum þingið hvort sem um þau er sátt eða ekki“.

Í við­tal­inu við Óttar sem birt­ist í Frétta­blað­inu í dag segir hann: „Ég er nú enn að hugsa um mýkt og sveigj­an­leika. Er enn mjög upp­tek­inn af því að koma að auknu sam­starfi, agaðra verk­lagi og breið­ari aðkomu í póli­tík.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Stjórnmálaflokkar

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár