Hafnar ásökunum um vanhæfi: „Persónulegt skítkast“

Fyr­ir­tæki sem Gunnar Bergmann, sonur Jóns Gunn­ars­sonar, er í for­svari fyrir er eini aðil­inn sem veiðir hrefnur í sumar. Reglu­gerð var breytt svo aðeins örfáir fá leyfi til hrefnu­veiða. Jón vill auka hval­veiðar. Fyrri félög hafa farið í þrot og 35 millj­ónir voru afskrif­aðar í fyrra.

Hafnar ásökunum um vanhæfi: „Persónulegt skítkast“

Jón Gunn­ars­son, for­maður atvinnu­vega­nefndar Alþingis, segir and­stæð­inga hval­veiða grípa til per­sónu­legs skít­kasts gagn­vart sér. Þetta sé merki um mál­efna­þurrð og rök­þrot.

Ásbjörn Björg­vins­son, for­maður Ferða­mála­sam­taka Íslands, hélt því fram í við­tali á Bylgj­unni á mánu­dag að Jón væri van­hæfur til að fjalla um mál er varða hrefnu­veiðar vegna fjöl­skyldu­tengsla. Er þá vísað til þess að Gunnar Bergmann, sonur Jóns, er fram­kvæmda­stjóri IP-útgerðar ehf sem gerir út skipið Hrafn­reyði KÓ-100 til hrefnu­veiða á Faxaflóa. Fyr­ir­tækið er það eina sem veiðir hrefnur í sumar en Gunnar hefur haft tekjur af slíkum veiðum um ára­bil. Hann er í for­svari fyrir Félag hrefnu­veiði­manna og er rétt­hafi léns þess, hrefna.is.

Faðir hans, Jón Gunn­ars­son, er einn ötul­asti tals­maður hval­veiða á Alþingi. Nýverið gagn­rýndi hann Gunnar Braga Sveins­son utan­rík­is­ráð­herra harð­lega vegna ummæla um að hval­veiðar kynnu að hafa skað­leg áhrif á við­skipta­hags­muni og ímynd Íslands. Þann 24. júlí síð­ast­lið­inn sagði Jón í við­tali við frétta­stofu RÚV að rétt­ast væri að auka hval­veiðar við Íslands­strendur. Að sama skapi barð­ist hann ein­arð­lega fyrir því á síð­asta kjör­tíma­bili að hval­veiðar fengju að við­gang­ast án hind­r­ana.

„Mér finnst mjög orka tví­mælis að for­maður atvinnu­vega­nefndar, í sam­bandi við þau tengsl sem hann hefur við hval­veið­arnar á Íslandi – ég er að tala um það að sonur hans er for­maður hrefnu­veiði­manna, hann er eig­andi þess­arar hrefnu­út­gerðar – ég bara spyr, er ekki for­maður atvinnu­vega­nefndar bull­andi van­hæfur að taka á svona málum?“ sagði for­maður Ferða­mála­sam­tak­anna í við­tal­inu á Bylgj­unni.

Í manninn en ekki boltann

Stundin hafði sam­band við Jón Gunn­ars­son sem telur að um ómak­legar aðdrótt­anir sé að ræða. „Það hefur verið reglan hjá honum og fleirum sem tjá sig um þetta sem and­stæð­ingar hval­veiða að reyna að gera fólk tor­tryggi­legt, fara frekar í mann­inn heldur en bolt­ann,“ segir þing­mað­ur­inn.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Hvalveiðar

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár