Segir Öldu Hrönn hafa framið lögbrot

Fyrr­ver­andi hæsta­rétt­ar­dóm­ari segir yfir­lög­fræð­ing lög­regl­unnar á höf­uð­borg­ar­svæð­inu hafa framið lög­brot. Áframsendi einka­póst sem hún fékk fyrir slysni. Ýmsar spurn­ingar vakna þó mál­inu sé stjórn­sýslu­lega lokið.

Segir Öldu Hrönn hafa framið lögbrot
Sökuð um lög­brot Alda Hrönn, yfir­lög­fræð­ingur lög­regl­unnar á höf­uð­borg­ar­svæð­inu og hægri hönd lög­reglu­stjóra komst yfir einka­póst og sendi hann í ýmsar áttir. Mynd: RÚV

Jón Steinar Gunn­laugs­son, fyrr­ver­andi hæsta­rétt­ar­dóm­ari, segir Öldu Hrönn Jóhanns­dóttur, yfir­lög­fræð­ing lög­regl­unnar á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, hafa framið lög­brot með með­ferð sinni á einka­pósti sem hún fékk í hendur fyrir slysni. Með því að áfram­senda einka­póst sem vinir sendu sín á milli, og hún fékk fyrir mis­tök, „til ein­hverra ráð­herra og þjóð­leik­hús­ráðs“ hafi hún gerst brot­leg við 9. máls­grein 47. greinar fjar­skipta­laga. Þetta full­yrðir Jón Steinar í aðsendri grein í Morg­un­blað­inu í dag, en hún ber yfir­skrift­ina „Hnýsni í einka­mál ann­arra“. Lögin kveða á um allt að tveggja ára refs­ingu við brotum sem þessum. „Jú jú, ég er að benda á að þarna er laga­á­kvæði sem er aug­ljós­lega brotið og hún gerði það,“ segir Jón Steinar í sam­tali við Stundina. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Valdatafl í lögreglunni

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár