Formaður LMFÍ segir Bjarta framtíð og Viðreisn hafa sýnt virðingaleysi fyrir vandaðri stjórnsýslu

Reimar Pét­urs­son, for­maður Lög­manna­fé­lag Íslands, gagn­rýnir skip­anir Sigríðar við Lands­rétt harð­lega í grein í Lög­manna­blað­inu. Þá segir hann að ráð­ast þurfi taf­ar­laust í aðgerðir svo að sátt geti ríkt við ráðn­ingar í fram­tíð­inni.

Sigríður Andersen dómsmálaráðherra
Sigríður Andersen dóms­mála­ráð­herra Reimar segir Sigríði hafa mis­tek­ist að byggja ákvörðun sína á mál­efna­legum sjón­ar­miðum og full­nægj­andi rann­sókn. Mynd: Pressphotos

Reimar Pét­urs­son, for­maður Lög­manna­fé­lags Íslands, gerir dóm­ara­skipan Sigríðar Andersen dóms­mála­ráð­herra við Lands­rétt að umfjöll­un­ar­efni sínu í grein Lög­manna­blaðs­ins sem kom út í dag. Í grein­inni gagn­rýnir Reimar vinnu­brögð Sigríðar harð­lega, segir Bjarta fram­tíð og Viðreisn hafa sýnt af sér virð­inga­leysi fyrir vand­aðri stjórn­sýslu og sjálf­stæði dóm­ara og að ráð­ast þurfi taf­ar­laust í aðgerðir svo að sátt ríki við dóm­ara­skip­anir í fram­tíð­inni.

Tilefni greina­skrifa Reimars var til­laga Sigríðar Andersen um skipan dóm­ara sem fól í sér að fjórum umsækj­endum, sem nefnd um dóm­nefnd hafði metið í hópi 15 hæf­ustu umsækj­enda, var skipt út fyrir aðra fjóra umsækj­endur sem allir eru starf­andi hér­aðs­dóm­arar. Þetta gerði ráð­herra undir þeim for­merkjum að hún teldi nefnd­ina ekki hafa gefið dóm­ara­reynslu nægi­legt vægi í hæfn­is­mati sínu.

Samkvæmt til­lögu Sigríðar sem Alþingi sam­þykkti í byrjun mán­að­ar­ins var karl­maður, Jón Finn­björns­son, sem lenti í 30. sæti á lista dóm­nefnd­ar­innar færður upp fyrir fimm konur sem metnar höfðu verið hæf­ari en hann. Bent hefur verið á að Jón er eig­in­maður Erlu S. Árna­dóttur sem var vinnu­veit­andi Sigríðar Andersen dóms­mála­ráð­herra til margra ára hjá lög­manns­stof­unni Lex. Jafn­framt var Arn­fríður Ein­ars­dóttir, eig­in­kona Brynjars Níels­sonar, þing­manns Sjálf­stæð­is­flokks­ins og for­manns stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefndar, skipuð dóm­ari, en hún hafði lent í 18. sæti á lista dóm­nefnd­ar­innar þrátt fyrir margra ára reynslu af dóm­ara­störfum.

„Ráðherra kaus að ganga gegn umsögn dóm­nefnd­ar­innar. Sér­stakar reglur bundu hendur ráð­herra þegar hann gerði það. Ráðherra varð samt sem áður að velja hæf­asta umsækj­and­ann og byggja ákvörðun sína á mál­efna­legum sjón­ar­miðum og full­nægj­andi rann­sókn. Ráðherra mistókst. Sjón­ar­mið ráð­herra var að gefa dóm­ara­reynslu aukið vægi. Nið­ur­stöðu ráð­herra skorti rök­rétt sam­hengi við það sjón­ar­mið,“ segir í grein Reimars.

Þá segir Reimar Alþingi hafa skort skiln­ing á hlut­verki sínu við skipun dóm­ara við Lands­rétt. „Ráðherra var skylt að leggja til­lögur sínar um skipun lands­rétt­ar­dóm­ara fyrir Alþingi til sam­þykktar. Jafn­framt var ráð­herra skylt að afla heim­ildar Alþingis til að víkja frá umsögn dóm­nefnd­ar­innar. Í þessu fyr­ir­komu­lagi fólst ekki heim­ild ráð­herra til að beita geð­þótta við til­lögu­gerð­ina. Þvert á móti fólst í þessu sér­stök vörn gegn geð­þótta­á­kvörðun hans. Alþingi virð­ist hafa skort skiln­ing á þessu. Formenn tveggja stjórn­ar­flokka upp­lýstu til dæmis eftir afgreiðslu þings­ins að þeirra þing­flokkar hafi til­kynnt ráð­herra þegar umsögnin lá fyrir að nið­ur­staða nefnd­ar­innar „færi ekki í gegn.“ Áður yrði að leið­rétta „kynja­halla“,“ segir Reimar.

Reimar segir kröfu þing­flokk­anna tveggja stand­ast illa lög. Notkun kynja­sjón­ar­miða til að skáka út hæf­ari umsækj­endum sé nefni­lega and­stæð lögum og stjórn­ar­skrá. „Því gat aldrei komið til álita að hafna nið­ur­stöðu nefnd­ar­innar á þessum for­sendum nema fyrir lægi vönduð rann­sókn sem stað­festi að til staðar væru jafn­hæfir umsækj­endur af mis­mun­andi kyni. Eftir að ráð­herra var gerður aft­ur­reka virð­ist hann enga til­raun hafa gert til að fram­kvæma rann­sókn sem þessa í þágu kynja­sjón­ar­miða.“

Hann segir heldur ekki aug­ljóst hvernig slík rann­sókn hefði getað leitt til þeirrar nið­ur­stöðu sem þing­flokk­arnir kröfð­ust. Næstu tvær konur á lista væru nefni­lega í 18. og 19. sæti eða talvsert fyrir neðan neðstu tvo karl­ana í mati dóm­nefnd­ar­innar, en þeir voru í 12. og 14. sæti.

Reimari þykir sér­kenni­legt að afskipti stjórn­ar­flokk­anna tveggja af fram­setn­ingu list­ans hafi ekki komið fram við umræður á Alþingi. „Í nefnd­ar­á­liti meiri­hluta stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefndar er þess í stað lögð áhersla á að Alþingi hafi ekki frum­kvæði að hvernig ráð­herra beitir til­lögu­valdi sínu. Alþingi hafi aðeins „eft­ir­lit“ með lög­mæti vinnu­bragða og til­lögu­gerðar ráð­herra. Fyr­ir­fram afskipti stjórn­ar­flokk­anna af til­lögu­gerð ráð­herra sam­rým­ast vart slíku eft­ir­liti. Þessu hljóta þeir þing­menn sem um teflir að hafa gert sér grein fyrir. Með því að ákveða fyr­ir­fram að málið „færi ekki í gegn“ hafa þeir því gerst berir að tví­skinn­ungi og virð­ing­ar­leysi fyrir vand­aðri stjórn­sýslu, réttar­ör­yggi og sjálf­stæði dóm­stóla,“ segir Reimar.

Þá þykir Reimari atburð­ar­rásin við skipan dóm­ar­anna til þess fallin að ala á þeirri trú meðal almenn­ings að eitt­hvað annað en hæfni hafi ráðið við val á dóm­urum. „Fyrir dyrum stendur að skipa átta nýja hér­aðs­dóm­ara og mik­il­vægt er að ráð­herra og meiri­hluti Alþingis bregð­ist við þegar í stað til að vinna aftur til­trú almenn­ings. Til að svo megi verða þarf að ráð­ast taf­ar­laust í aðgerðir sem um ríkir víð­tæk sátt.“

Ástráður Har­alds­sonHefur kært ákvörðun Sigríðar.

Tveir af þeim dóm­urum sem Sigríði skipti út hafa ákveðið að kæra skip­un­ina. Annar þeirra er Ástráður Har­alds­son, en hann var einnig met­inn meðal fimmtán hæf­ustu. Ástráður og stjórn­mála­skoð­anir hans höfðu meðal ann­ars verið til umfjöll­unar í háðs­grein í vefriti sem meðal ann­ars var rit­stýrt af Sigríði Andersen, en Ástráður hafði þá gegnt trún­að­ar­störfum fyrir Vinstri hreyf­ing­una - grænt fram­boð og Alþýðu­banda­lagið á árum áður.

Hinn er Jóhannes Rúnar Jóhanns­son hæsta­rétt­ar­lög­maður. „Það er vald­níðsla þegar stjórn­vald mis­notar opin­bert vald með þeim hætti að ólög­mæt og ómál­efn­an­leg sjón­ar­mið, svo sem vin­átta, flokks­hags­munir eða óvild, ráða ákvörðun þess,“ sagði Jóhannes þegar hann til­kynnti að hann hygð­ist kæra íslenska ríkið vegna máls­ins. „Ég, sem umsækj­andi um emb­ætti dóm­ara við Lands­rétt, hæsta­rétt­ar­lög­maður og borg­ari í þessu landi, get ekki sætt mig við að réttur sé brot­inn á ein­stak­lingum, eins og hér háttar til, án þess að bregð­ast við. Háttsemi af þessu tagi á ekki að líð­ast,“ sagði Jóhannes Rúnar í yfir­lýs­ingu sinni til fjöl­miðla vegna máls­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

ACD-ríkisstjórnin

Fréttir

Unnu náið með hæsta­réttar­dóm­ur­unum meðan þeir dæmdu Arn­fríðar­mál

Arn­fríður Ein­ars­dóttir lands­rétt­ar­dóm­ari starf­aði sjálf sem vara­dóm­ari með tveimur þeirra hæsta­rétt­ar­dóm­ara sem tóku afstöðu um hæfi hennar og bærni til að kveða upp dóma á sama tíma og málið var til með­ferðar. Hinir þrír sem valdir voru í Lands­rétt í trássi við stjórn­sýslu­lög störf­uðu einnig náið með hæsta­rétt­ar­dóm­ur­unum meðan Hæsti­réttur tók fyrir mál sem hefði getað sett dóm­ara­störf fjór­menn­ing­anna í upp­nám.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár