Samfylking skilaði hagnaði upp á 21 milljón

Eigið fé Sam­fylk­ing­ar­innar nam 66 millj­ónum króna í árs­lok 2015 og hagn­að­ist flokk­ur­inn um rúma 21 milljón á síð­asta ári . Þetta kemur fram í árs­reikn­ingi félags­ins en tutt­ugu einka­fyr­ir­tæki styrktu flokk­inn á síð­asta ári.

Samfylking skilaði hagnaði upp á 21 milljón

 Sam­fylk­ingin fékk rúmar 48 millj­ónir króna frá íslenska rík­inu í fyrra, rúmar tólf millj­ónir frá sveit­ar­fé­lögum og tæpar fimm millj­ónir frá lög­að­ilum. Þá námu fram­lög ein­stak­linga rúmum sextán millj­ónum króna árið 2015 og voru fram­lögin í heild­ina tæpar 82 millj­ónir króna.

Þetta kemur fram í árs­reikn­ingi Sam­fylk­ing­ar­innar sem hefur að hluta til verið birtur á vef Rík­is­end­ur­skoð­unar.

Eigið fé Sam­fylk­ing­ar­innar hækk­aði um tutt­ugu millj­ónir á milli ára, frá 44.720.595 krónum í 66.152.200 í lok árs 2015. Athygli vekur að rekstr­ar­kostn­aður flokks­ins lækk­aði tölu­vert á milli ára eða um tæpar 40 millj­ónir króna. Fór frá 109,6 millj­ónum í 68,7 millj­ónir í fyrra. Það má eflaust rekja til sveit­ar­stjórn­ar­kosn­inga sem fóru fram árið 2014.

Athygli vekur að í skýr­ingu 4. undir „Aðrar tekjur“ í útdrætti árs­reikn­ings Sam­fylk­ing­ar­innar kemur fram að flokk­ur­inn hafi haft rúmar sex millj­ónir í leigu­tekjur og 218 þús­und krónur í flokks­gjöld. Undir „Aðrar tekjur“ eru hins­vegar skráðar rúmar sjö millj­ónir króna. Ekki er þó vitað hvaða tekjur það eru en þó má leiða líkum að því að þetta sé til komið vegna sölu á ýmsum varn­ing tengdum Sam­fylk­ing­unni.

Hér fyrir neðan er hægt að sjá fram­lög þeirra sveit­ar­fé­laga, lög­að­ila og ein­stak­linga sem studdu Sam­fylk­ing­una á síð­asta ári. Þess ber að geta að aðeins eru til­greind þau fram­lög ein­stak­linga sem voru umfram 200 þús­und krónur. Fyrir þá sem vilja sjá útdrátt­inn í heild sinni geta smellt hér.

Framlög sveitarfélaga:

  • Akra­nes­kaup­staður               224.598 krónur
  • Akur­eyr­ar­kaup­staður           356.471
  • Fjalla­byggð                                 92.660
  • Garðabær                                  346.951
  • Grinda­vík­ur­bær                     150.567
  • Hafn­ar­fjarð­ar­kaup­staður   858.500
  • Kópa­vogs­bær                       1.032.055
  • Mos­fells­bær                             296.907
  • Reykja­nes­bær                         810.778
  • Reykja­vík­ur­borg                 8.165.000

Samtals:                                12.539.487 krónur

Framlög lögaðila:

  • Bláa lónið hf                             200.000
  • Brim                                            100.000
  • Gullberg                                     250.000
  • HB Grandi hf                            400.000
  • Hof­garðar ehf                           400.000
  • Höldur ehf                                 400.000
  • Hrað­frysti­húsið Gunnvör hf 400.000
  • Icelandair Group                      300.000
  • Kollgáta ehf                                130.000
  • Kvika banki hf                            200.000
  • Lyfja hf                                         100.000
  • Mannvit verk­fræði­stofa         400.000
  • Miðeind ehf                               400.000
  • Nes­fiskur ehf.                              25.000
  • Nor­landair ehf                            50.000
  • Reginn hf                                     400.000
  • Samherji Íslands ehf               400.000
  • Síld­ar­vinnslan hf                      400.000
  • Skakki­turn ehf                            200.000
  • Tannfé slf                                        22.500

Samtals                                       4.927.500 krónur

Framlög einstaklinga umfram 200 þúsund:

  • Arna Ír Gunn­ars­dóttir              209.000
  • Árni Páll Árnason                       360.000
  • Björk Vil­helms­dóttir                  213.220
  • Dagur B. Egg­ertssson                304.925
  • Heiða Björg Hilm­is­dóttir         288.895
  • Hjálmar Sveins­son                     300.000
  • Kristín Soffía Jóns­dóttir           300.000
  • Marta Sig­urð­ar­dóttir                 353.264
  • Pétur Hrafn Sig­urðs­son           260.000
  • Skúli Helgason                            300.000
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Alþingiskosningar 2016

Mest lesið

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Spurningaþraut Illuga: Noregskonungar, viskugyðjur og eitt fjall
5
Þrautir

Spurn­inga­þraut Illuga: Nor­egs­kon­ungar, visku­gyðjur og eitt fjall

Hver var Nor­egs­kon­ungur þá Íslend­ingar gengu Norð­mönnum á hönd – að minnsta kosti sam­kvæmt hefð­bund­inni sögu­skoðun? Hvað heitir sú kona í Banda­ríkj­unum sem var fyrir rétti sökuð um að myrða börn sín þrjú? Ann­að­hvort skírnar- eða eft­ir­nafn dugar. Árið 1975 var Jónas Krist­jáns­son rek­inn sem rit­stjóri Vísis og stofn­aði þá ásamt sam­starfs­fólki nýtt dag­blað. Hvað nefnd­ist það? Hvað heitir nýorðin...

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár