Rektor Karolinska segir af sér út af Macchiarini-málinu: Gögn frá Íslandi lykilatriði í ákvarðanatöku hans

Rektor Karol­inska Institu­tet í Stokk­hólmi, Anders Hamsten, hefur sagt sér út af Macchiarini-mál­inu. Ein af ástæð­unum fyrir breyttri sýn hans á Macchiarini-málið eru gögn með upp­lýs­ingum frá Íslandi. Í heim­ild­ar­mynd sem sænska sjón­varpið sýndi nýlega er birt mynd­band af rann­sókn á Andemariam Beyene á Land­spít­al­anum sem tekið var upp fyrir heim­ild­ar­mynd Elínar Hirst um stofn­frumu­rann­sóknir.

Rektor Karolinska segir af sér út af Macchiarini-málinu: Gögn frá Íslandi lykilatriði í ákvarðanatöku hans
Þegar sagt var aðgerðin hefði heppn­ast Rektor Karol­inska Institu­tet hefur nú sagt af sér út af Macchiarini-hneyksl­inu. Málið teng­ist Íslandi með ýmis konar hætti en mynd­band af rann­sókn á fyrsta plast­barka­þeg­anum í heim­inum, sem tekið var upp á Land­spít­al­anum, er lyk­il­gagn í mál­inu. Andemariam Beyene sést hér með Paolo Macchiarini og Tómasi Guð­bjarts­syni á mál­þingi í Háskóla Íslands frá sumr­inu 2012 þegar talað var um að aðgerðin á Andemariam hefði verið vel heppnuð. Mynd: Skjáskot úr Experimenten á SVT

Rektor háskól­ans Karol­inska Institu­tet í Stokk­hólmi, Anders Hamsten, hefur sagt af sér vegna Macchiarini-máls­ins svo­kall­aða. Hann greinir frá þessu í grein í sænska dag­blað­inu Dagens Nyheter á morgun, laug­ar­dag, en greinin var birt á vef­svæði blaðs­ins klukkan tólf á mið­nætti aðfara­nótt laug­ar­dags­ins.

Afhjúpandi myndband

Í grein­inni vísar Hamsten til gagna, upp­lýs­inga frá Íslandi sem einni af helstu ástæð­unum fyrir því að hann ákveður að segja af sér en þau gögn eru talin renna stoðum undir að ítalski skurð­lækn­ir­inn Paolo Macchiarini hafi gerst sekur um vís­inda­legt mis­ferli í rann­sóknum sínum á plast­börkum.

Hvaða upp­lýs­ingar þetta eru liggur ekki fyrir en hugs­an­legt er að um sé að ræða mynd­band sem tekið var upp á Land­spít­al­anum og eða önnur gögn sem tengj­ast þeirri rann­sókn eða öðrum sem gerðar voru á Andemariam á Íslandi. Hugs­an­legt er jafn­vel að Land­spít­al­inn hafi látið Karol­inska Institu­tet í té ein­hverjar upp­lýs­ingar úr sjúkra­sögu Andemari­ams Beyene sem þótt hafa mik­il­vægar en í svari frá Land­spít­al­anum til Stund­ar­innar hefur komið fram að sjúkra­húsið aðstoði við rann­sókn máls­ins: „Land­spít­ali er nú þegar í sam­starfi við rann­sókn­ar­að­ila máls­ins erlendis.“

Mynd­bandið sem um ræðir var tekið upp á Land­spít­al­anum þann 16. ágúst 2011 vegna heim­ild­ar­myndar sem núver­andi þing­kona Sjálf­stæð­is­flokks­ins, Elín Hirst, gerði um stofn­frumur en hún vann við fjöl­miðla um ára­bil áður en hún sett­ist á þing. Á mynd­band­inu sést fyrsti plast­barka­þeg­inn í heim­inum, Andemariam Beyene, Erít­reu­maður sem búsettur var á Íslandi, í berkju­skoðun á Land­spít­al­anum hjá lækn­unum Tómasi Guð­bjarts­syni og Óskari Ein­ars­syni. Tveimur mán­uðum áður hafði Andemariam Beyene geng­ist undir aðgerð hjá Paolo Macchiarini á Karol­inska-sjúkra­hús­inu í Stokk­hólmi en auk ítal­ans var Tómas Guð­bjarts­son einn af skurð­lækn­unum sem fram­kvæmdi aðgerð­ina þar sem plast­barki var græddur í hann. Heim­ild­ar­mynd Elínar Hirst má horfa á hér á Youtube.

Mynd­bandið af berkju­spegl­un­inni sem notað var að hluta til í heim­ild­ar­mynd Elínar var sýnt í heim­ild­ar­mynd í þremur hlutum sem sænski blaða­mað­ur­inn Bosse Lindqist hjá sænska rík­iss­sjón­varp­inu sýndi í Svíþjóð nú fyrir skömmu. Tekið skal fram að miklu meira er sýnt af barka­spegl­un­inni í heim­ild­ar­mynd Bosse Lindqvist en í heim­ild­ar­mynd Elínar Hirst enda fjall­aði heim­ild­ar­mynd hennar bara að hluta til um plast­barka­að­gerð­ina á Andemariam Beyene. Þessi sænska heim­ild­ar­mynd hefur leitt af sér þá umræðu um Paolo Macchiarini og rann­sókn­ar­að­ferðir hans og aðgerðir sem aftur hefur leitt til afsagnar rekt­ors­ins. Hér er hægt er að horfa á heim­ild­ar­mynd­ina á milli landa á vef­svæði sænska rík­is­sjón­varps­ins.

Segir af sér
Segir af sér Anders Hamstein hefur sagt af sér sem rektor Karoinska Institu­tet og vísar meðal ann­ars til upp­lýs­inga frá Íslandi sem hluta ástæð­unnar.

„Á mið­viku­dag­inn fengum við aðra mynd af tíma fyrsta sjúk­lings­ins á Íslandi“

Önnur mynd vegna gagna frá Íslandi „á miðvikudaginn“

Orðrétt segir Hamstein í grein­inni: „Síðustu daga hefur það orðið ljóst að þær for­sendur sem lágu til grund­vallar þegar málið var rann­sakað voru ófull­nægj­andi. Á mið­viku­dag­inn fengum við aðra mynd af tíma fyrsta sjúk­lings­ins á Íslandi eftir aðgerð­ina en hans til­felli liggur til grund­vallar í nokkrum vís­inda­greinum Macchiarinis. Karol­inska Institu­tet hefur einnig fengið upp­lýs­ingar um að alvar­legar gallar séu í grein sem lýsir til­raunum með gervi­barka sem gerðar voru á rottum. Þessar upp­lýs­ingar eru alveg nýjar fyrir KI [Karol­inska Institu­tet], en það er margt sem bendir til að breyta þurfi nið­ur­stöðu KI frá því síð­asta sumar í að óná­kvæmni í rann­sóknum hafi átt sér stað, sem á hvers­dags­sænsku þýðir aug­ljóst fúsk í rann­sóknum.“ Hann segir hafa „metið Paolo Macchiarini með nán­ast full­kom­lega röngum hætti“ og að Karol­inska Institu­tet hefði átt að klippa á tengsl sín við ítalska skurð­lækn­inn fyrir löngu.

Upplýsingarnar leiddu til annarrar niðurstöðu

Þegar umrædd nið­ur­staða KI um að að Paolo Macchiarinis hefði ekki gerst sekur um mis­ferli lá fyrir í fyrra sagði Tómas Guð­bjarts­son að nið­ur­staða skól­ans væri „áfell­is­dómur“ yfir rann­sókn sem óháði rann­sak­and­inn Bengt Gerdin gerði á rann­sókn­ar­að­ferðum Macchiarinis og vís­inda­greinum hans en Gerdin sagði Macchiarini hafa gerst sekan um mis­ferli í rann­sóknum sínum. Tómas gagn­rýndi meðal ann­ars að ekk­ert sam­ráð hefði verið haft við hann og íslenska aðila við rann­sókn máls­ins. Tómas hafði sent gögn til Karol­inska Institut í fyrra áður en háskól­inn komst að sinni nið­ur­stöðu. Þau gögn lágu meðal ann­ars til grund­vallar þegar háskól­inn komst að annarri nið­ur­stöðu í lok ágúst í fyrra en Gerdin og hélt því fram að Macchiarini hefði ekki gerst sekur um mis­ferli í rann­sóknum.

Nú hafa upp­lýs­ingar, gögn frá Íslandi hins vegar leitt til þess að rektor Karol­inska telur Macchiarini sann­ar­lega hafa gerst sekan um vís­inda­legt mis­ferli. Þessi nið­ur­staða gefur til­efni til að ætla að vit­neskja Hamstens um rann­sóknir Macchiarinis sé það góð að lík­legt megi telja að nið­ur­staðrar ann­arrar óháðrar rann­sóknar á Macchiarini-mál­inu sem háskól­inn lætur gera verði að mis­ferli hafi átt sér stað. Nið­ur­staðan úr þeirri rann­sókn verður kynnt í sumar í fyrsta lagi.

Gögn, upp­lýs­ingar um Andemariam Beyene hafa því átt þátt í því ann­ars vegar að leiða til þess í fyrra Macchiarini var ekki talin hafa gerst sekur um vís­inda­legt mis­ferli en nú leiða gögn frá Íslandi um Andemariam Beyene til þess að rektor Karol­inska Institu­tet kemst að þeirri nið­ur­stöðu að hann sé sann­ar­lega sekur um mis­ferli. 

„Ekki eins og eðli­legur barki“

Macchiarini og Tómas töluðu með ólíkum hætti um plastbarkann

Í heim­ild­ar­mynd sænska rík­is­sjón­varps­ins ber blaða­mað­ur­inn Bosse Lindqvist mynd­bandið af rann­sókn­inni á hálsi Andemari­ams Beyene saman við orða­lag Paolo Macchiarinis í grein um aðgerð­ina á honum sem birt var í lækna­tíma­rit­inu Lancet í nóv­em­ber 2011. Þar kom fram að önd­un­ar­vegur Andemari­ams hefði verið „næstum því eðli­legur“ fimm mán­uðum frá aðgerð­inni. Mynd­bandið frá Íslandi eftir tvo mán­uði sýnir hins vegar að önd­un­ar­veg­ur­inn var langt frá því að vera „næstum því eðli­legur“ en í heim­ild­ar­mynd Elínar Hirst segir Tómas Guð­bjarts­son um stöð­una á hálsi Andemari­ams að bark­inn sé „ekki eins og eðli­legur barki“. Mark­miðið var að nota stofn­frumur til að gera bark­ann að því sem næst eðli­legum barka eins og Tómas útskýrði í mynd­inni í við­tali við Elínu: „En þegar maður tekur töng­ina og kroppar í vegg­inn þá sérðu að það fer að blæða og þegar þú skoðar það í smá­sjá þá sérðu að það eru þarna önd­un­ar­færa­frumur sem eru að þekja gervi­líf­færi úr plasti.“ Með orðum sínum var Tómas að vísa til berkju­rann­sókn­ar­innar sem hann og Óskar Ein­ars­son gerðu í ágúst 2011.  

Tómas not­aði því annað orða­lag til að lýsa plast­bark­anum en Paolo Macchiarini gerði síðar í Lancet-grein­inni þegar hann lýsti mati sínu á stöðu barkans eftir fimm mán­uði. Tómas og Óskar voru hins vegar með­höf­undar grein­ar­innar sem Macchiarini er aðal­höf­und­ur­inn að þar sem bark­anum var lýst sem „næstum því eðli­legum“ eftir fimm mán­uði. Sem með­höf­undar bera þeir ábyrgð á því sem kemur fram í grein­inni og er þetta sér­stak­lega tekið fram í grein­inni. Ekki liggur hvort og þá hvenær þeir Óskar og Tómas lásu grein­ina sem birt var í Lancet. 

Nú liggur fyrir að sú stofn­frumu­að­ferð sem notuð var á Andemariam virkar ekki og hafa að minnsta kosti fimm aðrar mann­eskjur dáið sem fengu græddan í sig plast­barka með sömu aðferð. Í grein sinni vísar Hamsten einnig til rann­sókna á rottum sem ástæðu fyrir afsögn sinni. Þarna er Hamsten að vísa til þess að fyrst ári eftir aðgerð­ina á Andemariam var plast­barka­að­gerðin prófuð á rottum. Aðferðin virk­aði heldur ekki á rottur en Macchiarini skrif­aði samt í vís­inda­grein að rann­sókn­irnar hefðu sýnt að lík­ami rott­unnar hefði tekið við bark­anum líkt og eðli­legu líf­færi. Einn af lækn­unum sem gerði þessa rann­sókn á rott­unni bað um að nafn hans yrði ekki á grein­inni um rottu­rann­sókn­ina þar sem hann vissi að nið­ur­stöður hennar voru fals­aðar. 

Miklvægt myndband
Miklvægt mynd­band Mynd­bandið af berkju­spegl­un­inni sem tekið var upp vegna heim­ild­ar­myndar Elínar Hirst um stofn­frumu­rann­sóknir er mikl­vægt og afhjúp­andi gagn í Macchiarini-mál­inu.

Niðurstöður úr annarri berkjuspeglun liggja ekki fyrir

Óskar og Tómas gerðu aðra berkju­speglun á Andemariam í októ­ber 2011, rúmum mán­uði áður en greinin með þess­ari lýs­ingu Paolo Macchiarinis var birt. Nið­ur­stöð­urnar úr þess­ari berkju­speglun hafa ekki verið gerðar opin­berar en því liggur ekki fyrir hvað þeir Óskar og Tómas sáu í rann­sókn­inni þá. Í heim­ild­ar­mynd­inni hja sænska rík­is­sjón­varp­inu kemur hins vegar fram að eftir átta mán­uði var sett stoð­net í háls Andemari­ams Beyene til að hjálpa honum að anda. Paolo Macchiarini vissi um stoð­netið þar sem hann var við­staddur þegar það var sett í Andemariam en sagði ekki frá því í grein sem hann skrif­aði um aðgerð­ina á Andemariam eftir að þetta var gert og þetta kom heldur ekki fram í umræðu í tengslum við mál­þing í Háskóla Íslands um sum­arið 2012 þar sem barka­að­gerð­inni á Andemariam var lýst sem vel heppn­aðri. Um svipað leyti og mál­þingið var haldið lá líka fyrir að stofn­frumu­með­ferðin virk­aði ekki við ígræðslu plast­barka í rottur. 

Land­spít­al­inn hefur hafnað beiðni Stund­ar­innar um að blaðið fái aðgang að nið­ur­stöð­unum úr þeirri berkju­speglun sem gerð var í októ­ber 2011 en hún gæti varpað enn frekara ljósi á hvernig staðan á plast­bark­anum var í raun þá og hversu nálægt sann­leik­anum lýs­ing Macchiarinis á plast­bark­anum í Lancet-grein­inni var. Þá liggur ekki fyrir hver vit­neskja Tómasar var um stöð­una á plast­barka Andemari­ams; hvenær hann vissi að stofn­frumu­þáttur aðgerð­innar hefði mis­tek­ist, að plast­bark­inn yrði ekki hluti af lík­ama Andemari­ams Beyne líkt og mark­miðið var og hvenær með­ferð Erít­reu­manns­ins byrj­aði í raun að vera líkn­andi með­ferð . Tómas hefur ekki svarað beiðni Stund­ar­innar um við­tal. Óskar Ein­ars­son vildi ekki ræða málið við Stundina í vik­unni.

Taldi aðgerðina hafa tekist vel

Í við­tali við Frétta­blaðið í fyrra sagði Tómas að það væri ennþá hans mat að aðgerðin á Andemariam hefði heppn­ast vel: „Ég er bara alls ekki sam­mála því. Ég held að þessi aðgerð hafi tek­ist vel. Það komu upp vand­kvæði og það var við­búið, því svona aðgerð hafði aldrei verið gerð áður í heim­inum. Fólk gleymir því að þegar þessi ákvörðun um aðgerð var tekin þá voru lífs­horfur hans mældar í ein­hverjum vikum. Hann náði þó þremur árum. Síðasta árið var dálítið erfitt. En hann átti mjög gott fyrsta ár, gat klárað sitt háskóla­nám, Hann gat hugsað um sína fjöl­skyldu, starfað hjá Isor. Þetta finnst mér hafa gleymst í þess­ari harka­legu umræðu sem hefur verið núna í sumar.“

Eitt af því deilt er á í heim­il­ar­mynd Bosse Lindqvist er það mat að Andemariam Beyene hafi aðeins átt vikur eða mán­uði eftir og því hafi aðgerðin var nauð­syn­leg og rétt­læt­an­leg. Um þetta atriði verður örugg­lega fjallað í rann­sókn Karol­inska Institu­tet á Macchiarini-mál­inu. 

Kjósa
2
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Plastbarkamálið

FréttirPlastbarkamálið

Upp­ljóstr­arar: „Plast­barka­málið er ennþá opið sár“

Tveir af upp­ljóstr­ur­unum í plast­barka­mál­inu svo­kall­aða, Karl Henrik Grinnemo og Oscar Simons­son, lýsa reynslu sinni af því að segja frá því sem gerð­ist á Karol­inska-sjúkra­hús­inu þar sem þeir unnu. Karl Henrik seg­ist hafa verið með sjálfs­vígs­hugs­anir eftir að hann varð fyrir hefnd­ar­að­gerðum innan Karol­inska-sjúkra­húss­ins. Þeir segja að upp­gjör­inu við plast­barka­málið sé hvergi nærri lokið í Svíþjóð og að gera þurfi almenni­lega rann­sókn á því þar.

10 mín. lestur

GreiningPlastbarkamálið

Sjúkra­trygg­ingar Íslands voru á „barmi þess“ að brjóta lög í plast­barka­mál­inu

Plast­barka­málið hefur verið til umfjöll­unar í íslenskum og sænskum fjöl­miðlum síð­ast­liðin ár. Viss lúkn­ing er komin í málið með end­an­legum fang­els­is­dómi yfir ítalska skurð­lækn­inum Paulo Macchiarini. Þrjár íslenskar rík­is­stofn­anir komu að mál­inu, sem stimplað hefur verið sem lög­brot, en minnst hefur verið fjallað um aðkomu Sjúkra­trygg­inga Íslands að því.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
3
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár