Aðili

Karolinska Institutet

FréttirPlastbarkamálið

Paolo Macchiarini ekki ákærður í plast­barkamálinu

Ítalski skurð­læknirinn Paolo Macchiarini verður ekki ákærður fyrir manndráp af gáleysi vegna plast­barka­aðgerðanna á þremur einstak­lingum sem hann gerði í Svíþjóð á árunum 2011 til 2013. Fyrsti plast­barkaþeginn, Andemariam Beyene, var sjúklingur á Land­spítalanum og sendi sjúkra­húsið hann á Karolinska-sjúkra­húsið í Stokk­hólmi þar sem hann gekkst undir aðgerðina. Rannsókn stendur nú yfir á plast­barkamálinu á Íslandi.
FréttirPlastbarkamálið

Sænska rann­sóknar­nefndin rannsakar plast­barkamálið á Íslandi í næsta mánuði

Sænsk rann­sóknarnefnd kemur til Íslands í næsta mánuði. Kjell Asplund sem leiðir rann­sóknina á plast­barkamálinu segir að rætt verði við þá aðila sem komu að meðferð Andemariams Beyene. Rann­sóknir sænskra aðila á plast­barkamálinu teygja sig til Íslands með beinum hætti en plast­bark­aðgerðir Paulo Macchiarinis geta leitt af sér ákærur í Svíþjóð, meðal annars fyrir manndráp.
FréttirPlastbarkamálið

Aðgerðin á Andemariam ákveðin áður en hann var sendur til Stokk­hólms

Tölvu­póstur frá Richard Kuylen­sti­erna, lækni á Karolinska-sjúkra­húsinu, til Paulo Macchiarinis sýnir að byrjað var að skipuleggja að græða plast­barka í Andemariam Beyene áður en hann var sendur til Svíþjóðar frá Íslandi. Flugmiði Andemariams sýnir hins vegar að hann vissi ekkert um það þar sem hann ætlaði bara að vera í Svíþjóð í fjóra daga. Macchiarini-málið er orðið að alþjóð­legu hneykslis­máli sem tengist Íslandi náið í gegnum Andemariam og lækni hans Tómas Guðbjartsson.

14 mín. lestur

FréttirPlastbarkamálið

Karolinska-háskólinn vænir Land­spítalann um að hafa haldið upplýsingum um plast­barkaþegann leyndum

Karolinska Institutet í Stokk­hólmi segir heimildar­mynd sænska ríkis­sjón­varpsins segja annan sannleika en upplýsingar frá Land­spítalanum. Tómas Guðbjartsson skurð­læknir sendi Karolinska-háskólanum gögn í fyrra um heilsu­ástand Andemariam Beyene. Þessar upplýsingar voru sagðar mikil­vægar þegar Karolinska sýknaði Paolo Macchiarini í fyrra. Nú eru upplýsingar frá Íslandi lykil­atriði í þeirri niður­stöðu Karolinska að Macchiarini hafi gerst sekur um vísindalegt misferli.
FréttirPlastbarkamálið

Rektor Karolinska segir af sér út af Macchiarini-málinu: Gögn frá Íslandi lykil­atriði í ákvarðana­töku hans

Rektor Karolinska Institutet í Stokk­hólmi, Anders Hamsten, hefur sagt sér út af Macchiarini-málinu. Ein af ástæðunum fyrir breyttri sýn hans á Macchiarini-málið eru gögn með upplýsingum frá Íslandi. Í heimildar­mynd sem sænska sjón­varpið sýndi nýlega er birt myndband af rannsókn á Andemariam Beyene á Land­spítalanum sem tekið var upp fyrir heimildar­mynd Elínar Hirst um stofn­frumu­rannsóknir.

Mest lesið undanfarið ár