Aðili

Karolinska-sjúkrahúsið

Greinar

Björn Zoëga krafinn svara um störf sín fyrir umdeilt sænskt heilbrigðisfyrirtæki í Sameinuðu arabísku furstadæmunum
Fréttir

Björn Zoëga kraf­inn svara um störf sín fyrir umdeilt sænskt heil­brigð­is­fyr­ir­tæki í Sam­ein­uðu arab­ísku fursta­dæm­unum

Björn Zoëga, nýr for­stjóri Karol­inska-sjúkra­húss­ins í Svíþjóð og fyrr­ver­andi for­stjóri Land­spít­al­ans, svarar spurn­ingum um aðkomu sína að umdeildu sænsku heil­brigð­is­fyr­ir­tæki. Fyr­ir­tækið býður upp á heil­brigð­is­þjón­ustu í Sam­ein­uðu arab­ísku fursta­dæm­unum þar sem óléttar konur geta verið fang­els­aðar ef þær eru ógiftar.
Landspítalinn segist ekki ná í ekkju plastbarkaþegans til að veita henni fjárhagsaðstoð
FréttirPlastbarkamálið

Land­spít­al­inn seg­ist ekki ná í ekkju plast­barka­þeg­ans til að veita henni fjár­hags­að­stoð

Hvorki Land­spít­al­inn né Karol­inska-sjúkra­húsið hafa náð tali af Merhawit Bar­ya­mik­ael Tes­faslase, ekkju fyrsta plast­barka­þeg­ans Andemariam Beyene, til að veita henni fjár­hags­að­stoð út af með­ferð sjúkra­hús­anna á eig­in­manni hennar árið 2011. Merhawit fer huldu höfði í Svíþjóð ásamt sonum sínum þremur.
Paolo Macchiarini ekki ákærður í plastbarkamálinu
FréttirPlastbarkamálið

Paolo Macchiarini ekki ákærður í plast­barka­mál­inu

Ítalski skurð­lækn­ir­inn Paolo Macchiarini verður ekki ákærður fyrir mann­dráp af gáleysi vegna plast­barka­að­gerð­anna á þremur ein­stak­lingum sem hann gerði í Svíþjóð á árunum 2011 til 2013. Fyrsti plast­barka­þeg­inn, Andemariam Beyene, var sjúk­lingur á Land­spít­al­anum og sendi sjúkra­húsið hann á Karol­inska-sjúkra­húsið í Stokk­hólmi þar sem hann gekkst undir aðgerð­ina. Rannsókn stendur nú yfir á plast­barka­mál­inu á Íslandi.
Macchiarini yfirheyrður og neitar sök: Landspítalinn sendi gögn
FréttirPlastbarkamálið

Macchiarini yfir­heyrður og neitar sök: Land­spít­al­inn sendi gögn

Ítalski skurð­lækn­ir­inn Paulo Macchiarini neitar ásök­unum um mann­dráp af gáleysi í plast­barka­að­gerð­unum. Andemariam Beyene var sendur til Karol­inska-sjúkra­húss­ins af íslenska lækn­inum Tómasi Guð­bjarts­syni í maí 2011 þar sem ákveðið var að græða í hann plast­barka. Enginn starfs­maður Land­spít­ala hefur verið tek­inn í skýrslu hjá ákæru­vald­inu. Tómas var svo með­höf­undur um að vís­inda­grein um aðgerð­ina á Andemariam þar talað var um að hún hefði heppn­ast vel.
Sænska rannsóknarnefndin rannsakar plastbarkamálið á Íslandi í næsta mánuði
FréttirPlastbarkamálið

Sænska rann­sókn­ar­nefndin rann­sakar plast­barka­málið á Íslandi í næsta mán­uði

Sænsk rann­sókn­ar­nefnd kemur til Íslands í næsta mán­uði. Kjell Asplund sem leiðir rann­sókn­ina á plast­barka­mál­inu segir að rætt verði við þá aðila sem komu að með­ferð Andemari­ams Beyene. Rann­sóknir sænskra aðila á plast­barka­mál­inu teygja sig til Íslands með beinum hætti en plast­bark­að­gerðir Paulo Macchiarinis geta leitt af sér ákærur í Svíþjóð, meðal ann­ars fyrir mann­dráp.
Aðgerðin á Andemariam ákveðin áður en hann var sendur til Stokkhólms
FréttirPlastbarkamálið

Aðgerðin á Andemariam ákveðin áður en hann var sendur til Stokk­hólms

Tölvu­póstur frá Richard Kuy­len­sti­erna, lækni á Karol­inska-sjúkra­hús­inu, til Paulo Macchiarinis sýnir að byrjað var að skipu­leggja að græða plast­barka í Andemariam Beyene áður en hann var sendur til Sví­þjóðar frá Íslandi. Flugmiði Andemari­ams sýnir hins vegar að hann vissi ekk­ert um það þar sem hann ætl­aði bara að vera í Svíþjóð í fjóra daga. Macchiarini-málið er orðið að alþjóð­legu hneyksl­is­máli sem teng­ist Íslandi náið í gegnum Andemariam og lækni hans Tómas Guð­bjarts­son.
Karolinska-háskólinn vænir Landspítalann um að hafa haldið upplýsingum um plastbarkaþegann leyndum
FréttirPlastbarkamálið

Karol­inska-háskól­inn vænir Land­spít­al­ann um að hafa haldið upp­lýs­ingum um plast­barka­þeg­ann leyndum

Karol­inska Institu­tet í Stokk­hólmi segir heim­ild­ar­mynd sænska rík­is­sjón­varps­ins segja annan sann­leika en upp­lýs­ingar frá Land­spít­al­anum. Tómas Guð­bjarts­son skurð­læknir sendi Karol­inska-háskól­anum gögn í fyrra um heilsu­á­stand Andemariam Beyene. Þessar upp­lýs­ingar voru sagðar mik­il­vægar þegar Karol­inska sýkn­aði Paolo Macchiarini í fyrra. Nú eru upp­lýs­ingar frá Íslandi lyk­il­at­riði í þeirri nið­ur­stöðu Karol­inska að Macchiarini hafi gerst sekur um vís­inda­legt mis­ferli.
Rektor Karolinska segir af sér út af Macchiarini-málinu: Gögn frá Íslandi lykilatriði í ákvarðanatöku hans
FréttirPlastbarkamálið

Rektor Karol­inska segir af sér út af Macchiarini-mál­inu: Gögn frá Íslandi lyk­il­at­riði í ákvarð­ana­töku hans

Rektor Karol­inska Institu­tet í Stokk­hólmi, Anders Hamsten, hefur sagt sér út af Macchiarini-mál­inu. Ein af ástæð­unum fyrir breyttri sýn hans á Macchiarini-málið eru gögn með upp­lýs­ingum frá Íslandi. Í heim­ild­ar­mynd sem sænska sjón­varpið sýndi nýlega er birt mynd­band af rann­sókn á Andemariam Beyene á Land­spít­al­anum sem tekið var upp fyrir heim­ild­ar­mynd Elínar Hirst um stofn­frumu­rann­sóknir.

Mest lesið undanfarið ár