Druslustimplun og rasismi blossa upp eftir handtöku hælisleitanda

Fréttir af hand­töku HIV-smit­aðs hæl­is­leit­anda frá Nígeríu rata á erlendar spjall­síður. Gústaf Níelsson sagn­fræð­ingur segir hæl­is­leit­and­ann vera „ást­mögur kven­þjóð­ar­innar“.

Druslustimplun og rasismi blossa upp eftir handtöku hælisleitanda

Fréttir af hand­töku níger­ísks hæl­is­leit­anda, sem grun­aður er um að hafa smitað konur af HIV, hafa vakið upp rasíska umræðu og gild­is­dóma um laus­læti kvenna, svo­kall­aða druslu­stimplun eða druslu­skömmun.

Frétt­irnar hafa meðal ann­ars ratað á erlendar ras­ista­síður. Maðurinn var úrskurð­aður í fjög­urra vikna gæslu­varð­hald í síð­ustu viku, en lög­reglan á höf­uð­borg­ar­svæð­inu rann­sakar málið í sam­starfi við sótt­varn­ar­lækni.

Miklar umræður eiga sér nú stað á rasískum und­ir­síðum vin­sæl­ustu spjall­þráða­síðum heims, 4chan og Reddit, vegna máls­ins. Um er ræða und­ir­síð­una /pol/ á 4chan ann­ars vegar og hins vegar European á Reddit. Í báðum til­vikum er vísað á frétt Iceland Review frá 23. júlí síð­ast­liðnum.

Hælisleitandi
Hæl­is­leit­andi Níger­íu­mað­ur­inn var fluttur fyrir dóm­ara síð­ast­lið­inn fimmtu­dag.
 

„Kvenfrelsi að mega girða niðrum sig“

Ummæli sem hafa fallið á Facebook-síðu Gústafs Níels­sonar sagn­fræð­ings hafa enn­fremur vakið tals­verða athygli. „Fóst­ur­lands­ins Freyja lætur ekki að sér hæða. Auðvitað er það partur af nútíma kven­frelsi að mega girða niðrum sig fyrir gesti og gang­andi standi þannig á, jafn­vel þótt afleið­ing hátt­sem­innar kunni að verða nokkuð útláta­söm fyrir fjársvelt heil­brigð­is­kerfi land­ans. Heil­brigð­is­yf­ir­völdin leita nú log­andi ljósi að tugum kvenna, sem hafa af greið­vikni sinni látið undan ákafa Níger­íu­manns­ins og sínum eigin augna­blikslosta, í því skyni að koma í veg fyrir alvar­legan smit­far­aldur.

„Mér líkar yfir­leitt vel við svert­ingja og tel mig engan ras­ista.“

Ég tek eftir því að eng­inn stjórn­mála­maður hefur árætt að tjá sig um málið nú, og ég spái því að þeir muni heldur ekki þora að gera það yfir­leitt; eng­inn þeirra. Skipu­leggj­endur „Druslu­göng­unnar“, sem svo er nefnd, og stendur fyrir dyrum, ættu auð­vitað að bjóða Níger­íu­mann­inum góða að ganga í stafni, enda nauðg­aði hann engri; fremur að hann væri sem eins konar ást­mögur kven­þjóð­ar­innar.“

Rasismi og druslustimplun

Fjöl­margir hafa skrifað athuga­semdir við færslu Gústafs. Rúna Hjalte­sted Guð­munds­dóttir spyr hvað málið muni kosta íslenska ríkið og hví mað­ur­inn hafi ekki verið sendur úr landi.

Vil­hjálmur Eyþórs­son, sem vakti athygli á dög­unum þegar hann líkti Besta flokknum við fas­ista­hreyf­ingar 20. aldar, segir það kon­unum sjálfum að kenna að hafi þær smit­ast af HIV. „Mér líkar yfir­leitt vel við svert­ingja og tel mig engan ras­ista. Þrátt fyrir það, svo ég tali beint úr pok­anum, finnst mér fátt ógeðs­legra en hvít stelpa sem leggst undir einn þeirra. Ég veit vel að „fjöl­menn­ing­ar­sinnar“ munu froðu­fella í heil­agri vand­læt­ingu þegar þeir sjá þetta, en sorrý, mér finnst þetta bara,“ skrifar Vil­hjálmur.

Bloggari
Bloggari Vil­hjálmur Eyþórs­son lýsir óánægju sinni með að hvít kona eigi í kyn­lífs­sam­bandi við þeldökkan mann.
 

Ragnar Önund­ar­son, fyrrum for­manns­fram­bjóð­andi Sjálf­stæð­is­flokks­ins, spyr í þræð­inum hvort kon­urnar hafi ekki heyrt um smokk­inn. „Hin afríska sveðja lostans lætur slíkt tal sem vind um eyrun þjóta,“ svarar Gúsaf.

Byggt á rangfærslu

Erlendu ras­ist­arnir hneyksl­ast einna mest á því að hæl­is­leit­and­inn hafi haft mök við tutt­ugu íslenskar konur á einu ári. Margir ras­ist­arnir telja íslenskar konur lauslátar og segja það þeim sjálfum að kenna fái þær HIV.

Sú rang­færsla að hæl­is­leit­and­inn hafi smitað tutt­ugu konur virð­ist vera byggð á sænskri frétt um málið á vefnum Islands­bloggen, sem er auk fréttar Iceland Review deilt á umræddum síðum. Rang­færslan virð­ist eiga rót í orða­lagi í frétt Morg­un­blaðs­ins þar sem sagt er að sam­kvæmt heim­ildum blaðs­ins „hafa tvær kon­ur greinst með HIV og á ann­an tug kvenna farið í grein­ingu.“

„Vonandi hefur þessi frétt þau áhrif að Íslend­ingar hafi ekki mök við aðra en Vest­ur­landa­búa“

Í efstu athuga­semd á þræð­inum á European, und­ir­síðu Reddit, spyr not­andi hvernig maður hafi náð að hafa mök við fleiri en tutt­ugu íslenskar konur á innan við ári. Annar not­andi svarar og telur rót­ina liggja í kyn­frelsi Íslend­inga. „Þeir eru hisp­urs­laus­ari hvað kyn­líf varðar en flest önnur lönd. Þegar það voru ein­göngu Íslend­ingar, með fáeinum inn­flytj­endum frá svip­uðum menn­ing­ar­svæðum, þá var hisp­urs­leysi í góðu lagi – Íslend­ingar eru ein glað­asta þjóð í heimi. Ég vona að Ísland, með ein­stakri menn­ingu og fólki, verði ekki eyði­lagt af inn­flytj­endum líkt og Svíþjóð og Bretland. Vonandi hefur þessi frétt þau áhrif að Íslend­ingar hafi ekki mök við aðra en Vest­ur­landa­búa,“ skrifar not­andi Reddit.

Birta myndir af Íslandi

4chan þráð­ur­inn um frétt­ina er nokkuð langur og eru þar birtar myndir af þjóð­þekktum Íslend­ingum, svo sem Margréti Gnarr, Björk og Þórgný Thorodd­sen, vara­borg­ar­full­trúa Pírata í Reykja­vík. Þráðinn má finna hér. Einn not­andi birtir mynd af Þórgný þar sem hann er að prjóna og skrifar: „Íslenskir menn eru að mestu leyti ekki karl­mann­legir. Þeir eru ekki vík­ingar, þeir eru femínistar sem leyfa konum að ráðskast með sig.“

Skjáskot af 4chan
Skjáskot af 4chan
 

Einn not­andi á 4chan seg­ist hafa heim­sótt Ísland fyrir þremur vikum og birtir myndir innan Kaffi­bars­ins og á Lækj­ar­torgi. Hann seg­ist hafa séð menn, dökka á hör­und, með ljós­hærðum stúlkum. 

Á /pol/ und­ir­síð­unni á 4chan eru not­endur merktir með fána eftir því hvaða landi þeir koma. Ljóst er að í það minnsta einn Íslend­ingur skrifar athuga­semdir við þráð­inn. Einn deilir frétt  Vísis um málið og hvetur not­endur til að skrifa þar athuga­semdir. Annar not­andi sem merktur er með íslenskum fána kvartar sáran í sama þræðu undan ferða­mönnum og tor­tím­ingu þeirra á íslenskri nátt­úru.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

HIV-smit

Mest lesið

Búa við nýtt vindorkuver: „Við náttúrlega venjumst öllu“
1
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
4
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár