Dæmdur í nálgunarbann eftir að hafa sett sig í samband við konuna sem kærði hann vegna HIV-smits

„Hæ you should know why I am calling before dropp­ing the call,“ sagði mað­ur­inn í sms-i til kon­unnar. Hvers kyns sam­skipti eru til þess fallin að raska friði hennar að mati Hæsta­réttar.

Dæmdur í nálgunarbann eftir að hafa sett sig í samband við konuna sem kærði hann vegna HIV-smits

Hæl­is­leit­and­anum, sem grun­aður er um að hafa vís­vit­andi smitað konur af HIV-veirunni, var gert að sæta nálg­un­ar­banni í sex mán­uði eftir að hann reyndi að eiga í sam­skiptum við konu sem kærði hann fyrir ólög­mæta mein­gerð í sinn garð með því að hafa smitað hana af sjúk­dómnum. 

Hæsti­réttur stað­festi úrskurð Hér­aðs­dóms Reykja­víkur þess efnis þann 11. nóv­em­ber í fyrra en ekki hefur áður verið fjallað um málið í fjöl­miðlum.

Hæl­is­leit­and­inn var fyrst úrskurð­aður í gæslu­varð­hald og ein­angr­un­ar­vist þann 23. júlí 2015. Þann 19. ágúst var hann svo úrskurð­aður í far­bann og far­bannið fram­lengt með dóms­úr­skurði 16. sept­em­ber. Lög­reglu­stjór­inn á höf­uð­borg­ar­svæð­inu ákvað þann 4. nóv­em­ber 2015 að mann­inum yrði gert að sæta nálg­un­ar­banni í 6 mán­uði „þannig að lagt sé bann við því að hann veiti A, kt. [...], eft­ir­för, hringi í hana, sendi henni smá­skila­boð í gegnum síma eða inter­net eða setji sig í sam­band við hana með öðrum hætti, þar með talið í gegnum aðra aðila eða með aðgangi ann­arra aðila að sam­fé­lags­miðlum og heima­síðum“. Ákvörðun lög­reglu­stjóra var stað­fest með úrskurði Hér­aðs­dóms þann 9. nóv­em­ber og í Hæsta­rétti tveimur dögum síðar.

„Til þess fallið að raska friði hennar“

Í úrskurði Hér­aðs­dóms Reykja­víkur um nálg­un­ar­bannið kemur fram að sam­kvæmt upp­lýs­ingum frá lög­reglu liggi hæl­is­leit­and­inn undir sterkum grun um að hafa í lok sept­em­ber 2015 sent kon­unni, sem kærði hann vegna HIV-smits­ins, skila­boð og vina­beiðni á Facebook undir nýju nafni.

Þriðju­dag­inn þar á eftir hafi verið ósvarað sím­tal á síma kon­unnar úr núm­eri sem hún hafi ekki kann­ast við. Föstu­dag­inn þar á eftir hafi aftur verið hringt til hennar úr sama núm­eri, hún hafi svarað og heyrt strax í mann­inum. Hún hafi ekki talað við hann og skellt fljót­lega á. Maðurinn hafi hringt aftur í hana, hún ekki svarað en en fengið smá­skila­boð frá honum þar sem stóð: „hæ you should know why I am calling before dropp­ing the call“.

Í kjöl­farið tal­aði rétt­ar­gæslu­maður kon­unnar við verj­anda hæl­is­leit­and­ans sem kom því áleiðis til hans að hún vildi ekki að hann setti sig í sam­band við kon­una. Engu að síður hafi mað­ur­inn aftur haft sam­band við hana þriðju­dag­inn 27. októ­ber en hún ekki svarað sím­anum. 

„Lög­reglu­stjóri byggi ákvörðun sína um nálg­un­ar­bann á því að varn­ar­að­ili sé nú sterk­lega grun­aður um að vera að setja sig í sam­band við A með marg­vís­legum hætti sem sé til þess fallið að raska friði hennar veru­lega. Varn­ar­að­ila megi vera ljóst að A vilji ekki að hann setji sig í sam­band við hana enda sýnt að hann reyni að fá sam­band við hana með brögðum, svo sem með því að skipta um nafn á facebook og með því að skipta um síma­númer í þeirri von að hún svari honum,“ segir í úrskurð­inum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Sérðu villu?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

HIV-smit

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár