Pistlahöfundur Wall Street Journal segir Bjarna bera á sig ósannar ásakanir

Pistla­höf­und­ur­inn James K. Glassman er óánægður með að fjár­mála­ráð­herra Íslands bendli sig við vog­un­ar­sjóði í svari við gagn­rýni. „Algjör­lega ósatt,“ segir hann.

James K. Glassman, athafna­maður og pistla­höf­undur Wall Street Journal, segir að Bjarni Bene­dikts­son fjár­mála­ráð­herra saki sig rang­lega um að starfa fyrir vog­un­ar­sjóði. Þetta kemur fram í grein eftir Glassman sem birt­ist í tíma­rit­inu í gær.

Um er að ræða þriðju grein­ina í rit­deilu Glassm­ans og Bjarna sem hófst þegar Glassman líkti Íslandi við Argent­ínu vegna aðgerða stjórn­valda við losun fjár­magns­hafta og aflandskrón­u­út­boð. Sakaði Glassman Íslend­inga um þjösna­skap gagn­vart erlendum fjár­festum og aðför að rétt­ar­rík­inu. 

Bjarni brást skjótt við og svar­aði Glassman fullum hálsi. Hann rakti hvers vegna Ísland neydd­ist til að grípa til fjár­magns­hafta á sínum tíma og leiddi rök að því að sam­an­burð­ur­inn við Argent­ínu væri frá­leitur. Grein Bjarna má sjá í heild á vef fjár­mála­ráðu­neyt­is­ins.

Fram kemur í grein ráð­herra að und­an­farin ár hafi vog­un­ar­sjóðir „eins og skjól­stæð­ingar herra Glassm­ans“ keypt krónu­eignir af upp­haf­legum fjár­festum á miklum afslætti. 

„Það er eitt, og aðeins eitt líkt með Argent­ínu og Íslandi. Eftir efna­hags­hrunið í hvoru landi fyrir sig keyptu vog­un­ar­sjóðir eignir fyrir smá­aura. Þegar þeir verða fyrir von­brigðum með gróð­ann sem þeir fá út úr þessum við­skiptum fylgja greinar eftir tals­menn vog­un­ar­sjóða í kjöl­farið,“ segir í lok grein­ar­innar.

Í svar­grein Glassm­ans sem birt­ist í gær heldur hann fyrri mál­flutn­ingi sínum til streitu og bregst jafn­framt við þeim orðum Bjarna að vog­un­ar­sjóðir séu skjól­stæð­ingar hans. Segir hann ummæli Bjarna „full­kom­lega ósönn“ en mál­flutn­ing­inn þó „alveg eftir bók­inni“. Hér að neðan má sjá skjá­skot af pistl­inum:

 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Hrunið

InnlentHrunið

Segir Margréti leik­stjóra ekk­ert vita um málið: „Þetta er bara sóða­skapur“

Atli Þór Fanndal segir að leik­stjóri Baráttan um Ísland viti „greini­lega ekk­ert um þessi mál,“ en hún blæs á gagn­rýni á heim­ild­ar­mynd­inni. Mikil óánægja gætir á sam­fé­lags­miðlum vegna heim­ild­ar­mynd­ar­innar Baráttan um Íslands sem sýnd var í tveimur pörtum á RÚV á dög­unum, í til­efni af 15 ára afmæli Hrunsins. Gagn­rýnin bein­ist helst að efn­is­tökum mynd­ar­innar, að of mikil áhersla hafi...

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár