„Mjög bagalegt ef týnst hafa persónulegir munir“

Verk­efna­stjóri hjá Útlend­inga­stofnun segir að starfs­menn stofn­un­ar­innar hafi gengið frá eigum hæl­is­leit­anda „með virð­ingu fyrir þeim munum sem mað­ur­inn hafði í híbýlum sínum“.

„Mjög bagalegt ef týnst hafa persónulegir munir“

Skúli Á. Sig­urðs­son, verk­efna­stjóri hæl­is­sviðs hjá Útlend­inga­stofnun, segir að haft hafi verið sam­ráð við íranskan hæl­is­leit­anda áður en starfs­fólk Útlend­inga­stofn­unar tæmdi her­bergi hans og flutti eigur hans á annan stað. Þetta hafi verið gert „á vand­aðan hátt og með virð­ingu fyrir þeim munum sem mað­ur­inn hafði í híbýlum sínum“. 

Um er að ræða sama mann og hót­aði að kveikja í sér fyrir utan höf­uð­stöðvar Rauða kross­ins í lok ágúst. Eins og Stundin greindi frá í sept­em­ber fóru starfs­menn Útlend­inga­stofn­unar inn í íbúð manns­ins og gengu frá eigum hans, meðal ann­ars fjöl­skyldu­myndum, meðan hann var vistaður á geðsviði Land­spít­al­ans. Hæl­is­leit­and­inn hefur sagt að ekki hafi verið haft sam­ráð við sig og gerði starfs­maður Rauða kross­ins athuga­semd við vinnu­brögð Útlend­inga­stofn­unar. 

Í tölvu­pósti Skúla Á. Sig­urðs­sonar til Stund­ar­innar kemur fram að bæði hafi verið rætt við skjól­stæð­ing Útlend­inga­stofn­unar og heil­brigð­is­starfs­fólk áður en her­bergið var tæmt. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Flóttamenn

Fá ekki að læra hér frekar en í Afganistan
FréttirFlóttamenn

Fá ekki að læra hér frekar en í Afganistan

Í Afganistan var þeim bannað að læra. Á Íslandi hafa þær mætt hindr­unum í hvert sinn sem þær hafa reynt að kom­ast í skóla. Þær þrá ekk­ert heitar en að læra íslensku, kom­ast inn í sam­fé­lagið og sækja sér háskóla­menntun. En þær eru fastar; kom­ast ekki út úr störfum sínum sem hót­el­þernur þar sem þær hafa engin tæki­færi til að þjálfa íslensk­una: lyk­il­inn að sam­fé­lag­inu.
Ágreiningurinn um útlendingamálin
Greining

Ágrein­ing­ur­inn um útlend­inga­málin

„Ég tel ekki að slík frum­vörp eigi erindi inn í þingið,“ sagði Svandís Svav­ars­dóttir. „Þar erum við inn­við­a­ráð­herra held ég ósam­mála,“ svar­aði Guðrún Haf­steins­dóttir. Þetta var gam­alt stef og nýtt, að flokk­arnir væru ósam­mála í útlend­inga­málum, en það hafði þó varla verið jafn skýrt fyrr en rétt áður en stjórnin féll, skömmu áður en Guðrún ætl­aði sér að leggja fram frum­varp um lokað búsetu­úr­ræði.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
3
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár