Milljónir í lekamálsráðgjöf en „ekki til neinn peningur í ráðuneytinu“

Notuðu skattfé til að kanna grund­völl mál­sókna gegn blaða­mönnum en vildu ekki aðstoða Erlu Hlyns­dóttur

Milljónir í lekamálsráðgjöf en „ekki til neinn peningur í ráðuneytinu“

Inn­an­rík­is­ráðu­neytið vildi ekki semja við Erlu Hlyns­dóttur blaða­konu um mála­lok í neinu þeirra mála sem hún höfð­aði gegn íslenska rík­inu fyrir Mann­rétt­inda­dóm­stól Evrópu und­an­farin ár. Erla vann öll málin, enda töld­ust meið­yrða­dómar Hæsta­réttar ganga í ber­högg við ákvæði Mann­rétt­inda­sátt­mála Evrópu.  

Gunnar Ingi Jóhanns­son, lög­maður Erlu, var gestur Viku­lokanna á Rás 1 í dag. Fram kom í máli hans að þau Erla hefðu nálg­ast íslenska ríkið og fal­ast eftir sam­komu­lagi, með hlið­sjón af því for­dæmi sem skap­að­ist á síð­asta ára­tug síð­ustu aldar, þegar samið var um ýmis mál sem voru á leið­inni fyrir dóm­stól­inn. Inn­an­rík­is­ráðu­neytið hefði hins vegar ekki viljað semja við Erlu og gefið þær skýr­ingar að litlar líkur væru á að mál hennar ynn­ust. 

Gunnar greindi einnig frá því að þau Erla hefðu tví­vegis leitað eftir því að inn­an­rík­is­ráðu­neytið aðstoð­aði við mála­rekst­ur­inn með minni­háttar fjár­fram­lögum. „Því var hafnað í öllum til­vik­unum á ýmsum for­sendum,“ sagði hann. 

Fram kom að þau Erla hefðu farið á fund ráðu­neyt­is­ins í októ­ber í fyrra og óskað eftir aðstoð. „Þá feng­ust þau svör að það væri nú ekki til neinn pen­ingur í ráðu­neyt­inu,“ sagði Gunnar. Helgi Seljan, sem tók við­talið, spurði hvort þetta hefði ekki verið á sama tíma og verið var að borga lög­manns­stofu fyrir ráð­gjöf í tengslum við leka­málið. „Ég efast ekki um að til hafi verið pen­ingur, enda er ráðu­neytið að kaupa alls kyns lög­fræði­ráð­gjöf. Og ef það var til svona lít­ill pen­ingur þá hefur hann bara farið í þetta,“ sagði þá Gunnar.

Eins og áður hefur komið fram fól inn­an­rík­is­ráðu­neytið lög­manns­stof­unni LEX að kanna hvort umfjöllun fjöl­miðla um leka­málið gæfi til­efni til höfð­unar meið­yrða­máls sum­arið 2014. Þetta var skömmu áður en Erla Hlyns­dóttur fal­að­ist eftir aðstoð vegna mála­rekst­urs­ins fyrir Mann­rétt­inda­dóm­stól Evrópu. 

Alls fékk LEX um 860 þús­und krónur frá hinu opin­bera. Reikn­ing­arnir eru dag­settir 30. apríl og 31. ágúst, en Þórey Vil­hjálms­dóttir aðstoð­ar­kona Hönnu Birnu Krist­jánd­óttur fyrr­ver­andi inn­an­rík­is­ráð­herra, stefndi tveimur blaða­mönnum DV vegna rangrar full­yrð­ingar í frétt og krafð­ist hámarks­refs­ingar yfir þeim í byrjun októ­ber sama ár. Þá hafði frum­grein­ingin á því hvort grund­völlur væri fyrir slíku meið­yrða­máli þegar farið fram á kostnað skatt­greið­enda. Eftir því sem Stundin kemst næst er afar óvenju­legt að rík­is­stofn­anir og ráðu­neyti greiði kostnað af slíkri grein­ingu, enda eru meið­yrða­mál einka­rétt­ar­legs eðlis nema þegar rík­is­sak­sókn­ari höfðar þau á grund­velli almennra hegn­ing­ar­laga. Áður hefur komið fram að Argus mark­aðs­stofa fékk 2,4 millj­ónir króna vegna fjöl­miðla­ráð­gjafar í tengslum við leka­málið.

Inn­an­rík­is­ráðu­neytið hafn­aði því að styðja mála­rekstur Erlu Hlyns­dóttur fyrir Mann­rétt­inda­dóm­stól Evrópu á þeim for­sendum að engir pen­ingar væru til í ráðu­neyt­inu. Fram kom í máli Gunnars Inga að þau Erla hefðu hins vegar talið mik­il­vægt að láta reyna á málin fyrir dóm­stólnum, enda vörð­uðu þau allt starfs­um­hverfi fjöl­miðla og ábyrgð blaða­manna. 

Hér má hlusta á Viku­lokin í heild.

 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Dómsmál

Ógnaði heimilisfólki með heimagerðu sverði
FréttirDómsmál

Ógnaði heim­il­is­fólki með heima­gerðu sverði

Hér­aðs­dómur Vest­ur­lands dæmdi fyrir skömmu mann fyrir lík­ams­árás, hús­brot og akstur undir áhrifum áfengis. Í lýs­ingum vitna er sagt frá því að mað­ur­inn hafi kýlt heim­il­is­mann sem reyndi að koma í veg fyrir að mað­ur­inn kæmi inn um glugga á hús­inu. Þá er einnig sagt frá því að mað­ur­inn hafi á einum tíma­punkti dregið fram heima­gert sverð á sveiflað því í kringum sig fyrir utan húsið.

Mest lesið

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Búa við nýtt vindorkuver: „Við náttúrlega venjumst öllu“
5
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár