Lekamálinu ekki lokið: Hanna Birna snýr aftur

Drög að skýrslu stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefndar kynnt á fundi nefnd­ar­innar í morgun. Óvíst hvenær mál­inu lýkur að hálfu Alþingis. Hanna Birna snýr aftur á þing í mán­uð­inum.

Lekamálinu ekki lokið: Hanna Birna snýr aftur
Snýr aftur á þing í mán­uð­inum Hanna Birna Krist­jáns­dóttir, fyrr­ver­andi inn­an­rík­is­ráð­herra, hefur gefið það út að hún muni snúa aftur til þing­starfa eftir miðjan apríl. Mynd: PressPhotos

Stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefnd Alþingis fund­aði um leka­málið, það er með­ferð trún­að­ar­gagna í stjórn­sýsl­unni og emb­ætt­is­skyldur inn­an­rík­is­ráð­herra, í morgun. Að sögn Ögmundar Jón­as­sonar, for­manns stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefndar, kynnti hann drög að skýrslu um málið og var hún tekin til umfjöll­unar á fund­inum. „Það er ljóst að nefnd­ar­menn vilja gefa sér tíma til þess að gaum­gæfa málið þannig þetta er ekki á leið­inni út úr nefnd á allra næstu dögum. En við áttum ágæta umræðu um málið,“ segir Ögmundur í sam­tali við Stundina. 

Skýrsla stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefndar er hugsuð sem eins konar lyktir í leka­mál­inu. Þar mun birt­ast sam­an­tekt um málið með til­vís­anir í álit Umboðs­manns Alþingis og sam­skipti Hönnu Birnu Krist­jáns­dóttur, fyrr­ver­andi inn­an­rík­is­ráð­herra, við Alþingi. „Það er ljóst að þess­ari nefnd ber að ljúka mál­inu og við erum á þeirri veg­ferð. En henni er ekki lokið,“ segir Ögmundur en vildi að öðru leyti ekki tjá sig um efni skýrslu­drag­anna. Þá sagð­ist hann ekki geta sagt til um hvenær skýrsla nefnd­ar­innar verði gerð opin­ber. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Lekamálið

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár