Stofnandi Þjóðarflokksins býst við að fá uppreist æru frá forsetanum

Sverrir Þór Ein­ars­son, sem stendur fyrir stofnun Þjóð­ar­flokks fyrir Íslend­inga, var dæmdur fyrir lík­ams­árás sem leiddi til and­láts manns og von­ast eftir að fá upp­reist æru frá for­seta Íslands. Hann sagði skilið við Fram­sókn­ar­flokk­inn þar sem hann telur Sigmund Davíð hafa svikið kosn­inga­lof­orð.

Stofnandi Þjóðarflokksins býst við að fá uppreist æru frá forsetanum
Leiðtogi Þjóð­ar­flokks­ins Sverrir segir þessa mynd hafa verið tekna í fífla­látum.

Sverrir Þór Ein­ars­son, einnig þekktur sem Sveddi tattú, seg­ist hafa orðið var við mik­inn með­byr í kjöl­far þess að hann til­kynnt um stofnun nýs stjórn­mála­flokks sem hann nefnir Þjóð­ar­flokk­inn. Sverrir starfar sem húð­flúr­ari og bóndi í Borg­ar­firði.

Hann komst oft í fréttir á sínum tíma í tengslum við mót­or­hjóla­klúbb­inn Fáfni.

Sverrir er með flekkað mann­orð vegna dóms sem hann fékk fyrir lík­ams­árás sem leiddi til dauða fórn­ar­lambs­ins. Hann býst þó við að fá upp­reist æru frá for­set­anum svo hann geti tekið sæti á Alþingi. Samkvæmt 34. grein stjórn­ar­skrár Íslands þarf óflekkað mann­orð til að vera kjör­gengur á Alþingi. Ef ein­stak­lingur fær meira en tveggja ára fang­els­is­dóm verður mann­orð ekki óflekkað nema for­seti íslands veiti við­kom­andi upp­reist æru. Þetta kemur fram í 85. grein almennra hegn­ing­ar­laga.

Helsta mark­mið flokks­ins af Facebook-síðu hans að dæma er að berj­ast gegn komu flótta­manna til Íslands. Í sam­tali við Stundina skýrir Sverrir nánar stefnu flokks­ins og seg­ist hann ætla að setja rót­tækar breyt­ingar á kvóta­kerf­inu á odd­inn auk inn­flytj­enda­mála. Hann segir flokk­inn ekki ras­ista­flokk og að með­fylgj­andi ljós­mynd, þar sem hann heilsar með nas­ista­kveðju með yfir­var­ar­skegg í stíl Adolfs Hitler, hafi ein­ungis verið gerði í gríni. Sverrir var áður í Fram­sókn­ar­flokknum en hann telur þann flokk hafa svikið kosn­inga­lof­orð sín. Þegar þessi orð eru skrifað er flokk­ur­inn með 222 like á Facebook-síðu sinni.  

Sverrir Þór Einarsson
Sverrir Þór Ein­ars­son Einnig þekktur sem Sveddi tattú.
 

„Maður er bara hálf hrærður yfir við­brögð­unum, við­tök­unnar eru því­líkar og með­byr­inn ótrú­legur. Þegar mest gekk á í dag þá voru 46 manns að skrá sig á klukku­tíma. Það er miklu meira en ég átti nokkurn tím­ann von á. Þessi póli­tíski rétt­trún­aður sem búinn að vera hérna í gangi verður að linna. Ég er bara að segja þetta eins og það er. Við höfum ekk­ert gagn af því að henda þús­undum millj­óna í ein­hverja vit­leysu þegar við getum ekki hugsað um okkar smæstu borg­ara,“ segir Sverrir og vísar til mót­töku flótta­manna frá Sýrlandi.

„Gömlu mafíósarnir eru hræddir“

Sverrir segir að flokk­ur­inn hafi ekki verið form­lega stofn­aður. Hann býst þó við að það verði ekki vanda­mál. Í upp­hafi var flokk­ur­inn stofn­aður á Facebook sem aðili eða per­sóna, en það þýðir að flokk­ur­inn gæti ekki haft fleiri en fimm þús­und vini. Á mánu­dag var þessi aðgangur horf­inn og kennir Sverri hökk­urum tengdum fjór­flokknum um það. „Það er ein­hver búinn að hakka okkur og skemma síð­una. Ein­hverjir fjór­flokks­menn eru komnir með hræðslu­hroll. Það er búið að hakka þetta allt í tætlur í dag og ég er mjög stoltur af því, gömlu mafíós­arnir eru hræddir. Ég get ekki tengt mig eða neitt, það er eins og síðan hafi aldrei verið til,“ segir Sverrir.

Boðar róttæka breytingu á kvótakerfinu

Spurður um stefnu­mál þessa nýja flokks leggur Sverri áherslu á að Þjóð­ar­flokk­ur­inn verði ekki eins­máls­flokkur. Hann segir að flokk­ur­inn muni móta stefnu í til að mynda í mennta- og efna­hags­málum. Hann gefur þó dæmi um hver stefna flokks­ins verði í sjáv­ar­út­vegs­málum. „Ég ætla að taka kvóta­málin fyrir. Fisk­ur­inn í sjónum á að vera þjóð­ar­eign og hugs­aður og skil­yrtur sem slíkur. Ég vil að allur kvóti fari á markað og upp­boð. Ég vil að allir bátar undir sextán metra fái að stunda frjálsar strand­veiðar, eins og í Noregi. Það þýðir ekki að láta sjálftöku­menn gömlu fjór­flokksmafí­unnar og LÍÚ hirða af okkur auð­lindir okkar. Þetta er bara rugl. Það má gera þetta með laga­breyt­ingu og penna­striki,“ segir Sverrir.

„Þetta er bara hryll­ingur, þeir aðlag­ast ekki.“

Vill að Íslendingar gangi fyrir

Eitt af meg­in­málum flokks Sverris er að vinna gegn menn­ing­ar­legum áhrifum múslima á Íslandi. „Fjór­flokk­ur­inn á bara að þurrkast út. Sjáðu bara moskumálið, hvað gerir Dagur B. Egg­erts­son og hans und­ir­sátar? Hvað heitir moska um allan heim? Moska er sam­fé­lags­mið­stöð og þar er sharia-réttur. Þá er þetta dóms­hús. Þarna útbýta þeir refs­ingum og pynt­ingum. Þetta er skóli, inn­rætt­ing­ar­skóli. Þetta er eitt­hvað fjöl­nota­hús­næði fyrir útlend­inga,“ segir Sverrir. Þegar honum er bent á að engin dæmi séu um shar­ía­lög á Íslandi hingað til svarar Sverrir að það sé bara tíma­spurs­mál. „Þú sérð öll dæmin í Evrópu og Skand­in­avíu. Þetta er bara hryll­ingur, þeir aðlag­ast ekki,“ segir Sverrir.

Þrátt fyrir þessi orð seg­ist Sverrir ekki vera alfarið á móti því að Ísland taki á móti flótta­mönnum frá Sýrlandi. „Ég er alveg til í að taka á móti flótta­mönnum ef við erum búin að koma gamla fólk­inu á réttan stað og koma börn­unum okkar í skóla. Þegar sjúkra­húsin eru komin í lag. Þetta hlýtur að hafa for­gang að Íslend­ingar gangi fyrir. Við verðum að byrja á því að hugsa um okkar fólk. Það hlýtur að ganga fyrir að Íslend­ingar hugsi um íslensku þjóð­ina,“ segir Sverrir.

„Ég er að segja að Íslend­ingar verða að setja Íslend­inga í for­gang.“

Þykir rasismi andstyggilegur

Eftir þessi orð Sverris liggur bein­ast við að spyrja hvort Þjóð­ar­flokk­ur­inn sé ras­ista­flokkur. „Ras­ista­flokkur? Þetta er bara út í Hróa hött. Ég hata alla jafnt. Að vera ras­isti er að vera með nei­kvæða mis­munun út af trú­ar­brögðum, lit­ar­hætti eða kyn­hneigð. Það þykir mér bara and­styggi­legt. Ég er alls ekki að lýsa því. Ég er að segja að Íslend­ingar verða að setja Íslend­inga í for­gang. Ef við eigum afgang þegar við erum búin að gera sæmi­lega við gamla fólkið og laga spít­al­ann, þá er ég alveg hlyntur að setja eitt­hvað af afgang­inum í útlend­inga,“ svarar Sverrir.

Sverrir ítrekar að Hitler­s­myndin sem finna má á Facebook-síðu hans sé grín. „Hvað kemur þessi mynd mál­inu við? Hvað kemur það mál­inu við þegar ég og konan mín erum að leika okkur heima hjá okkur í ein­hverjum fífla­gangi. Ég var að fara í klipp­ingu og þetta leit út eins og hel­vítis Hitlergreiðsla. Við hlógum svo mikið að hún túss­aði á mig yfir­var­ar­skegg. Þetta er bara brand­ari,“ segir Sverrir um mynd­ina.

„Fór ekki Árni Johnsen á þing?“

Með flekkað mannorð

Sverrir var árið 1997 dæmdur í tveggja ára fang­elsi fyrir lík­ams­árás á skemmti­staðnum Vegas við Frakka­stíg. Árásin leiddi til dauða manns­ins. Sverrir er því laga­lega séð með flekkað mann­orð og þyrfti að fá upp­reist æru til að setj­ast á þing. Hann hefur engar áhyggjur af þessu. „Það er ekki nokkuð mál. Fór ekki Árni Johnsen á þing? Maður fer bara og leggur inn náð­un­ar­bréf frá for­set­anum á núll níu. Ég fæ upp­reisn æru frá Óla frænda,“ segir Sverrir og vísar til Ólafs Ragnars Gríms­sonar.

Sverrir er, líkt og for­set­inn, fyrr­ver­andi fram­sókn­ar­maður. Hann seg­ist hafa kosið flokk­inn í síð­ustu kosn­ingum. „Ég var í Fram­sókn­ar­flokknum þangað til að Sig­mundur Davíð sveik öll lof­orð. Hann skeit upp á bak og laug linnu­laust frá morgni til kvölds. Þetta eru bara frama­potarar,“ segir Sverrir.  

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár