Launamunur kynjanna eykst milli ára

Tölur Hag­stof­unnar sýna að óleið­réttur launa­munur kynj­anna hefur auk­ist frá síð­ustu mæl­ingu.

Launamunur kynjanna eykst milli ára
Karlar og konur sitja ekki alltaf við sama borð Mynd: Shutterstock

Samkvæmt nýjum tölum sem birtar voru á vef Hag­stof­unnar í dag voru konur með tæp­lega 30% lægri atvinnu­tekjur en karlar árið 2015. Þá er átt við allar tekjur af atvinnu án til­lits til vinnu­tíma. Sam­an­burður á með­al­launum karla og kvenna í fullu starfi árið 2015 sýnir hins vegar um 20% mun á heild­ar­launum en um 14% mun á reglu­legum launum án yfir­vinnu. Óleið­réttur launa­munur mæld­ist 17% árið 2015 en hann byggir á reglu­legu tíma­kaupi með yfir­vinnu í sam­ræmi við aðferð evr­ópsku hag­stof­unnar Eurostat.

Mikill munur á árstekjum í öllum aldurshópum

Helm­ingur kvenna var með lægri atvinnu­tekjur en 3,7 millj­ónir króna á árið árið 2015 en helm­ingur karla var með minna en 5 millj­ónir. Með­al­tekjur af atvinnu taka til allra atvinnu­tekna án til­lits til vinnu­tíma en karlar vinna að jafn­aði fleiri klukku­stundir í viku en konur, 44,1 klukku­stund á móti 35,5 hjá konum. 

Hæstar eru tekj­urnar á ald­urs­bil­inu 45 til 49 ára hjá báðum kynjum. Á þeim aldri voru karlar með mun hærri tekjur en konur, eða 8,1 milljón á ári sam­an­borið við 5,5 millj­ónir hjá konum.

Konur
Konur er launa­lægri í öllum ald­urs­flokkum, nema þær séu 85 ára og eldri

Munur á atvinnu­tekjum eftir kyni eykst með hverjum launa­flokki, og var efsti flokk­ur­inn hjá körlum með 12 millj­ónir króna í árs­tekjur á móti 8,5 millj­ónum hjá kon­unum. 

Vinnutími útskýrir muninn aðeins að hluta til

Helm­ingur kvenna í fullu starfi var með heild­ar­laun yfir 490 þús­und krónur á mán­uði meðan helm­ingur karla var með heild­ar­laun yfir 586 þús­und krónur. Dreifing heild­ar­launa var ólík eftir kyni og voru karlar fleiri í hæstu launa­bil­unum.

Vinnu­tími skýrir að hluta til hærri heild­ar­laun karla en kvenna fyrir fullt starf. Karlar í fullu starfi unnu að jafn­aði meira en konur í fullu starfi og voru greiddar stundir karla að með­al­tali 189 á mán­uði árið 2015 en greiddar stundir kvenna 179,7 sam­kvæmt launa­rann­sókn Hag­stof­unnar. Þannig var minni munur á launum eftir kyni ef horft er til reglu­legra launa án yfir­vinnu árið 2015. Konur í fullu starfi voru þá að með­al­tali með 458 þús­und krónur á mán­uði en karlar 534 þús­und krónur og var launa­mun­ur­inn því um 14%. Ef skoðuð voru reglu­leg laun með yfir­vinnu var mun­ur­inn um 18%.

Karlar
Karlar eru fleiri í hæstu launa­bilum, konur fleiri í þeim lægstu

Dreifing heild­ar­launa fyrir fullt starf var mis­mun­andi eftir atvinnu­grein. Sem dæmi má nefna að í heil­brigðis- og félags­þjón­ustu var dreif­ingin meiri meðal karla en kvenna og heild­ar­laun þeirra hærri. Störf kynj­anna voru ólík í þeirri grein, meðal sér­fræð­inga störf­uðu til dæmis tæp­lega 60% kvenna við hjúkrun en tæp­lega 70% karla við lækn­ingar. Þá voru sjúkra­liðar fjöl­mennir í þeirri atvinnu­grein og fáir karlar í því starfi.

Karlastörf betur launuð
Karla­störf betur launuð Karla­störf eru mun betur launuð en hefð­bundin kvenna­störf

Skýring: Rétt­hyrn­ing­ur­inn afmarkar neðri og efri fjórð­ungs­mörk og mið­gildið skiptir honum í tvennt. Strikin marka 10/90 mörkin. Fram­leiðsla (C), raf­magns-, gas- og hita­veitur (D), heild- og smá­sölu­verslun, við­gerðir á vél­knúnum öku­tækjum (G), flutn­ingur og geymsla (H), upp­lýs­ingar og fjar­skipti (J), fjár­mála- og vátrygg­inga­starf­semi (K), opin­ber stjórn­sýsla og varn­ar­mál; almanna­trygg­ingar (O), fræðslu­starf­semi (P), heil­brigðis- og félags­þjón­usta (Q).

Fjármála- og vátrygg­inga­starf­semi sker sig einnig úr hvað varðar dreif­ingu heild­ar­launa eftir kyni árið 2015 og voru konur að með­al­tali með um 37% lægri heild­ar­laun en karlar í þeirri grein. Skrif­stofu­fólk í fullu starfi var að jafn­aði með lægstu launin en rúm­lega 30% kvenna í atvinnu­grein­inni til­heyrðu þeim hópi og ein­ungis 6% karla. Meðal sér­fræð­inga í fjár­mála­starf­semi voru konur með um 16% lægri heild­ar­laun að með­al­tali en karlar.

Munurinn mestur á almennum vinnumarkaði, minnstur hjá sveitarfélögum

Óleið­réttur launa­munur kynj­anna, reikn­aður sam­kvæmt aðferð evr­ópsku hag­stof­unnar Eurostat, var 17% árið 2015 og hafði hækkað lít­il­lega frá fyrra ári þegar hann var 16,4%. Á almennum vinnu­mark­aði var launa­mun­ur­inn 16,7% en 14,6% hjá opin­berum starfs­mönnum, þar af var mun­ur­inn 14,9% hjá ríki og 7,2% hjá sveit­ar­fé­lögum.

Launamunur jókst
Launa­munur jókst Munurinn hefur auk­ist frá síð­ustu mæl­ingum

Upp­lýs­ingar fengnar frá Hag­stof­unni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Kynjamál

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár