„Verið að tryggja að Mjólkursamsalan haldi markaðsráðandi stöðu sinni“

Björt Ólafs­dóttir, þing­kona Bjartrar fram­tíðar, segir lögin um búvöru­samn­ing­ana sniðin að hags­munum Mjólk­ur­sam­söl­unnar. Verið sé að „lög­festa reglur sem heim­ila skað­lega fákeppni og sam­þjöppun“

Atvinnu­vega­nefnd brást aðeins að litlu leyti við alvar­legum athuga­semdum Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins við frum­varp til laga um breyt­ingu á búvöru­lögum, bún­að­ar­lögum og tolla­lögum. Áfram er gert ráð fyrir að afurða­stöðvar í mjólkur­iðn­aði njóti víð­tækra und­an­þága frá meg­in­reglum sam­keppn­islaga og áfram verða til staðar heim­ildir til sam­ein­ingar, sam­ráðs og sam­vinnu mark­aðs­ráð­andi aðila. Að mati Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins fela þær sér­reglur sem settar eru um mark­aðs­ráð­andi afurða­stöðvar í sér að keppi­nautum og neyt­endum er almennt sköpuð minni vernd heldur en núgild­andi lög veita.

Björt Ólafs­dóttir, þing­kona Bjartrar fram­tíðar og full­trúi flokks­ins í atvinnu­vega­nefnd, telur óásætt­an­legt að Alþingi sam­þykki frum­varpið í þeirri mynd sem meiri­hluti nefnd­ar­innar gerir ráð fyrir sam­kvæmt breyt­ing­ar­til­lögum sem lagðar voru fram á Alþingi á mánu­dag og kallar eftir því að mál­inu verði vísað frá.

Björt Ólafsdóttir
Björt Ólafs­dóttir

„Þarna er fyrst og fremst verið að tryggja að Mjólk­ur­sam­salan haldi mark­aðs­ráð­andi stöðu sinni með því að und­an­þiggja fyr­ir­tækið meg­in­reglum sam­keppn­islaga,“ segir Björt í sam­tali við Stundina og bætir við að henni finn­ist stjórn­ar­liðar van­meta íslenskan land­búnað. „Þeir treysta honum ekki til að standa í sam­keppni. Ég treysti honum hins vegar full­kom­lega til þess.“ 

Samkeppnishömlur og skaðleg fákeppni

Í nefnd­ar­á­liti sínu bendir Björt á að gengið sé gegn meg­in­reglum sam­keppn­islaga. Heim­ildir til sam­ein­ingar, sam­ráðs og sam­vinnu mark­aðs­ráð­andi aðila séu lög­festar sem og verð­sam­ráð. Jafn­framt sé komið í veg fyrir sam­keppni með þaki á það magn sem mark­aðs­ráð­andi afurða­stöð er heim­ilt að selja sjálf­stæðum vinnslu­að­ilum. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Búvörusamningar

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár