Læknar án landamæra afþakka styrki frá ESB í mótmælaskyni

Gagnrýna fram­göngu sam­bands­ins gagn­vart flótta­fólki: „Við getum ekki þegið styrki frá Evr­ópu­sam­band­inu eða aðild­ar­ríkjum þess á sama tíma og við hlúum að fórn­ar­lömbum þeirrar stefnu sem er rekin. Svo ein­falt er það.“

Samtökin Læknar án landamæra hafa ákveðið að hætta að taka við styrkjum frá Evr­ópu­sam­band­inu í mót­mæla­skyni við stefnu sam­bands­ins gagn­vart flótta­mönnum. 

„Við getum ekki þegið styrki frá ESB eða aðild­ar­ríkjum þess á sama tíma og við hlúum að fórn­ar­lömbum stefnu þeirra. Svo ein­falt er það,“ segir í Twitter-færslu frá sam­tök­unum. 

Í yfir­lýs­ingu sem birt­ist á vef Lækna án landamæra í dag er sér­stak­lega vísað til afleið­inga sam­komu­lags­ins sem Evr­ópu­sam­bandið gerði við Tyrkland fyrr á árinu, en samn­ing­ur­inn felur meðal ann­ars í sér að flótta­menn sem ferð­ast hafa frá Tyrk­landi til Grikk­lands og ekki sótt um hæli eða ekki fengið hæl­is­um­sókn sam­þykkta eru sendir aftur til Tyrk­lands með valdi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár