Húsleit á Akureyri: Iðnaðarklór seldur sem „kraftaverkalausn“ fyrir sjúklinga

Lög­reglan á Akureyri gerði í dag hús­leit í verk­smiðju á Akureyri sem er sögð fram­leiða „krafta­verka­lausn­ina“ MMS. Hún er talin geta valdið alvar­legum veik­indum og jafn­vel dauða. „Það svo­leiðis hrynur af þeim krabba­meinið,“ segir fram­leið­and­inn, sem er ósáttur við aðgerð­irnar.

Húsleit á Akureyri: Iðnaðarklór seldur sem „kraftaverkalausn“ fyrir sjúklinga

Lög­reglan á Akureyri lagði í dag hald á „krafta­verka­lausn­ina“ MMS í hús­leit sem gerð var í verk­smiðju í bænum. Varað hefur verið við því að krafta­verka­lausnin geti valdið veik­indum eða dauða. Fram­leið­and­inn full­yrðir hins vegar að lyfið geti læknað allt frá krabba­meini til alnæmis og berkla. „Það alveg svo­leiðis hrynur af þeim krabba­meinið um leið og þeir byrja að taka inn þennan kúr,“ segir hann í sam­tali við Stundina.

Alfreð Schiöth, fram­kvæmda­stjóri Heil­brigð­is­eft­ir­lits Norð­ur­lands eystra, stað­festi í sam­tali við Stundina að eft­ir­litið hafi falið lög­reglu að rann­saka málið, en hann hafði enn ekki heyrt af aðgerðum lög­reglu í dag þegar Stundin tal­aði við hann. „Það barst ábend­ing til Lyfja­stofn­unar um að þessi vökvi væri í sölu eða dreif­ingu og við­kom­andi gat vísað á heima­síðu. Á heima­síð­unni voru engin nöfn eða ábyrgð­ar­menn og málið því svo­lítið óljóst. En heil­brigð­is­eft­ir­litið óskaði eftir að lög­regla rann­sak­aði málið og legði hald á þennan vökva ef hann finnd­ist,“ segir Alfreð. Hann segir að ábend­ing­unni hafi fylgt saga af lang­veikum ein­stak­lingi sem hafi verið að taka inn þennan vökva, en óvíst er hvort hann hafi orðið fyrir heilsutjóni vegna þess. „Þetta er hættu­legt fyrir full­frískt fólk og þeim mun hættu­legra fyrir sjúk­linga,“ segir Alfreð.   

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Sala á ósönnuðum meðferðum

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár