Röng meðferð getur gert slæmt ástand verra

Sál­fræð­ingar hafa áhyggjur af því hversu margir leita sér hjálpar við alvar­legum vanda hjá þerapistum, ráð­gjöfum eða öðrum með litla sem enga menntun sem styður við með­ferð þeirra. Hafrún Krist­jáns­dóttir sál­fræð­ingur segir málið alvar­legt. Flestir myndu gera athuga­semd við það ef kjöt­iðn­að­ar­maður gengi í starf hjarta­skurð­læknis. Það sama ætti að gilda um þau sem hafa með and­lega heilsu fólks að gera.

Röng meðferð getur gert slæmt ástand verra
Hafrún Krist­jáns­dóttir sál­fræð­ingur Hún hefur legið undir ámæli fyrir að tala opin­skátt gegn með­ferðum ófag­lærðra sér­fræð­inga. Hún segir sjálf­sagt að leita ólíkra leiða til að bæta líðan sína. Þegar geð­rask­anir séu í spil­inu ættu ófag­lærðir þerapistar og ráð­gjafar þó að stíga til hliðar og láta fag­menntað fólk um með­ferð­ina. Mynd: Heiða Helgadóttir

Fjöldi fólks hefur lifi­brauð sitt af því að veita aðstoð eða með­ferð við kvillum ann­arra. Gildir þá einu hversu alvar­leg van­líðan ein­stak­ling­anna er, hvort fólk þarfn­ast bara meiri gleði í líf sitt, hvort það á í hjóna­bandserf­ið­leikum, hefur orðið fyrir áfalli eða á jafn­vel við alvar­leg geð­ræn veik­indi að stríða. Oft bera þessir ein­stak­lingar titla á borð við sér­fræð­ingur, þerapisti eða ráð­gjafi, en hefur þegar að er gáð litla, enga eða óhefð­bundna menntun að baki starfs­heit­inu. Sál­fræð­ingar sem blaða­maður Stund­ar­innar hefur rætt við full­yrða að innan fag­stétt­ar­innar hafi margir áhyggjur af því hversu algengt það er að ein­stak­lingar leiti sér aðstoðar við and­legri van­líðan hjá „sér­fræð­ingum“ sem hafa ekki fag­menntun eða lög­verndað starfs­heiti. Það er hins vegar ekki hlaupið að því að fá starf­andi sál­fræð­inga til þess að tjá sig opin­ber­lega um málið. Margir veigra sér við því, þar sem þeir vilja ekki setja sig á háan hest, fá á sig stimpil yfir­lætis eða mennta­hroka. Ein þeirra sem hefur tjáð sig opin­ber­lega um mál­efnið þekkir einmitt það. „Það getur verið erfitt að gagn­rýna og fá fyrir vikið að heyra það í morg­un­út­varpi allra útvarps­stöðva að þú sért mennta­snobb­ari,“ segir Hafrún Krist­jáns­dóttir, sál­fræð­ingur og dós­ent við Háskól­ann í Reykja­vík. Vísar hún þar til þeirrar umræðu sem mynd­að­ist í kjöl­far þess að hún mætti vin­sæla fyr­ir­les­ar­anum Öldu Karen Hjalta­lín í Kast­ljósi á RÚV. 

Alda Karen hefur fyllt Eld­borg­ar­sal Hörpu og Laug­ar­dals­höll­ina með fyr­ir­lestrum sínum, svo ljóst er að hún snertir við mörgum. Kjarni þess sem hún boðar var ein­faldur: „Þú ert nóg.“ Í við­tali við Ísland í dag í tengslum við við­burð­inn LIFE Masterclass: Into Your Mind tjáði hún sig um sjálfs­víg og sagði það sorg­legt þegar það eina sem fólk þyrfti í raun að gera vera að segja við sjálft sig að það væri nóg. Þetta gagn­rýndi Hafrún harð­lega, sagði það rangt að bjóða upp á svo ein­falda lausn við flóknum vanda á borð við sjálfs­vígs­hugs­anir. Það gæti bein­línis aukið á van­líðan við­kom­andi. Mörgum þótti Hafrún ganga of langt í gagn­rýn­inni og komu Öldu Karen til varnar. Það gerðu til að mynda sam­tökin Hugarafl, sem þökk­uðu Öldu Karen fyrir að opna umræð­una um geð­heil­brigð­is­mál og benda á að jafn­vel ein­föld ráð eins og mön­trur geti virkað. „Það er ekk­ert gaman að vera á milli tann­anna á fólki á þennan hátt,“ segir hún. Henni renni þó blóðið til skyld­unnar og því láti hún sig hafa það að sitja undir ásök­unum um mennta­hroka. Hún tekur fram að hún telji ekki að allir þurfi að leita til sál­fræð­ings, líði þeim illa. „Ef mér sjálfri líður illa út af ein­hverju í mínu lífi finnst mér oft best að tala við vini og fjöl­skyldu. Ég fæ góð ráð hjá þeim og þá líður mér betur. Það er líka alveg satt, sem margir segja, að það getur verið fín með­ferð við dep­urð að fara út að ganga. Það þarf ekki alltaf að leita til sál­fræð­ings. En þegar við erum að tala um geð­rask­anir snýr málið öðru­vísi við okkur. Ég sé ekki fyrir mér að ein­hverjum þætti snobbað af hjarta­skurð­lækni að gera athuga­semd við það að kjöt­iðn­að­ar­maður færi í að skera mann­eskju upp.“ 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Sala á ósönnuðum meðferðum

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár