Kraftaverkaklórinn MMS: „Manni svíður undan því“

Aðstand­andi sjúk­lings sem var ginntur til að kaupa „krafta­verka­lausn­ina“ MMS af Jóhann­esi Bjarmars­syni segir farir sínar ekki sléttar. Hann segir að sölu­maður á vegum Jóhann­esar hafi logið um vör­una, sem er í raun iðn­að­ar­klór.

Kraftaverkaklórinn MMS: „Manni svíður undan því“
Eigandi Gæða­fóð­urs Jóhannes hefur ítrekað sagt að klór­inn væri ekki til sölu. Mynd: Photographer.is / Geirix

Aðstand­andi sjúk­lings sem var ginntur til að kaupa „krafta­verka­lausn­ina“ MMS, Miracle Mineral Supplem­ent, segir það alrangt að varan hafi ekki verið seld. Aðstand­andi sjúk­lings­ins biðst undan þess að vera nafn­greindur, ætt­ingja síns vegna. Jóhannes Bjarmars­son, fram­leið­andi MMS og eini eig­andi Gæða­fóð­urs, hefur ítrekað haldið því fram í við­tölum við Stundina að varan, sem byggir í raun á iðn­að­ar­klór, sé ekki seld á neinu föstu verði.

„Við höfum ekki verið að selja þetta á neinu föstu verði. Við höfum bara látið fólk fá þetta og látið það borga það sem það vildi. Við erum bara að hjálpa fólki en ekki að græða neitt,“ sagði Jóhannes þá. Á heima­síðu Jóhann­esar var áður hægt að finna verð­lista á mis­mun­andi útgáfum vör­unnar. Nú er þó búið að fjar­lægja þann hluta vef­síð­unnar. Þar stóð áður að 150 millí­lítrar af ACD drykk, en ACD er annað orð yfir MMS, kost­uðu 34 evrur, eða tæp­lega fimm þús­und krónur. Aðstand­andi sjúk­lings­ins segir að ætt­ingi sinn hafi borgað ríf­lega þrjú þús­und krónur fyrir sam­bæri­lega vöru.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Sala á ósönnuðum meðferðum

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár