Kallað eftir upplýsingum frá þeim sem hafa ekki skilað CFC-skýrslum

Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins, hefur vikið sér undan spurn­ingum um hvort CFC-eyðu­blöðum hafi verið skilað vegna aflands­fé­lags­ins Wintris og full­yrt rang­lega að CFC-lög­gjöfin gildi ein­ungis um rekstr­ar­fé­lög.

Kallað eftir upplýsingum frá þeim sem hafa ekki skilað CFC-skýrslum

Þeir skatt­borg­arar sem komið hefur í ljós að eiga aflands­fé­lög en hafa ekki skilað upp­lýs­ingum til skatta­yf­ir­valda í sam­ræmi við CFC-lög­gjöf­ina um skatt­skil og upp­lýs­inga­gjöf félaga á lág­skatta­svæðum, verða að jafn­aði krafðir um þau gögn sem ber að skila lögum sam­kvæmt.

Þetta kom fram á opnum fundi um Panama-skjölin, skatta­hag­ræði og skatt­svik sem hald­inn var í Háskóla Íslands í dag. Þórólfur Matth­í­as­son hag­fræði­pró­fessor, Bryndís Krist­jáns­dóttir skatt­rann­sókn­ar­stjóri og Guð­mundur Jónsson sagn­fræði­pró­fessor héldu erindi og tóku þátt í pall­borðsum­ræðum.

Indriði H. Þorláksson
Indriði H. Þor­láks­son fyrr­ver­andi rík­is­skatt­stjóri

Indriði H. Þor­láks­son, fyrr­ver­andi rík­is­skatt­stjóri, tók til máls og spurði Bryndísi hvort til greina kæmi að skatta­yf­ir­völd krefðu þá aðila sem komið hefur í ljós að eiga aflands­fé­lög en hafa ekki skilað inn til­skyldum gögnum, um þær upp­lýs­ingar sem ber að gefa upp lögum sam­kvæmt.

Upplýsingar framsendar ríkisskattstjóra

Bryndís benti á að við rann­sókn gagn­anna um aflands­fé­lög Íslend­inga sem keypt voru í fyrra hefði í mörgum til­vikum ekki verið mögu­legt, án frek­ari upp­lýs­inga frá gjald­endum, að meta hvort aðilar hefðu staðið skil á sköttum. Því hefði rík­is­skatt­stjóri fengið meg­in­þorra upp­lýs­ing­anna í hendur og sent eig­endum aflands­fé­laga bréf þar sem óskað er frek­ari upp­lýs­inga.

Bryndís Kristjánsdóttir
Bryndís Krist­jáns­dóttir skatt­rann­sókn­ar­stjóri

„Ég ætla það að í lang­flestum eða öllum þessum málum verði við­kom­andi sent bréf frá rík­is­skatt­stjóra þar sem við­kom­andi er kraf­inn um þessi gögn,“ sagði Bryndís og vís­aði sér­stak­lega til CFC-lög­gjaf­ar­innar og þeirra skil­yrða sem hún setur eig­endum félaga á lág­skatta­svæðum. Tók hún sér­stak­lega fram að hún væri ein­ungis að tala á almennum nótum en ekki um ein­stök mál.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Ríkisfjármál

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár