Íslenskum ríkisborgara vísað úr vél WOW air vegna tilskipunar Trumps

Íþrótta­maður með íslenskt rík­is­fang á leið á mót í Banda­ríkj­unum var beð­inn að yfir­gefa vél WOW air vegna þess að hann fædd­ist í Íran. „Ég átt­aði mig ekki á því að þetta myndi ger­ast fyrir mig,“ segir hann.

Íslenskum ríkisborgara vísað úr vél WOW air vegna tilskipunar Trumps

Fyrr í dag var íslenskum rík­is­borg­ara snúið við á flug­vell­inum í Keflavík á leið til Banda­ríkj­anna þar sem hann ætl­aði að keppa fyrir hönd íslenska lands­liðs­ins í taekwando. Ástæðan er að mað­ur­inn, Meisam Rafiei, fædd­ist í Íran. Hann hafði tekið sér sæti í flug­vél WOW air þegar starfs­maður bað hann að yfir­gefa sæti sitt.

Brott­vísun Meisams úr flug­vél WOW air byggir á for­seta­til­skipun Donalds Trump sem bannar ferðir fólks frá sjö löndum til Banda­ríkj­anna vegna meintrar hryðju­verkaógnar sem Trump telur stafa af borg­urum þess­ara landa, þótt eng­inn frá lönd­unum sjö hafi framið hryðju­verka­árás í Banda­ríkj­unum.

Meisam keypti miða til Banda­ríkj­anna í jan­úar, áður en Donald Trump, gaf út til­skipun um að banna ætti fólki frá sjö þjóðum, þar á meðal Íran, að koma til Banda­ríkj­anna. Meisam kom til Íslands árið 2010 sem lands­liðs­þjálf­ari í taekwando. Árið 2012 fékk hann síðan rík­is­borg­ara­rétt svo hann gæti keppt fyrir hönd lands­liðs­ins, en hann er þre­faldur heims­meist­ari í íþrótt­inni. 

Nú var hann á leið til Banda­ríkj­anna með félögum sínum þar sem hann ætl­aði að keppa í taekwando á US Open í Las Vegas. „Allir vinir mínir fóru en ég gat ekki farið. Við erum lið sem ætl­aði að keppa á US Open mót­inu, það var fullt af fólki frá Íslandi að fara þangað og ég vildi fara líka. Ég vissi ekki að ég gæti ekki farið þangað. Ég vissi ekki að það væri búið að setja þessar reglur. Þessar reglur voru settar fyrir viku og ég varð stress­aður því ég var búinn að kaupa miða og skrá mig. Ég átt­aði mig ekki á því að þetta myndi ger­ast fyrir mig.“

Svanhvít Frið­riks­dóttir, upp­lýs­inga­full­trúi WOW air, segir flug­fé­lagið hafa fengið bréf um að mann­inum yrði ekki hleypt inn í Banda­ríkin eftir að far­þega­list­arnir voru sendir á landamæra­eft­ir­lit og heima­varn­ar­ráð Banda­ríkj­anna, Homeland Security. „Þetta er bara alveg ömur­legt mál. Fyrst var gefið leyfi fyrir því að þessi far­þegi mætti fljúga, og var kom­inn um borð. Svo bara rétt fyrir brott­för fáum við bréf þess eðlis að þessum far­þega myndi ekki verða hleypt inn í landið. Hann mætti ekki fljúga til lands­ins. Við verðum nátt­úru­lega bara að fara eftir því. Okkur finnst þetta mjög miður,“ segir hún.

Að hennar sögn hafa sjö til­von­andi far­þegar haft sam­band við WOW air frá ríkj­unum sjö, sem falla undir bannið í for­seta­til­skipun Donalds Trump.

Ráðlagt að fara ekki af stað

Trump und­ir­rit­aði til­skip­un­ina þann 27. jan­úar, með þeim orðum að fólk frá Íran, Írak, Sýrlandi, Sómalíu, Líbýu, Jemen og Súdan væri ekki vel­komið til Banda­ríkj­anna. 

Frétta­flutn­ingur af ringul­reið­inni sem mynd­að­ist á flug­völlum ytra þegar fólki var ekki hleypt inn í landið vegna til­skip­unar for­set­ans gerði Meisam tauga­ó­styrkan. Hann ákvað að fara engu að síður út á flug­völl og sjá hvað myndi ger­ast. Áður hafði for­seti taekwondo-sam­tak­anna á Íslandi hringt í banda­ríska sendi­ráðið, segir hann. „Hann sagði að ég gæti farið en það væri ekki öruggt. Ég yrði kannski hand­tek­inn eða stopp­aður af og mér snúið við á landa­mær­unum. Hann sagði að það væri kannski best að ég færi ekki, en ég vildi fá úr því skorið hvort ég gæti farið til Banda­ríkj­anna eða ekki. Af því að vinur minn, sem er líka fæddur í Íran en er með breskt vega­bréf í dag, komst inn í landið. Þess vegna fór ég á flug­völl­inn til að láta á það reyna.“

Til stóð að fljúga með WOW-air til San Fransisco, og fara þaðan áfram til Las Vegas þar sem mótið er haldið. Meisam segir að þegar hann mætti á flug­völl­inn hafi star­fólkið ekki vitað hvernig það ætti að bregð­ast við. Ákveðið hafi verið að hleypa honum inn en síðan hafi hann strax verið stopp­aður og beð­inn um að sýna vega­bréfið aftur, því þar kemur fram að hann sé fæddur í Íran. „Þeir sögð­ust ætla að full­vissa sig um að ég kæm­ist inn í landið og til þess þyrftu þeir að hringja í heima­varn­ar­ráð Banda­ríkj­anna. Þeir hringdu þangað og fengu þau svör að það væri ekk­ert mál fyrir mig að kom­ast til Banda­ríkj­anna því ég væri íslenskur rík­is­borg­ari. Ég gæti komið.“

Reyndi að bera sig vel þegar hann var rekinn út 

Meisam tékk­aði sig inn, fór í gegnum örygg­is­gæsl­una, upp land­gang­inn og alla leið inn í flug­vél­ina þar sem hann kom sér fyrir í sínu sæti og beið brott­farar. Tíu mín­útum áður en vélin tókst á flug var hins vegar komið aftur að honum og hann beð­inn um að sýna vega­bréfið enn einu sinni. „Síðan var mér vísað út á þeim for­sendum að mér yrði ekki hleypt inn í landið. Þeir hefðu talað við heima­varn­ar­ráðið og fengið þau svör að ég myndi ekki kom­ast inn.“ 

„Það voru allir að horfa á mig þegar mér var vísað út.“

Með í för voru tveir íslenskir liðs­fé­lagar hans, en aðrir úr lið­inu höfðu farið fyrr út. „Liðs­fé­lagar mínir sögðu að ég ætti ekki að fara því það væri ekki öruggt. Það væri ekki þess virði ef ég myndi lenda í vand­ræðum. En ég vildi láta á það reyna.

Síðan var ég allt í einu rek­inn út, þar sem ég sat í sæt­inu mínu. Mér leið mjög illa. Þetta var mjög stór flug­vél og það voru allir að horfa á mig þegar mér var vísað út. Ég reyndi að virð­ast sjálfsör­uggur, vera kurt­eis og ganga rólega út, en auð­vitað leið mér mjög illa.

Þeir sögðu að þeir hefðu fengið fyr­ir­mæli frá Banda­ríkj­unum um að mér yrði ekki hleypt inn en ég benti á að þeir hefðu þegar sagt að mér yrði hleypt inn, því ég væri með íslenskt vega­bréf. Þeir sögðu að seinna hefðu þeir fengið annað sím­tal, að þetta væri svona og þeim þætti það miður. Ég gæti fengið tösk­urnar mínar og farið heim.“

Hann segir að starfs­menn flug­fé­lags­ins hafi ítrekað við hann að þeim þætti þetta leitt og boð­ist til þess að end­ur­greiða mið­ana. En það breytir því ekki að flugið fór núna seinni part­inn, án hans. „Ég sá flug­vél­ina takast á loft,“ sagði hann í sam­tali við Stundina.

Á meðan sam­tal­inu stóð mátti heyra að hann var í upp­námi, hann hló mikið og var aug­ljós­lega illa brugðið.

Rétt áður en hann var sendur burt hafði hann fengið skila­boð frá þjálf­ar­anum sínum, með upp­lýs­ingum um hót­elið og her­berg­is­núm­erið. Meisam átti að hafa sam­band þegar hann væri kom­inn. „Hann hringdi síðan í mig og sagði að fleiri væru í vanda vegna þessa til­skip­unar, en sumum væri samt hleypt inn. Mér skilst að Banda­ríkin hleypi breskum rík­is­borg­urum af írönskum upp­runa inn í landið. Af hverju ekki íslenskum?“

 Vonar að stjórnvöld bregðist við

Aðspurður hvernig hann ætli að bregð­ast við þessu sagð­ist hann ætla að hafa sam­band við banda­ríska sendi­ráðið og íslenska utan­rík­is­ráðu­neytið. Hjá WOW-air hafi hann reyndar fengið þau svör að þegar hafi verið rætt við ráðu­neytið og gert grein fyrir stöðu hans. „Ég bað um að fá allar upp­lýs­ingar skrif­legar, því ég vildi mót­mæla því að kom­ast ekki á mótið, en þeir sögð­ust ekki geta gefið mér neinar sann­anir.“

„Ég vil ekki vera ann­ars flokks rík­is­borg­ari.“

Hann seg­ist von­ast til þess að íslensk stjórn­völd bregð­ist við þessu og bendir á að fyrst breskir rík­is­borg­arar af sama upp­runa fái inn­göngu í landið hljóti að vera hægt að semja um það.  „Fyrir utan að ég er íslenskur rík­is­borg­ari. Ef íslenskir rík­is­borg­arar kom­ast inn, af hverju kemst ég ekki inn? Ef aðrir kom­ast inn vil ég kom­ast inn. Ég vil ekki vera ann­ars flokks rík­is­borg­ari. En af því að ég er fæddur í Íran þá er ég stöðv­aður á flug­vell­inum.“

Hann segir að þetta sé mjög und­ar­leg staða. „Ég bý á Íslandi, er íslenskur rík­is­borg­ari og nota íslenskt vega­bréf. Ég á íslenska konu og þriggja ára son. Núna geta þau farið til Banda­ríkj­anna en ekki ég. Það er und­ar­leg til­finn­ing. Helm­ingur fjöl­skyld­unnar er vel­kom­inn þangað en ekki ég.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár