ÍSÍ og Sverrir Stormsker fengu styrk frá Bjarna

Lárus Blöndal, for­seti ÍSÍ, segir að tengsl sín við Bjarna Bene­dikts­son hafi ekki haft áhrif á styrk­veit­ingu ráðu­neyt­is­ins. ÍSÍ fékk stærsta styrk­inn úr ráð­stöf­un­arfé ráð­herra. Bjarni varði jafn­framt nærri fimmt­ungi ráð­stöf­un­arfé síns í fyrra í að styrkja Sverri Storm­sker.

ÍSÍ og Sverrir Stormsker fengu styrk frá Bjarna
Fjár­mála­ráð­herra Bjarni styrkti ÍSÍ um ríf­lega þrjár millj­ónir og Sverri Storm­sker um 250 þús­und krónur. Mynd: Pressphotos

Íþrótta- og Ólymp­íu­sam­band Íslands fékk árið 2014 ríf­lega þrjár millj­ónir króna í styrk frá Bjarna Bene­dikts­syni fjár­mála­ráð­herra úr svoköll­uðu skúffufé, ráð­stöf­un­arfé ráð­herra. Þetta kemur fram í úttekt Vísis um skúffufé ráð­herra. Bjarni varði jafn­framt nærri fimmt­ungi ráð­stöf­un­arfé síns í fyrra með því að styrkja hinn umdeilda tón­list­ar­mann Sverrir Storm­sker um 250 þús­und krónur.

Styrkur Bjarna til ÍSÍ er stærsti ein­staki styrkur allra ráð­herra rík­is­stjórn­ar­innar allt núver­andi kjör­tíma­bil en utan þessa hefur Bjarni verið einna spar­samastur meðal ráð­herra á ráð­stöf­un­arfé sitt. Forseti ÍSÍ er Lárus Blöndal, einn helsti trún­að­ar­maður Bjarna und­an­farin ár. Lárus var í sumar skip­aður af Bjarna stjórn­ar­for­maður hjá Banka­sýslu rík­is­ins. Lög­fræði­stofan Juris, þar sem Lárus er með­eig­andi, hefur enn fremur fengið tugi millj­óna króna frá fjár­mála­ráðu­neyt­inu fyrir ráð­gjöf og aðkeypta þjón­ustu.

RÚV greindi frá því í des­em­ber að lög­fræði­stofan hafi sent inn reikn­inga til ráðu­neyt­is­ins upp á rúm­lega 64 millj­ónir króna á tíma­bil­inu jan­úar 2014 til upp­haf síð­ast­lið­ins nóv­em­ber­mán­aðar. Um var að ræða tvær greiðslur, ann­ars vegar 11,3 millj­ónir króna vegna mál­flutn­ings fyrir EFTA-dóm­stólnum og hins vegar um 53 millj­ónir vegna þjóð­lendu­mála. Lárus var auk þessa full­trúi stjórn­ar­and­stöð­unnar í samn­inga­nefnd Íslands um Icesave.

Ótengt tengslum

Í sam­tali við Stundina upp­lýsir Lárus að umræddur styrkur hafi verið vegna gjöf frá Alþjóða­ólymp­íu­nefnd­inni. Nefndin hafi gefið ÍSÍ bíl að því gefnu að inn­flutn­ings­tollar féllu niður. Fjár­mála­ráðu­neytið hafi borgað skatt­inn með ráð­stöf­un­arfé ráð­herra. Athygli vekur þó að umræddur bíll, Daimler-Benz smárúta, hefur verið lengi á leið­inni til Íslands. Bíllinn er fyrst nefndur í fund­ar­gerðum ÍSÍ árið 2011. „Forseti skýrði einnig frá því að Alþjóða­ólymp­íu­nefndin - IOC hefur ánafnað ÍSÍ Daimler-Benz smárútu en ÍSÍ hefur lengi verið á biðlista vegna þessa sam­starfs­verk­efnis IOC og Daimler-Benz. Óska þarf eftir nið­ur­fell­ingu á tollum og aðflutn­ings­gjöldum vegna bíls­ins,“ segir í fund­ar­gerð 188. fundar fram­kvæmda­stjórnar ÍSÍ frá árinu 2011.

Forseti ÍSÍ
Forseti ÍSÍ Lárus Blöndal hefur verið einn helsti trún­að­ar­maður Bjarna Bene­dikts­sonar und­an­farin ár.

Tveimur árum síðar eða í sept­em­ber árið 2013 er greint frá því í fund­ar­gerð að bíll­inn sé kom­inn til lands­ins en ekki sé búið að vinna toll­af­greiðslu hans. Í árs­skýrslu 2015 er svo greint frá því að bíll­inn  hafi komið til lands­ins í upp­hafi 2014: „Fjár­mála­ráðu­neyti veitti ÍSÍ styrk til mæta kostn­aði við aðflutn­ings­gjöldum vegna inn­flutn­ings á bif­reið­inni en skil­yrði IOC fyrir gjöf­inni var að ÍSÍ yrði ekki fyrir neinum gjöldum vegna inn­flutn­ings á bif­reið­inni.“ Inn­flutn­ings­gjöldin voru sam­tals 3.226.417.

Lárus segir tengsl sín við Bjarna ekki koma styrknum við. Lárus kann­að­ist fyrst ekki við nein tengsl við Bjarna. „Ég þekki mann­inn ágæt­lega en það eru engin þannig tengsl. Það kemur þessu máli ekki neitt við, for­sendan fyrir gjöf­inni af hálfu Alþjóða­ólymp­íu­nefndin var að það séu ekki lagðir tollar á þetta og það kemur styrkur þarna á móti. Þetta er bara umsókn frá ÍSÍ sem er for­senda þess að gjöfin fáist og þetta hefur verið gert í ýmsum löndum,“ segir Lárus.

Sverrir fékk styrk

Líkt og fyrr segir fékk Sverrir Storm­sker styrk frá Bjarna í fyrra, 250 þús­und krónur vegna afmæl­is­út­gáfu hljóm­disks. Sverrir samdi meðal ann­ars Eurovision-fram­lag Íslend­inga árið 1988 en hefur í seinni tíð helst verið þekktur fyrir póli­tísk skrif á blogg­svæði sínu. Síð­ast­liðið haust var Sverrir nokkuð tíður gestur á Útvarpi Sögu en í nóv­em­ber hrós­aði hann Bjarna Bene­dikts­syni sér­stak­lega í útvarps­þætt­inum Fegurð og heilsa. „Nei, nei. Ég hef aldrei til dæmis drullað yfir Bjarna Ben. Ég hef ekki drullað yfir Sigmund Davíð. Ég hef ekki séð neina ástæðu til þess því þeir eru að reyna að gera ágætis hluti. Ég er ekki að drulla yfir alla, alls ekki,“ hefur Útvarp Saga eftir Sverri.

Tónlistarmaður
Tón­list­ar­maður Sverrir fékk 250 þús­und krónur.

Í sumar fjall­aði Stundin um bloggskrif Sverris, sem gengur einnig undir nafn­inu Serðir Monster, þar sem hann upp­nefndi og gerði grín að mál­fari Salmans Tamimi, for­manns Félags múslima á Íslandi. Þá hélt Sverrir því fram að múslimar hafi gert Svíþjóð að mesta „nauðg­un­ar­bæli“ heims og sagði meiri­hluta múslima í Evrópu styðja ISIS. Báðar eru stað­hæf­ingar sem stand­ast ekki fylli­lega skoðun.

„Hr. Mansal Tamimi. Eins og þú getur kannski séð - þá er ég lít­il­lega blyndur. Skryf­blyndur. Ég segi og skrifa: Skuð­brundur. Þarna kom þetta rétt. Ég vil frekar nota orðið „skeyti“ en „bréf“ þegar ég skrifa til múslima. Held að þið eigið auð­veld­ara með að skilja það. Við vest­ur­landa­búar tölum um flug­póst en þið talið lík­lega um flug­skeyti. Það er svona nær ykkar sið­menn­ingu. Hvað um það,“ skrif­aði Sverrir. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
3
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár