Hefur verið 16 daga í hungurverkfalli: Útlendingastofnun leyfir Raisan ekki að fá vini sína í heimsókn

„Við ótt­umst að brátt verði ör hnignun þegar nær­ing­ar­skort­ur­inn fer virki­lega að segja til sín,“ segir vinur Raisans Al-Shimani í sam­tali við Stundina. Útlend­inga­stofnun hótar hæl­is­leit­endum refs­ingu.

Hefur verið 16 daga í hungurverkfalli: Útlendingastofnun leyfir Raisan ekki að fá vini sína í heimsókn
Vinum Raisans var mein­aður aðgangur.

Írakski hæl­is­leit­and­inn Raisan Al-Shimani hefur verið í hung­ur­verk­falli í meira en tvær vikur og er veru­lega af honum dregið. Þegar vinir hans ætl­uðu að þiggja heim­boð hans í gær, veita honum félags­skap, umönnun og and­legan stuðn­ing, var þeim mein­aður aðgangur á grund­velli banns sem Útlend­inga­stofnun hefur sett við gesta­komum til hæl­is­leit­enda.

Til að hitta félaga sína þurfti því Raisan, sem er mátt­far­inn eftir að hafa ekki neytt matar í 16 daga, að fara út og hitta fólkið fyrir utan húsið. „Á ein­hvern ótrú­legan hátt hafði hann orku í það,“ segir einn vin­anna í sam­tali við Stundina. 

Á inn­an­verðri hurð­inni á dval­ar­stað hæl­is­leit­enda að Grens­ás­vegi blasir við til­kynn­ing frá Útlend­inga­stofnun þar sem fram kemur að hæl­is­leit­endum sé strang­lega bannað að fá heim­sóknir og verði reknir burt ef þeir óhlýðn­ast.

Engin und­an­tekn­ing var gerð á regl­unni þrátt fyrir bágt ástand Raisans í gær. „Við komum að lok­uðum dyrum og örygg­is­vörður mein­aði okkur um inn­göngu. Raisan kom út fyrir. Hann drekkur vatn en nú er farið að draga af honum og við ótt­umst að brátt verði ör hnignun þegar nær­ing­ar­skort­ur­inn fer virki­lega að segja til sín,“ segir Gunnar Örv­ars­son, einn af félögum Raisans, í sam­tali við Stundina. 

Létu Útlendingastofnun
vita þremur dögum áður

Vinir Raisans höfðu gert Útlend­inga­stofnun við­vart um heim­sókn­ina með þriggja daga fyr­ir­vara. Á þriðju­dag­inn afhentu þeir stofn­un­inni form­legt bréf þar sem fram kemur að mik­il­vægt að sé Raisan fái notið stuðn­ings og umönn­unar vina sinna. „Vita­skuld verður tekið fyllsta til­lit til ann­ars heim­il­is­fólks,“ segir meðal ann­ars í bréf­inu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Flóttamenn

Fá ekki að læra hér frekar en í Afganistan
FréttirFlóttamenn

Fá ekki að læra hér frekar en í Afganistan

Í Afganistan var þeim bannað að læra. Á Íslandi hafa þær mætt hindr­unum í hvert sinn sem þær hafa reynt að kom­ast í skóla. Þær þrá ekk­ert heitar en að læra íslensku, kom­ast inn í sam­fé­lagið og sækja sér háskóla­menntun. En þær eru fastar; kom­ast ekki út úr störfum sínum sem hót­el­þernur þar sem þær hafa engin tæki­færi til að þjálfa íslensk­una: lyk­il­inn að sam­fé­lag­inu.
Ágreiningurinn um útlendingamálin
Greining

Ágrein­ing­ur­inn um útlend­inga­málin

„Ég tel ekki að slík frum­vörp eigi erindi inn í þingið,“ sagði Svandís Svav­ars­dóttir. „Þar erum við inn­við­a­ráð­herra held ég ósam­mála,“ svar­aði Guðrún Haf­steins­dóttir. Þetta var gam­alt stef og nýtt, að flokk­arnir væru ósam­mála í útlend­inga­málum, en það hafði þó varla verið jafn skýrt fyrr en rétt áður en stjórnin féll, skömmu áður en Guðrún ætl­aði sér að leggja fram frum­varp um lokað búsetu­úr­ræði.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár