Hríseyingur grunaður um að hafa ráðist grímuklæddur inn í tjald sautján ára stúlku og reynt að nauðga henni

Hrís­ey­ingur hefur verið hand­tek­inn af lög­regl­unni á Akureyri grun­aður um að hafa ráð­ist grímu­klæddur inn í tjald franskrar stúlku og reynt að brjóta á henni kyn­ferð­is­lega. Málið kom upp í sumar.

Hríseyingur grunaður um að hafa ráðist grímuklæddur inn í tjald sautján ára stúlku og reynt að nauðga henni

Hrís­ey­ingur hefur verið hand­tek­inn af lög­regl­unni á Akureyri grun­aður um hafa brotið kyn­ferð­is­lega á frönskum ferða­manni. Málið kom upp seint í júlí. Um er að ræða franska stúlku, sautján ára gamla, sem leit­aði til lög­reglu að morgni sunnu­dags og lagði fram kæru gegn umræddum manni. Hún tjáði lög­reglu að hann hefði brotið á henni kyn­ferð­is­lega og enn fremur lagt á hana hendur. Maðurinn var á sínum tíma hand­tek­inn og yfir­heyrður. Honum var þó sleppt en hefur nú verið færður í gæslu­varð­hald til 10. des­em­ber, eftir nið­ur­stöðu lífs­sýna­prófs.

Gunnar Jóhanns­son, lög­reglu­full­trúi í rann­sókn­ar­lög­regl­unni á Akureyri, segir að frétta­til­kynn­ingar sé að vænta á næstu mín­útum vegna máls­ins. „Þetta er fram­hald á þessu máli síðan í sumar. Þetta er ung kona, franskur ferða­maður, sem var í tjaldi og það var ráð­ist inn til hennar og á þeim tíma var maður grun­aður um verkn­að­inn. Hann var lát­inn laus vegna þess að það var ekki hægt að halda honum lengur. Hann var hand­tek­inn aftur í gær eftir að nið­ur­stöður úr DNA prófi lágu fyrir,“ segir Gunnar.

Í fyrstu fréttum af mál­inu var talað um lík­ams­árás en ekki kyn­ferð­is­brot. Í frétt RÚV um málið í sumar var sagt að ókunnur karl­maður hefði ráð­ist á hana slegið hana í and­litið.

Tilkynning lögreglu í heild sinni:

„Þann 25. júlí s.l. var ráð­ist inn í tjald hjá erlendum ferða­manni á tjald­stæð­inu í Hrísey. Um var að ræða 17 ára stúlku og bar hún að maður hefði veist að henni kyn­ferð­is­lega og einnig beitt hana lík­am­legu ofbeldi. Sagði hún árás­armann­inn hafa verið grímu­klæddan. Konan hlaut nokkra áverka. Á sínum tíma var  maður á þrí­tugs­aldri hand­tek­inn  grun­aður um verkn­að­inn og úrskurð­aður í fjög­urra daga gæslu­varð­hald vegna rann­sóknar máls­ins en lát­inn laus eftir að rann­sókn­ar­hags­munir gáfu ekki til­efni til frek­ari gæslu­varða­halds á þeim tíma.

Í gær­dag þann 11. nóv­em­ber var sami aðili hand­tek­inn á ný grun­aður um verkn­að­inn eftir að nið­ur­stöður úr DNA rann­sóknum lágu fyrir. Var hann nú í dag úrskurð­aður í gæslu­varð­hald í Hér­aðs­dómi Norð­ur­lands eystra til 10. des­em­ber n.k. Var það gert á grund­velli alvar­leika máls­ins.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Kynferðisbrot

Myndir af neyðarmóttöku sendar áfram: „Ekki myndir sem ég vildi sjá af sjálfri mér“
FréttirKynferðisbrot

Myndir af neyð­ar­mót­töku sendar áfram: „Ekki myndir sem ég vildi sjá af sjálfri mér“

Lögreglu var heim­ilt að senda myndir sem teknar voru af Guðnýju S. Bjarna­dóttur á neyð­ar­mót­töku fyrir þolendur kyn­ferð­is­of­beldis á verj­anda manns sem hún kærði fyrir nauðgun. Þetta er nið­ur­staða Per­sónu­verndar. Guðný segir ótækt að ger­endur í kyn­ferð­is­af­brota­málum geti með þessum hætti fengið aðgang að við­kvæmum myndum af þolendum. „Þetta er bara staf­rænt kyn­ferð­is­of­beldi af hendi lög­regl­unnar.“

Mest lesið

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Búa við nýtt vindorkuver: „Við náttúrlega venjumst öllu“
5
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.
Rógburður og ruglingur í kosningabaráttunni í Bandaríkjunum
6
ErlentBandaríki Trumps

Róg­burður og rugl­ingur í kosn­inga­bar­átt­unni í Banda­ríkj­unum

Rang­færslum var dreift með orðrómi um veik­indi fram­bjóð­anda, kosn­inga­aug­lýs­ing birt­ist í rangri borg og grun­sam­legar send­ingar til kosn­inga­skrif­stofu inni­héldu duft. Allt setti þetta svip sinn á kosn­inga­bar­átt­una í Banda­ríkj­unum und­an­farna viku. Í ofaná­lag hefur Donald Trump for­seti boðað pen­inga­greiðslur til kjós­enda skömmu fyrir þing­kosn­ing­arnar 3. nóv­em­ber.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár