Gjá milli Bjarna og Benedikts: Tala í kross í erlendum fjölmiðlum

Bjarni Bene­dikts­son for­sæt­is­ráð­herra slær hug­myndir Bene­dikts Jóhann­es­sonar um fast­teng­ingu krón­unnar við annan gjald­miðil út af borð­inu í við­tali við Bloomberg.

Gjá milli Bjarna og Benedikts: Tala í kross í erlendum fjölmiðlum

Bjarni Bene­dikts­son for­sæt­is­ráð­herra segir að fast­teng­ing krón­unnar við evru eða pund sé ekki á döf­inni þrátt fyrir orð Bene­dikts Jóhann­es­sonar fjár­mála­ráð­herra um að slíkt sé til skoð­unar. Þetta kemur fram í frétt Bloomberg í dag þar sem rætt er við for­sæt­is­ráð­herra. 

Haft var eftir fjár­mála­ráð­herra á vef Financial Times í gær að til skoð­unar væri að tengja íslensku krón­una við annan gjald­miðil. Fram kom að honum þætti „absúrd“ að tengja krón­una við Kana­da­doll­ara eða norsku krón­una, enda hafi gengi þeirra gjald­miðla fallið meðan íslenska krónan hafi styrkst umtals­vert síð­ustu mán­uði. Hins vegar mætti skoða val­kosti á borð við að tengja krón­una við evru eða pund. Ríkjandi ástand í mynt­málum væri óþol­andi og breyt­inga þörf. Í við­tali við Bloomberg frétta­stof­una í dag hafnar Bjarni Bene­dikts­son for­sæt­is­ráð­herra því alfarið að fast­teng­ing krón­unnar við annan gjald­miðil sé á döf­inni. 

Athygli vekur að fyr­ir­sögn fréttar Financial Times er “Iceland weighs plan to peg krona to another currency” en fyr­ir­sögnin hjá Bloomberg frétta­stof­unni er “Iceland Won’t Peg Currency for the Foreseeable Future, PM Says”. Þá segir í frétt Bloomberg að Bjarni hafi lagt áherslu á kosti fljót­andi gengis sem heppi­legs fyr­ir­komu­lags til að hjálpa hag­kerfum að aðlag­ast breyttum aðstæðum. Þetta bendi til þess að orð Bene­dikts Jóhann­es­sonar fjár­mála­ráð­herra end­ur­spegli ekki sjón­ar­mið yfir­manns hans, for­sæt­is­ráð­herr­ans (orð­rétt: “sug­gest­ing the finance mini­ster’s comments don’t necessarily reflect the views of his boss”). 

Í við­tal­inu við Bloomberg bendir Bjarni á að nefnd rík­is­stjórn­ar­innar um end­ur­skoðun pen­inga­stefn­unnar leggi það til grund­vallar vinnu sinni að íslenska krónan verði gjald­mið­ill Íslands um fyr­ir­sjá­an­lega fram­tíð. 

Í við­tali við Benedikt Jóhann­es­son sem birt­ist á Eyjunni í dag seg­ist hann bjart­sýnn á að fram náist breyt­ingar á fyr­ir­komu­lagi pen­inga- og gjald­mið­ils­mála. „Já, ég er bjart­sýnn á það. Við vorum að skipa nefnd um umgjörð pen­inga­stefn­unnar. Hún mun vinna með sér­fræð­ingum inn­an­lands og utan að því yfir­lýsta mark­miði að finna leið til þess að auka geng­is­stöð­ug­leika. Ef þetta er mögu­legt þá finnur þessi hópur leið.“ Í sama við­tali segir hann vel hægt að hugsa sér teng­ingu krón­unnar við aðra mynt eða mynt­körfu. Það er ekki í boði að sögn Bjarna.

Athygli vakti þegar ný rík­is­stjórn var mynduð í jan­úar að mál­efni Seðla­bank­ans voru færð úr fjár­mála­ráðu­neyt­inu yfir í for­sæt­is­ráðu­neytið. Í kosn­inga­bar­átt­unni hafði Viðreisn lagt mikla áherslu á mynt- og pen­inga­mál og annað sem snertir Seðla­bank­ann með beinum hætti. Við stjórn­ar­mynd­un­ina komu flokk­arnir sér þó saman um að Bjarni Bene­dikts­son færi áfram með þennan mála­flokk þrátt fyrir að hann færi yfir í annað ráðu­neyti. 

Samkvæmt heim­ildum Stund­ar­innar er sam­band Bene­dikts Jóhann­es­sonar og Bjarna Bene­dikts­sonar afar stirt. Þann 13. mars síð­ast­lið­inn tók­ust frænd­urnir á í þing­sal. Benedikt gagn­rýndi harð­lega hvernig staðið var að aflandskrónu­upp­boði í fjár­mála­ráð­herra­tíð Bjarna. Bjarni svar­aði gagn­rýn­inni og sagði um eft­irá­speki að ræða. Í síð­ustu viku sagði Bjarni að hann vildi ekki að fram færi frek­ari rann­sókn á einka­væð­ingu bank­anna upp úr alda­mót­unum, en Benedikt lýsti gagn­stæðri skoðun. „Svar mitt er ein­falt. Jú, það er ástæða til að ljúka rann­sókn á þessu ferli,“ sagði hann á Alþingi. Það hvernig stjórn­ar­herr­arnir tala nú í kross í erlendum fjöl­miðlum er enn ein vís­bend­ingin um að gjá hafi skap­ast á milli þeirra.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

ACD-ríkisstjórnin

Unnu náið með hæsta­réttar­dómurunum meðan þeir dæmdu Arn­fríðar­mál
Fréttir

Unnu náið með hæsta­réttar­dóm­ur­unum meðan þeir dæmdu Arn­fríðar­mál

Arn­fríður Ein­ars­dóttir lands­rétt­ar­dóm­ari starf­aði sjálf sem vara­dóm­ari með tveimur þeirra hæsta­rétt­ar­dóm­ara sem tóku afstöðu um hæfi hennar og bærni til að kveða upp dóma á sama tíma og málið var til með­ferðar. Hinir þrír sem valdir voru í Lands­rétt í trássi við stjórn­sýslu­lög störf­uðu einnig náið með hæsta­rétt­ar­dóm­ur­unum meðan Hæsti­réttur tók fyrir mál sem hefði getað sett dóm­ara­störf fjór­menn­ing­anna í upp­nám.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár