„Einn af forystumönnum flokksins sem kennir sig við kvenfrelsi segir að konur noti þetta til að upphefja sjálfar sig“

Hanna Birna Krist­jáns­dóttir hélt langa og harð­orða ræðu yfir Ögmundi Jónassyni eftir að hann sagði konur not­færa sér tal um mót­læti í stjórn­málum sjálfum sér til fram­dráttar.

„Einn af forystumönnum flokksins sem kennir sig við kvenfrelsi segir að konur noti þetta til að upphefja sjálfar sig“

Ögmundur Jón­as­sonar, þing­maður Vinstri grænna og for­maður stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefndar Alþingis, var gagn­rýndur harð­lega í Viku­lok­unum á Rás 1 í gær eftir að hann gaf lítið fyrir mál­flutn­ing þess efnis að konur mættu meira mót­læti í stjórn­málum en karlar. 

Eftir að Hanna Birna Krist­jáns­dóttir, fyrr­ver­andi inn­an­rík­is­ráð­herra, hafði haldið því fram að karlar fengju mýkri með­ferð í stjórn­málum en konur, og Björt Ólafs­dóttir þing­kona Bjartrar fram­tíðar, tekið undir það, sagði Ögmundur: 

„Ég er nátt­úr­lega oft búinn að heyra þessa ræðu. Nú eru þær að lýsa sinni upp­lifun en þó hef ég stundum á til­finn­ing­unni að konur séu að nýta sér svona tal sjálfum sér til fram­dráttar. Mér finnst þetta. Mér finnst konur oft, þetta er svona soldið klisju­tal að konur hugsi öðru­vísi en karlar og eitt­hvað svo­leiðis, en ég hef ekki upp­lifað það þannig. Sumir karlar eru frekir og yfir­gangs­samir og aðrir ekki, það sama gildir um konur.“

Hanna Birna og Björt furð­uðu sig á ummæl­unum, sögðu þau ómak­leg og stað­festa mál sitt. Hanna Birna svar­aði Ögmundi í löngu máli:

„Mig langar aðeins hérna, af því Ögmundur segir… mér finnst það alveg ótrú­lega ómak­legt og maka­laust af manni sem situr í flokki sem kennir sig við jafn­rétti að reyna að halda því fram að upp­lifun kvenna af því að þetta sé karla­heimur – sem þetta er, það er ekk­ert ykkur sem sitjið hér að kenna, það er eng­inn að gagn­rýna karl­ana sem eru til í dag – þetta er eld­gömul menn­ing, eld­gömul hefð, karlar hafa stjórnað í stjórn­málum frá því stjórn­mál urðu til. Konur eru rétt að byrja að feta sig inn á þann vett­vang, og er það eitt­hvað ein­kenni­legt að enn séu leifar eftir af því? Nei. En einn af for­ystu­mönnum flokks­ins sem kennir sig við kven­frelsi segir að konur noti þetta til að upp­hefja sjálfar sig, og mér finnst það maka­laus túlkun á okkar upp­lifun, og ég bendi líka á að þetta er ekki bara upp­lifun, Ögmundur. Stað­reyndin er sú að, það er alveg hár­rétt að konur hafa náð miklum árangri á Íslandi; um helm­ingur þing­manna í dag eru konur. En hvernig skyldi standa á því að ef reiknuð er þing­reynsla þess­ara kvenna, þá er hún alltaf helm­ingi styttri en karl­anna? Hvernig skyldi standa á því að íslenskar konur sem fara inn á þing sitja nákvæm­lega helm­ingi skemur en íslenskir karlar? Er eitt­hvað í kon­unum, er ein­hver defect í þeim? Eða gæti það verið að umhverfið hent­aði þeim verr? Gæti það verið að kona sem er með lengstu þing­reynslu á Íslandi er að fara út af þingi, er fer­tug, hún er fer­tug, hún er að fara út af þingi og það er stað­reynd, Ögmundur, að karlar sitja helm­ingi lengur… og að reyna svo að halda því fram að þetta sé eitt­hvað sem konur nota… nei þetta er stað­reynd sem við upp­lifum á hverjum ein­asta degi. Við eigum sem jafn­rétt­is­sam­fé­lag að hafa hug­rekki til að við­ur­kenna það, vinna með það og tala um það en ekki tala eins og það sé ein­hver til­búin upp­lifun.“

Björt Ólafs­dóttir tók undir þetta. „Mér finnst þessi ummæli Ögmundar hreint ótrú­leg og er eig­in­lega dálítið bit yfir þeim,“ sagði hún og bætti því við að umhverfið á Alþingi væri ófjöl­skyldu­vænt, fyrst og fremst starf fyrir mið­aldra karl­menn og það væri baga­legt.

Ögmundur hvik­aði hins vegar ekki frá ummælum sínum. Þegar Björt spurði: „Hvernig er hægt að nota sér þetta til fram­dráttar?“ svar­aði hann: „Mér bara finnst það. Ég er að reyna að halda minni skoðun fram hérna og þetta er bara slegið niður og þið hafið bara ekki heyrt aðra eins ósvífni og að ég skuli leyfa mér að tala svona og svo fram­vegis, sem­sagt, og ég er bara sleg­inn niður. Ég ætla ekki að láta slá mig niður út af þessu. Ég er bara að segja það að ég vil líta á konur og karla sem ein­stak­linga, mis­mun­andi ein­stak­linga, ég vil horfa til þess að staða karla og kvenna er mis­mun­andi í okkar sam­fé­lagi, það end­ur­spegl­ast í öllu sam­fé­lag­inu og við eigum að reyna að taka á því. Og það að ég vilji ekki jafn­rétti, og ég sem ein­stak­lingur sé að svíkja ein­hverjar hug­sjónir um jafn­rétti og jafna stöðu karla og kvenna, ég vísa því algjör­lega frá, algjör­lega.“

Viðtalið hefur vakið nokkra athygli og rit­höf­und­ur­inn Hall­grímur Helgason hrósar Björt og Hönnu Birnu á Facebook:

Birgitta Jóns­dóttir, þing­kona Pírata, leggur orð í belg:

Þá tjáir Ingi­björg Sólrún Gísla­dóttir, fyrr­ver­andi utan­rík­is­ráð­herra og for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar, sig um málið: 

„Áhuga­verð umræða og mjög sterkt inn­legg hjá Hönnu Birnu. Stað­reyndin er sú að feðra­veldið og karla­sam­staðan lifir enn góðu lífi í stjórn­málum. Það skvett­ist á karla og þeir hrista það af sér, það skvett­ist á konur og þær eru eltar uppi þangað til þær segja af sér. Ekki gott að átta sig á hvernig konur nýta það sjálfum sér til fram­dráttar!“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Kynjamál

Mest lesið

Óvissa um tekjuforsendur samgöngusáttmálans
5
StjórnmálSamgöngusáttmáli höfuðborgarsvæðisins

Óvissa um tekju­for­sendur sam­göngusátt­mál­ans

Óvissa virð­ist ríkja um marga lyk­il­þætti í fjár­mögnun sam­göngusátt­mála höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins. Hildur Björns­dóttir borg­ar­stjóri segir það áhyggju­efni að nið­ur­skurður á fjár­lögum muni auka lán­töku­þörf Betri sam­gangna á sama tíma. Hún segir ekki hægt að ráð­ast í fram­kvæmdir sem ekki hafi verið fjár­magn­aðar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.
Búa við nýtt vindorkuver: „Við náttúrlega venjumst öllu“
4
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið í mánuðinum

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
Ástleysið er sárt
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár