Oddfellowreglan á í vök að verjast gegn fyrrverandi féhirði

Oddfellowreglan á eignir upp á þrjá millj­arða króna. Æðstu menn í regl­unni segj­ast hafa þurft að sitja undir hót­unum og dylgjum fyrr­ver­andi félaga og féhirðis um ára­bil. Ómar Sig­urðs­son seg­ist hafa hætt í regl­unni vegna fjár­mála­mis­ferlis og hefur hann ítrekað sakað regl­una um stór­felld skatta­laga­brot. Leið­togar regl­unnar segja ekk­ert vera hæft í ásök­unum Ómars og ekk­ert bendi til að rann­sókn standi yfir.

Oddfellowreglan á í vök að verjast gegn fyrrverandi féhirði
Fyrr­ver­andi Oddfellow Ómar Sig­urðs­son er fremstur fyrir miðju á mynd­inni.

Ómar Sig­urðs­son, fyrr­ver­andi félagi í Oddfellowreglunni til 20 ára og féhirðir einnar stúku regl­unnar, hefur kært stjórn regl­unnar til fjár­mála­ráð­herra fyrir stór­felld skatta­laga­brot. Samkvæmt bréfi fjár­mála­ráðu­neyt­is­ins hefur þeirri kæru verið vísað áfram til rík­is­skatt­stjóra til með­ferðar. Ómar seg­ist í sam­tali við Stundina hafa orðið vitni að ítrek­uðum brotum stúka við skil á virð­is­auka­skatti.

Stundin ræddi við helstu leið­toga regl­unnar og er þeirra saga af mál­inu allt önnur, þeir segja ásak­anir um skatt­svik ekki á neinum rökum reistar og að und­an­farin fjögur ár hafi reglan og leið­togar hennar þurft að sitja undir dylgjum Ómars. Hann hafi sent ótal hót­andi skila­boð og hafi þessi her­ferð haft nei­kvæð áhrif á einka­líf þeirra. Leið­togar regl­unnar segj­ast hafa fundað með lög­regl­unni, sýnt henni skila­boð frá Ómari en þó ákveðið að kæra hann ekki. Þeir hafa lengst af tekið þá afstöðu að svara honum ekki. „Manni finnst mjög vont að sitja í þeirri stöðu að við sem erum ásak­aðir, við höfum ekk­ert í hönd­unum um að við höfum verið kærðir. Við höfum ekk­ert bréf fengið frá neinu yfir­valdi um að það liggi inni kæra á okkar hendur,“ segir Ásmundur Frið­riks­son, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins og vara­stór­sír Oddfellowreglunnar, í sam­tali við Stundina.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

4
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár