Frans páfi: Kapítalismi er „hryðjuverk gegn mannkyninu öllu“

Frans páfi segir efna­hag heims­ins hafa í hávegum guð pen­ing­anna en ekki mann­eskj­una. Jafn­framt sagði hann um átökin í Mið-Aust­ur­löndum: „Þetta er stríð fyrir pen­inga. Þetta er stríð um nátt­úru­auð­lindir. Þetta er stríð um yfir­ráð yfir fólki.“

Frans páfi: Kapítalismi er „hryðjuverk gegn mannkyninu öllu“
Frans páfi hefur verið mun rót­tæk­ari en flestir for­verar hans í emb­ætti.

Frans páfi kom frétta­mönnum á óvart í flugi milli Kraká og Vatík­ans­ins seint á sunnu­dag þegar hann kenndi „guði pen­ing­anna“ um ofbeldi öfga­manna í Evrópu og Mið-Aust­ur­löndum. Sagði hann að vægð­ar­laus heims­mark­að­ur­inn leiddi til þess að afveg­leitt fólk tæki upp á ofbeldi.

„Hryðju­verk verða til þar sem ekk­ert annað er mögu­leiki og þannig mun það verða á meðan efna­hagur heims­ins hefur í hávegum guð pen­ing­anna en ekki mann­eskj­una,“ sagði páf­inn við frétta­menn, sam­kvæmt Wall Street Journal. „Þetta eru bók­stafs­trúar hryðju­verk og þau bein­ast gegn mann­kyn­inu öllu.“

Ummælin voru hluti af svari páfa við spurn­ingu frétta­manns um það hvort tengsl væru á milli íslam og hryðju­verka, með til­liti til árásar múslímskra öfga­manna á prest í Frakk­landi í síð­ustu viku.

„Það er ekki rétt og ekki sann­gjarnt að segja að Íslam snú­ist um hryðju­verk.“

„Ég spyr sjálfan mig hversu margar ungar mann­eskjur við evr­ópu­búar höfum skilið eftir hug­sjóna­snauðar og atvinnu­lausar. Þær snúa sér þá að eit­ur­lyfjum og áfengi eða skrá sig í ISIS,“ sagði hann við frétta­menn.

Sagði hann að engin trú­ar­brögð hefðu hefðu einka­rétt á ofbeldi. Sagði hann að umræður hans við hina ýmsu trú­ar­leið­toga sýndu fram á að múslimar vildu frið og sam­ræður. „Það er ekki rétt og ekki sann­gjarnt að segja að íslam snú­ist um hryðju­verk.“ Hann tók einnig fram að engin trú­ar­brögð ættu ein ofbeld­is­fulla fylgj­endur. „Ef ég tala um íslamskt ofbeldi þá ætti ég að tala um kaþ­ólskt ofbeldi. Það eru ekki allir múslimar ofbeld­is­fullir og ekki allir kaþ­ólikkar eru ofbeld­is­fullir.“ Hann afskrif­aði einnig ISIS sem „lít­inn hóp öfga­fólks“ sem væri ekki ein­kenn­andi fyrir íslam sem heild.

„Það er hægt að drepa með tung­unni jafn auð­veld­lega og með hnífnum.“

„Í nán­ast öllum trú­ar­brögðum er alltaf lít­ill hópur af bók­stafs­trú­ar­fólki,“ jafn­vel í kaþ­ólsku kirkj­unni, sagði páf­inn, þó hóp­arnir beittu ekki alltaf lík­am­legu ofbeldi. „Það er hægt að drepa með tung­unni jafn auð­veld­lega og með hnífnum.“

Ummælin höggva í sama knérunn og þau sem páf­inn lét hafa eftir sér síð­asta mið­viku­dag, þegar Frans sagði að átökin í Mið-Aust­ur­löndum væru stríð vegna efna­hags­legra og póli­tískra hags­muna en ekki trú­ar­bragða eða hinna svoköll­uðu „íslömsku hryðju­verka.“

„Þetta er stríð fyrir pen­inga“

„Þetta er stríð fyrir pen­inga,“ sagði hann á mið­viku­dag­inn. „Þetta er stríð um nátt­úru­auð­lindir. Þetta er stríð um yfir­ráð yfir fólki. Einhver gæti haldið að ég væri að tala um trú­ar­leg stríð. Nei. Öll trú­ar­brögð vilja frið; það er hitt fólkið sem vill stríð.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Stríðið gegn ISIS

Sýrlensk börn reyna að koma í veg fyrir loftárásir með því að kveikja í dekkjum
FréttirStríðið gegn ISIS

Sýrlensk börn reyna að koma í veg fyrir loft­árásir með því að kveikja í dekkjum

Síðan borg­ara­styrj­öldin í Sýrlandi hófst árið 2011 hafa allt að 470 þús­und manns látið lífið og 4 millj­ónir flótta­manna hafa flúið stríðs­á­tökin í land­inu. Loft­árásir hafa verið dag­legt brauð und­an­farin miss­eri fyrir marga íbúa lands­ins, en börnin í borg­inni Aleppo hafa nú tekið upp á því að brenna bíldekk til þess að koma í veg fyrir að sprengjum sé sleppt á borg­ina.
Kemst ítrekað undan drónaárásum: Takið mig af „dauðalistanum“
Erlent

Kemst ítrekað undan dróna­árásum: Takið mig af „dauða­list­anum“

Pakistani sem starfað hefur með frið­ar­sam­tökum í heima­land­inu biðlar til banda­rískra og breskra yfir­valda um að taka hann af „dauða­list­anum“. Segist þegar hafa kom­ist undan fjórum dróna­árásum. Sak­lausir borg­arar og börn eru oftar en ekki á meðal fórn­ar­lamba slíkra árása. Fyrr­ver­andi dróna­stýri­menn gagn­rýna dróna­hern­að­inn og segja hann vatn á myllu öfga­manna.

Mest lesið

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Búa við nýtt vindorkuver: „Við náttúrlega venjumst öllu“
4
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.
Rógburður og ruglingur í kosningabaráttunni í Bandaríkjunum
6
ErlentBandaríki Trumps

Róg­burður og rugl­ingur í kosn­inga­bar­átt­unni í Banda­ríkj­unum

Rang­færslum var dreift með orðrómi um veik­indi fram­bjóð­anda, kosn­inga­aug­lýs­ing birt­ist í rangri borg og grun­sam­legar send­ingar til kosn­inga­skrif­stofu inni­héldu duft. Allt setti þetta svip sinn á kosn­inga­bar­átt­una í Banda­ríkj­unum und­an­farna viku. Í ofaná­lag hefur Donald Trump for­seti boðað pen­inga­greiðslur til kjós­enda skömmu fyrir þing­kosn­ing­arnar 3. nóv­em­ber.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
4
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár