Bretum brá eflaust mörgum hverjum í brún þegar þeir hlustuðu á morgunþátt Rásar 4 í breska ríkisútvarpinu, BBC, í upphafi síðustu viku. Þar mátti heyra viðtal við mann sem biðlaði til breskra og bandarískra yfirvalda að myrða sig ekki. Sagðist maðurinn vera á „dauðalista“ Bandaríkjanna og að hann hefði naumlega komist undan fjórum drónaárásum á síðustu árum. Malik Jalal, sem starfar fyrir friðarsamtök í pakistanska héraðinu Waziristan við landamæri Afganistan, benti á að fjöldi saklausra borgara hefði látið lífið í þessum árásum. Þá sagðist hann vera kominn til Bretlands í þeim tilgangi að láta í sér heyra, að verða tekinn af dauðalistanum, og síðast en ekki síst til að stöðva mannskæðar drónaárásir Bandaríkjanna í heimahéraðinu.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.


























Athugasemdir