Þjóðverjar segja hryðjuverk ekki stefnu Merkel í málefnum flóttamanna að kenna

Samkvæmt nýlegri könnun seg­ist stærstur hluti Þjóð­verja ekki líta svo á að nýleg hryðju­verk í land­inu séu stefnu Angelu Merkel kansl­ara um mót­töku flótta­manna að kenna.

Angela Merkel
Angela Merkel hefur lagt sitt lóð á vog­ar­skál­arnar í til­raun til að takast á við hinn gríð­ar­lega straum flótta­manna.

Stærstur hluti þjóð­verja kennir stefnu Angelu Merkel kansl­ara um mót­töku flótta­manna ekki um nýlegar hryðju­verka­árásir, sam­kvæmt nýlegri könnun. Íslamskt ríki sagð­ist standa á bak við báðar árás­irnar.

Í könn­un­inni, sem fyr­ir­tækið Forsa í Berlín stóð fyrir, kom fram að 69 pró­sent aðspurðra sögð­ust ekki líta svo á að tengsl væru á milli hryðju­verk­anna tveggja í Þýska­landi í síð­asta mán­uði og þeirrar um það bil milljón flótta­manna sem komið hafa inn í landið síð­asta árið.

Flokkur einangrunarsinna eykur fylgi sitt

Þann 24. júlí síð­ast­lið­inn sprengdi sýr­lenskur flótta­maður sig fyrir utan hátíð í Ansbach. Honum hafði verið neitað um hæli og beið hann brott­flutn­ings úr land­inu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Stríðið gegn ISIS

FréttirStríðið gegn ISIS

Sýrlensk börn reyna að koma í veg fyrir loft­árásir með því að kveikja í dekkjum

Síðan borg­ara­styrj­öldin í Sýrlandi hófst árið 2011 hafa allt að 470 þús­und manns látið lífið og 4 millj­ónir flótta­manna hafa flúið stríðs­á­tökin í land­inu. Loft­árásir hafa verið dag­legt brauð und­an­farin miss­eri fyrir marga íbúa lands­ins, en börnin í borg­inni Aleppo hafa nú tekið upp á því að brenna bíldekk til þess að koma í veg fyrir að sprengjum sé sleppt á borg­ina.
Erlent

Kemst ítrekað undan dróna­árásum: Takið mig af „dauða­list­anum“

Pakistani sem starfað hefur með frið­ar­sam­tökum í heima­land­inu biðlar til banda­rískra og breskra yfir­valda um að taka hann af „dauða­list­anum“. Segist þegar hafa kom­ist undan fjórum dróna­árásum. Sak­lausir borg­arar og börn eru oftar en ekki á meðal fórn­ar­lamba slíkra árása. Fyrr­ver­andi dróna­stýri­menn gagn­rýna dróna­hern­að­inn og segja hann vatn á myllu öfga­manna.

11 mín. lestur

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár