Þessi grein birtist upphaflega í Stundinni fyrir meira en 6 árum.

Íslendingur sagður hafa verið myrtur af tyrkneska hernum í Sýrlandi

Hauk­ur Hilm­ars­son, ís­lensk­ur aktív­isti sem hef­ur bar­ist fyr­ir rétt­ind­um hæl­is­leit­enda um ára­bil, er sagð­ur hafa ver­ið drep­inn af tyrk­nesk­um her­sveit­um í fe­brú­ar sam­kvæmt frétt­um er­lend­is frá.

Íslendingur sagður hafa verið myrtur af tyrkneska hernum í Sýrlandi
Haukur Hilmarsson Mynd sem birt var af skæruliðahópi Kúrda.

Haukur Hilmarsson, sem er þekkturfyrir aktívisma og réttindabaráttu á íslandi, er sagður hafa verið drepinn af tyrkneska hernum þann 24. febrúar síðastliðinn í aðgerðunum „Operation Olive Branch“ í norðurhluta Sýrlands.

Tilkynning um fráfall hans hefur verið birt á Facebook-síðu fréttamiðils tyrkneska kommúnistaflokksins og víðar.

Blaðamaður tyrkneska fjölmiðilsins Daily Sabah vakti athygli á málinu á Twitter. Haukur er sagður hafa verið meðlimur MLKP, Marx-Lenínísks kommúnistaflokks í Tyrklandi, og farið þaðan til liðs við YPG.

Tyrkneski herinn hóf umdeilda innreið í Afrin-svæðið sem stjórnað er af Kúrdum í lok janúar, en svæðinu stjórnar YPG, skæruliðahópur Kúrda sem er á meðal þeirra sveita sem hefur náð hvað mestum árangri í baráttunni gegn Íslamska ríkinu í Írak og Sýrlandi.

Athugun íslenska utanríkisráðuneytisins á afdrifum Hauks er enn yfirstandandi. Atburðarásin og yfirlýsing tyrknesku miðlanna hefur því ekki verið staðfest með sjálfstæðum hætti af íslenskum yfirvöldum.

Haukur vakti athygli í mótmælunum í kjölfar bankahrunsins 2008, meðal annars þegar hann flaggaði Bónusfána á þinghúsinu til að vekja athygli á samkrulli stjórnmála og viðskiptalífs.

Þegar hann var handtekinn tveimur vikum síðar safnaðist fjöldi fólks fyrir framan lögreglustöðina á Hverfisgötu og sýndi honum stuðning. Undanfarin ár hefur hann varið tíma í Grikklandi og aðstoðað flóttafólk sem hefur leitað til Evrópu frá Miðausturlöndum og Afríku. Haukur hefur einnig barist fyrir réttindum hælisleitenda á Íslandi. „Hann gerir í raun fátt annað en að hjálpa fólki og berjast fyrir réttindum þeirra sem standa höllum fæti. Í raun hefur líf hans fyrst og fremst snúist um þetta,“ segir áhyggjufullur vinur Hauks sem Stundin ræddi við.

Á meðal þeirra sem Haukur hefur hjálpað eru Paul Ramses og Rosemary Atieno sem búa í Hafnarfirði ásamt tveimur börnum sínum, þeim Fídel Smára og Rebekku Chelsea. Þegar til stóð að senda Ramses til Ítalíu árið 2008 án þess að umsókn hans um hæli hefði verið tekin til efnismeðferðar á Íslandi brutu þeir Haukur Hilmarsson og Jason Thomas Slade sér leið inn á Keflavíkurflugvöll og stöðvuðu tímabundið flugvélina sem átti að ferja Ramses. Málinu lyktaði þannig að dómsmálaráðuneytið dró brottvísun Ramses til baka og gerði honum kleift að koma aftur til landsins. „Þeir voru að berjast fyrir réttlæti og mér fannst þeir vera með ljónshjörtu, vegna þess að á þessum tíma virtist enginn nenna að hlusta. Þannig að ég hef alltaf verið þeim mjög þakklátur fyrir að hafa staðið fyrir það sem þeir töldu rétt,“ sagði Paul Ramses í viðtali við DV árið 2013 og bætti við að með þessu hefðu Haukur og Jason bjargað lífi hans, án þess þó að hafa nokkurn tímann þekkt hann. 

 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Athugasemdir eru ekki leyfðar við þessa grein.
Tengdar greinar

Stríðið gegn ISIS

Sýrlensk börn reyna að koma í veg fyrir loftárásir með því að kveikja í dekkjum
FréttirStríðið gegn ISIS

Sýr­lensk börn reyna að koma í veg fyr­ir loft­árás­ir með því að kveikja í dekkj­um

Síð­an borg­ara­styrj­öld­in í Sýr­landi hófst ár­ið 2011 hafa allt að 470 þús­und manns lát­ið líf­ið og 4 millj­ón­ir flótta­manna hafa flú­ið stríðs­átök­in í land­inu. Loft­árás­ir hafa ver­ið dag­legt brauð und­an­far­in miss­eri fyr­ir marga íbúa lands­ins, en börn­in í borg­inni Al­eppo hafa nú tek­ið upp á því að brenna bíldekk til þess að koma í veg fyr­ir að sprengj­um sé sleppt á borg­ina.
Kemst ítrekað undan drónaárásum: Takið mig af „dauðalistanum“
Erlent

Kemst ít­rek­að und­an dróna­árás­um: Tak­ið mig af „dauðalist­an­um“

Pak­ist­ani sem starf­að hef­ur með frið­ar­sam­tök­um í heima­land­inu biðl­ar til banda­rískra og breskra yf­ir­valda um að taka hann af „dauðalist­an­um“. Seg­ist þeg­ar hafa kom­ist und­an fjór­um dróna­árás­um. Sak­laus­ir borg­ar­ar og börn eru oft­ar en ekki á með­al fórn­ar­lamba slíkra árása. Fyrr­ver­andi drón­a­stýri­menn gagn­rýna dróna­hern­að­inn og segja hann vatn á myllu öfga­manna.

Mest lesið

Sér erfiðleika foreldra og hugsar: „Þetta vil ég ekki“
5
Úttekt

Sér erf­ið­leika for­eldra og hugs­ar: „Þetta vil ég ekki“

Ing­unn Lára Kristjáns­dótt­ir er rúm­lega þrí­tug og hef­ur aldrei fund­ið löng­un til barneigna. Hún tel­ur að inn í það spili ónóg­ur stuðn­ing­ur við barna­fjöl­skyld­ur í ís­lensku sam­fé­lagi. Aðjunkt í fé­lags­fræði seg­ir ástæð­urn­ar fyr­ir fallandi fæð­ing­ar­tíðni gríð­ar­lega flókn­ar en að kerf­ið hafi að hluta brugð­ist fjöl­skyld­um, ekki síst mæðr­um.
Verðbólga hækkar meira en væntingar gerðu ráð fyrir
9
FréttirEfnahagsmál

Verð­bólga hækk­ar meira en vænt­ing­ar gerðu ráð fyr­ir

Vísi­tala neyslu­verðs hækk­aði um 0,46% frá því í júní. Ár­s­verð­bólga mæl­ist nú 6,3 pró­sent en var kom­in nið­ur í 5,8 pró­sent síð­asta mán­uði. Það er meiri hækk­un en spár við­skipta­bank­anna gerðu ráð fyr­ir. Auk­in verð­bólga þýð­ir að minni lík­ur eru á því að stýri­vaxta­hækk­an­ir muni eiga sér stað á þessu ári eins og von­ast var til.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Uppskera íslenskra kartaflna skemmdist á 48 tímum: „Aldrei séð annað eins“
1
FréttirNeytendamál

Upp­skera ís­lenskra kart­aflna skemmd­ist á 48 tím­um: „Aldrei séð ann­að eins“

Heit­ar um­ræð­ur sköp­uð­ust á Face­book í gær eft­ir að Ingi­björg Sól­rún Gísla­dótt­ir greindi frá því að heill poki af nýj­um kart­öfl­um hefði reynst skemmd­ur. Gunn­laug­ur Karls­son, for­stjóri Sölu­fé­lags garð­yrkju­manna, seg­ist aldrei hafa séð ann­að eins. Upp­sker­an hafi skemmst á tveim­ur sól­ar­hring­um.
Öskraði í sturtu því hún mátti ekki hitta dóttur sína
2
Viðtal

Öskr­aði í sturtu því hún mátti ekki hitta dótt­ur sína

Guð­laug Elísa­bet Ólafs­dótt­ir, kúa­bóndi og leik­kona, er orð­in goði. Nýi goð­inn hef­ur upp­lif­að gleði og sorg­ir og varð líf­ið hel­víti lík­ast þeg­ar hún fékk ekki að um­gang­ast barn­unga dótt­ur sína, sem frændi henn­ar og mað­ur hans höfðu ætt­leitt. Stúlk­an vildi fyr­ir nokkr­um ár­um hitta móð­ur sína og eru sam­skipt­in við feð­urna góð í dag en lær­dóm­ur­inn var mik­ill: „Ég hef trú á að það hjálpi mér við að um­gang­ast fólk í djúpu og miklu sorg­ar­ferli.“
„Enginn sem tekur við af mér“
5
Viðtal

„Eng­inn sem tek­ur við af mér“

Það er barn­ing­ur fyr­ir marga að vera sjálf­stætt for­eldri á ein­um tekj­um. En hver er stað­an ef for­eldr­ið er al­far­ið eitt með barn­ið? Hvað ef barn­ið glím­ir við sér­tæk­ar grein­ing­ar? Alma Hrönn Hrann­ar­dótt­ir og Diljá Ámunda­dótt­ir Zoëga eru báð­ar ein­ar á vakt­inni, alltaf. Mæð­urn­ar hafa glímt við heilsu­brest vegna álags, með­vit­að­ar um að ef eitt­hvað kem­ur fyr­ir þær er eng­inn sem tek­ur við af þeim.

Mest lesið í mánuðinum

Uppskera íslenskra kartaflna skemmdist á 48 tímum: „Aldrei séð annað eins“
1
FréttirNeytendamál

Upp­skera ís­lenskra kart­aflna skemmd­ist á 48 tím­um: „Aldrei séð ann­að eins“

Heit­ar um­ræð­ur sköp­uð­ust á Face­book í gær eft­ir að Ingi­björg Sól­rún Gísla­dótt­ir greindi frá því að heill poki af nýj­um kart­öfl­um hefði reynst skemmd­ur. Gunn­laug­ur Karls­son, for­stjóri Sölu­fé­lags garð­yrkju­manna, seg­ist aldrei hafa séð ann­að eins. Upp­sker­an hafi skemmst á tveim­ur sól­ar­hring­um.
Þau sem hafa hagnast ævintýralega á Þorpinu
2
FréttirHúsnæðismál

Þau sem hafa hagn­ast æv­in­týra­lega á Þorp­inu

Ár­ið 2021 keypti hóp­ur fjár­festa í gegn­um eign­ar­halds­fé­lag­ið Þorp­ið 6 ehf. lóð­ir og bygg­ing­ar­rétt­indi á Ár­túns­höfða í Reykja­vík fyr­ir 7,4 millj­arða króna. Fyrr á þessu ári voru lóða­rétt­ind­in seld fyr­ir ell­efu millj­arða króna án þess að nokk­uð hafi ver­ið byggt á svæð­inu. Við­skipt­in sýna vel hvernig fjár­fest­ar geta hagn­ast æv­in­týra­lega með því að kaupa og selja lóð­ir og bygg­ing­ar­rétt­indi á til­tölu­lega skömm­um tíma.
Greiddu 17 milljónir fyrir skýrslu um stöðu drengja
4
Fréttir

Greiddu 17 millj­ón­ir fyr­ir skýrslu um stöðu drengja

Skýrsla um stöðu drengja í skóla­kerf­inu sem unn­in var að beiðni mennta- og barna­mála­ráð­herra og há­skóla-, iðn­að­ar- og ný­sköp­un­ar­ráð­herra kostaði sam­an­lagt um 13,7 millj­ón­ir króna auk virð­is­auka­skatts og hljóð­ar heild­ar­upp­hæð­in því upp á rúm­ar 17 millj­ón­ir. Tryggvi Hjalta­son, grein­andi hjá CCP, er eini höf­und­ur skýrsl­unn­ar. Í sam­tali við Heim­ild­ina seg­ist hann hafa unn­ið að skýrsl­unni sam­hliða öðr­um störf­um en vinn­an tók um eitt og hálft ár.
Hulduheildsali flytur inn hundruð tonna af kjöti
5
RannsóknSamkeppnisundanþága í Landbúnaði

Huldu­heild­sali flyt­ur inn hundruð tonna af kjöti

Ris­ar á ís­lensk­um kjöt­mark­aði, sem fengu í vor um­deild­ar und­an­þág­ur frá sam­keppn­is­lög­um til þess að verj­ast sam­keppni að ut­an, verða á þessu ári um­fangs­mest­ir í kjöt­inn­flutn­ingi og því keppi­naut­ar sjálfs sín. „Von­brigði,“ seg­ir formað­ur at­vinnu­vega­nefnd­ar. Um­fangs­mik­il heild­sala á hundruð­um tonna af inn­fluttu kjöti virð­ist fyrst og síð­ast leiktjald fyr­ir öfl­ug­asta hags­muna­afl­ið gegn inn­flutn­ingi land­bún­að­ar­vara.
Öskraði í sturtu því hún mátti ekki hitta dóttur sína
6
Viðtal

Öskr­aði í sturtu því hún mátti ekki hitta dótt­ur sína

Guð­laug Elísa­bet Ólafs­dótt­ir, kúa­bóndi og leik­kona, er orð­in goði. Nýi goð­inn hef­ur upp­lif­að gleði og sorg­ir og varð líf­ið hel­víti lík­ast þeg­ar hún fékk ekki að um­gang­ast barn­unga dótt­ur sína, sem frændi henn­ar og mað­ur hans höfðu ætt­leitt. Stúlk­an vildi fyr­ir nokkr­um ár­um hitta móð­ur sína og eru sam­skipt­in við feð­urna góð í dag en lær­dóm­ur­inn var mik­ill: „Ég hef trú á að það hjálpi mér við að um­gang­ast fólk í djúpu og miklu sorg­ar­ferli.“
„Ég var bara niðurlægð“
9
Viðtal

„Ég var bara nið­ur­lægð“

Séra Agnes M. Sig­urð­ar­dótt­ir, bisk­up Ís­lands, vill skila skömm­inni til kirkju­þings þar sem hún upp­lifði nið­ur­læg­ingu eft­ir að óvissa varð uppi um lög­mæti embætt­is­gjörða henn­ar. Hún seg­ir að kirkju­þing hafi átt að greiða úr mál­inu og eyða óvissu um stöðu henn­ar. Agnes tel­ur að karl­kyns bisk­up hefði aldrei þurft að þola slíka fram­komu af hálfu kirkju­þings en hún er fyrsta kon­an sem er kjör­in bisk­up.
Þurftu að kalla fólk niður af fjalli til að færa bílana
10
Fréttir

Þurftu að kalla fólk nið­ur af fjalli til að færa bíl­ana

Daní­el Freyr Jóns­son, svæð­is­sér­fræð­ing­ur í nátt­úru­vernd­art­eymi, seg­ir stans­laus­ar tepp­ur hafa ver­ið á bíla­stæð­um við Land­manna­laug­ar áð­ur en far­ið var að inn­heimta bíla­stæða­gjöld á álags­tím­um í sum­ar. Kalla hafi þurft bíl­stjóra nið­ur af fjöll­um til að færa bíl­ana til að greiða leið fyr­ir rút­um. Nýja fyr­ir­komu­lag­ið hafi hlot­ið góð við­brögð hjá gest­um.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár