Mynd: WC

Kemst ítrekað undan drónaárásum: Takið mig af „dauðalistanum“

Pakistani sem starfað hefur með frið­ar­sam­tökum í heima­land­inu biðlar til banda­rískra og breskra yfir­valda um að taka hann af „dauða­list­anum“. Segist þegar hafa kom­ist undan fjórum dróna­árásum. Sak­lausir borg­arar og börn eru oftar en ekki á meðal fórn­ar­lamba slíkra árása. Fyrr­ver­andi dróna­stýri­menn gagn­rýna dróna­hern­að­inn og segja hann vatn á myllu öfga­manna.

Bretum brá eflaust mörgum hverjum í brún þegar þeir hlust­uðu á morg­un­þátt Rásar 4 í breska rík­is­út­varp­inu, BBC, í upp­hafi síð­ustu viku. Þar mátti heyra við­tal við mann sem biðl­aði til breskra og banda­rískra yfir­valda að myrða sig ekki. Sagðist mað­ur­inn vera á „dauða­lista“ Banda­ríkj­anna og að hann hefði naum­lega kom­ist undan fjórum dróna­árásum á síð­ustu árum. Malik Jalal, sem starfar fyrir frið­ar­sam­tök í pakist­anska hér­að­inu Waziristan við landa­mæri Afganistan, benti á að fjöldi sak­lausra borg­ara hefði látið lífið í þessum árásum. Þá sagð­ist hann vera kom­inn til Bret­lands í þeim til­gangi að láta í sér heyra, að verða tek­inn af dauða­list­anum, og síð­ast en ekki síst til að stöðva mann­skæðar dróna­árásir Banda­ríkj­anna í heima­hér­að­inu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Drónahernaður Bandaríkjanna

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár