„Ég er á móti málskotsréttinum“: Frambjóðendur sitja fyrir svörum

Stundin hefur á und­an­förnum vikum spurt alla fram­bjóð­endur til for­seta tíu spurn­inga er varða nokkur af helstu deilu og álita­málum líð­andi stundar. Hér ber að líta svör þeirra við fyrstu spurn­ing­unni: „Hvað finnst þér um máls­skots­rétt for­seta og í hvaða til­fellum getur þú séð fyrir þér að nýta hann?“

„Ég er á móti málskotsréttinum“: Frambjóðendur sitja fyrir svörum
Fram­bjóð­end­urnir. Níu ein­stak­lingar eru í boði sem næsti for­seti lýð­veld­is­ins.

Stundin hefur spurt alla fram­bjóð­endur* til for­seta tíu spurn­inga er varða nokkur af helstu deilu og álita­málum líð­andi stundar. Hér ber að líta svör þeirra við fyrstu spurn­ing­unni:

Hvað finnst þér um málsskotsrétt forseta og í hvaða tilfellum getur þú séð fyrir þér að nýta hann?


Andri Snær Magnason

Andri Snær.
Andri Snær. Rit­höf­undur.

„Ég tel að drögin að nýrri stjórn­ar­skrá séu mjög áhuga­verð lend­ing. Að ákveðin pró­senta kjós­enda geti kraf­ist atkvæða­greiðslu. Að aðhaldið sé hjá þjóð­inni, því það hefur verið algjör­lega upp og ofan hvort 15.000 und­ir­skriftir eða 90.000 und­ir­skriftir hafi náð að knýja fram ákvarð­anir hjá for­seta. Mál­skots­rétt­ur­inn sé þó ennþá í höndum for­seta, þannig að ef lög eru sett að næt­ur­þeli, sem for­seti telur að eigi að fara fyrir þjóð­ina sé það mögu­leiki. Mér þætti verra að setja per­sónu­lega fram tölu, mér finnst mik­il­væg­ara að við komum okkur út úr þessu per­sónu­lega fari, og klárum verkið sem býr til fer­il­inn. Mér finnst vera mik­il­væg­ast að lög­festa þetta, en ekki að þetta séu per­sónu­legir duttl­ungar hver pró­sentan er. Ég veit ekki hvort 10 eða 15% talan er rétt, en við þurfum saman að kom­ast að því. Það eru örugg­lega alls­konar sér­fræð­ingar sem hafa vit á því. Við þurfum líka að þroskast svo þetta sé ekki bara ein­hver takki sem við ýtum á, svo þingið sjálft geti tekið í sam­ein­ingu sæmi­lega óvin­sæla ákvörðun, við verðum að treysta því að það verði ákveð­inn lýð­ræð­is­þroski á bak við þetta. Að virða ákveðnar ákvarð­anir. Að þeir sem ekki eru hlynntir rík­is­stjórn­inni séu ekki bara með til­bú­inn takka á browsernum hjá sér sem stoppar allt. En ég er alveg viss um að það myndi jafna sig út, það verður kannski ýtt dálítið mikið fyrst, en svo bara nennum við lík­lega ekki að kjósa um allt. En mér hefur fund­ist að á und­an­förnum árum höfum við fengið að kjósa nokkrum sinnum of sjaldan.“


Ástþór Magnússon

Ástþór Magnússon.
Ástþór Magn­ús­son. Við­skipta­maður.

„Árið 1996 tal­aði ég um að færa valdið í auknum mæli til fólks­ins og að hefja slíka lýð­ræð­is­þróun með því að virkja mál­skots­rétt for­seta. Álits­gjafar fjöl­miðla sögðu þetta ekki hægt því engin hefð væri fyrir slíku inn­gripi for­seta.

Forseti not­aði mál­skots­rétt­inn átta árum síðar þegar kost­un­ar­að­ilar fram­boðs hans (eig­endur Norð­ur­ljósa-365 miðla) vildu stöðva fjöl­miðla­frum­varpið. Stór mál eins og Kára­hnjúkar, öryrkja­mál, sala HS-veitu og fyrstu Icesave-lögin fóru hins­vegar í gegn með sam­þykki for­seta. Eftir 15 ár í emb­ætti er skoð­ana­kann­anir sýndu vax­andi óvin­sældir for­set­ans greip hann til þess ráðs að nota aftur mál­skots­rétt­inn. Ég nefni þetta til að fólk átti sig betur á að sitj­andi for­seti nýtti sér mál­skots­rétt­inn meðal ann­ars út frá sér­hags­muna­legum sjón­ar­miðum.

Ég vil ekki að geð­þótta­á­kvarð­anir ráði för. Ég vil setja starfs­reglur um mál­skots­rétt­inn byggt á drögum Stjórn­laga­ráðs um að 10% þjóð­ar­innar geti kraf­ist atkvæða­greiðslu. Þannig veit þjóðin og þing­heimur fyr­ir­fram hvað þarf til. Þjóð­ar­at­kvæða­greiðslur er öflug leið til að brúa gjár á milli þings og þjóðar og koma í veg fyrir að þær mynd­ist.

Þjóð­ar­at­kvæða­greiðslur eru eðli­legar í nútíma lýð­ræði. Ég hef bent á leiðir til að lækka kostnað við kosn­ingar, til dæmis með því að nota hrað­banka­kerfið sem kjör­klefa sam­hliða sér­lausnum fyrir þá sem ekki kom­ast í hrað­banka.“


Elísabet Jökulsdóttir

Elísabet Jökulsdóttir.
Elísabet Jök­uls­dóttir. Rit­höf­undur.

„Ég er á móti mál­skots­rétt­inum. Mér finnst að þingið eigi bara að koma sér saman um hlut­ina. Svo getur þjóðin kraf­ist atkvæða­greiðslu í nýju stjórn­ar­skránni. Þetta er svona eins og að klaga í mömmu. Af hverju á einn maður að skrifa undir lög eftir sínum geð­þótta?“

 

 

 


Guðni Th. Jóhannesson

Guðni Th.
Guðni Th. Sagn­fræð­ingur.

„Hann á að vera í stjórn­ar­skrá, en það er mér hjart­ans mál að í stjórn­ar­skrá komi jafn­framt það ákvæði að til­tek­inn fjöldi kjós­enda geti kraf­ist þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu um umdeild lög.

Þannig fær­ist þessi réttur fólks­ins beint í hendur þess, við eigum ekki að þurfa þennan milli­göngu­mann á Bessa­stöðum. Samt finnst mér til vonar og vara að for­seti eigi að hafa áfram vald til þess að synja lögum stað­fest­ingar, þótt áskor­anir ber­ist honum ekki. Það gæti verið vegna hans sjálfs, að sann­fær­ing hans banni honum að skrifa undir lög og það gæti verið við ein­hverjar algjör­lega ófyr­ir­sjá­an­legar aðstæður að ekki vinn­ist tími til að safna und­ir­skriftum, óvissu­á­stand sé með þeim hætti eða eitt­hvað slíkt, þannig að þetta er mín sýn á synj­un­ar­valdið: Færa það beint til fólks­ins, en hafa það áfram í höndum for­seta vegna ein­hverra sér­stakra ófyr­ir­sjá­an­legra ástæðna.“


Guðrún Margrét Pálsdóttir

Guðrún Margrét Pálsdóttir.
Guðrún Margrét Páls­dóttir. Hjúkr­un­ar­fræð­ingur.

„Mér finnst hann mik­il­vægur örygg­is­vent­ill sem ber aðeins að nýta þegar umdeild lög hafa verið sam­þykkt sem myndu valda stór­felldum nei­kvæðum og óaft­ur­kræfum breyt­ingum á högum lands eða þjóðar.“

 

 

 

 


Halla Tómasdóttir

Halla Tómasdóttir.
Halla Tóm­as­dóttir. Fjár­festir.

„Mál­skots­réttur for­seta er mik­il­vægur örygg­is­vent­ill, því hann gerir for­seta mögu­legt að leggja mál í dóm þjóð­ar­innar. Forseti má ekki beita geð­þótta við slíkar ákvarð­anir, og þess vegna þurfa að gilda skýrar leik­reglur um mál­skots­rétt­inn. Það þurfa til dæmis að vera reglur um þann fjölda áskor­ana til for­seta sem þarf svo hann beiti mál­skot­rétt­inum. Þar til mál­skots­rétt­ur­inn hefur verið skil­greindur betur í stjórn­ar­skrá myndi ég setja skýrar og gagn­sæjar vinnu­reglur um beit­ingu hans. Ég vil þó taka fram, að ákveðin mál eiga ekki erindi í þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu, svo sem þau er varða skatta og sjálf­stæði þjóð­ar­innar.  Ég tel sömu­leiðis að for­seti eigi ekki að sam­þykkja lög sem skerða mann­rétt­indi eða vega að tján­ing­ar­frelsi.“


Hildur Þórðardóttir

Hildur Þórðardóttir.
Hildur Þórð­ar­dóttir. Rit­höf­undur.

„Mér finnst hann vera bráð­nauð­syn­legur vegna þess að þingið verður að hafa aðhald. Ég hef sagt alveg frá því ég kom fram í upp­hafi að ég mun nýta mál­skots­rétt­inn fái ég til þess nægar und­ir­skriftir kosn­inga­bærra manna. Ég vil miða við 10% eins og stendur í nýju stjórn­ar­skránni, vegna þess að mér finnst nýja stjórn­ar­skráin vera plaggið sem við eigum að fara eftir. Ég held að það sé alveg nógu mikið mál að safna 30 þús­und und­ir­skriftum til þess að þetta verði ekki vanda­mál. Mig langar að und­ir­skilja líka þessi lög sem eru til­tekin í nýju stjórn­ar­skránni hvað varðar mann­rétt­indi minni­hluta­hópa og skatta­lög og svo­leiðis, að þau geti ekki farið í þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu. Þegar þingið er að starfa á skjön við þjóð­ina og vilja hennar þá kemur kurr og óánægja í sam­fé­lagið. Það er bara greini­legt þegar það er að ger­ast. Ég vil samt fá und­ir­skrift­irnar. En þegar þingið er ekki að efna lof­orðin sín þá þarf að hafa þennan varnagla. Ef þingið starfar sam­kvæmt vilja þjóð­ar­innar þá verður þetta ekk­ert vanda­mál. Þetta er bara þegar þingið er að gera ein­hverjar glor­íur, þegar þeir halda að þeir hafi frítt spil á milli kosn­inga. Við kjósum þá til ákveð­inna starfa og ef þeir sinna þeim ekki verðum við að fá að taka í taumana. Ég vil gæta hags­muna fólks­ins og lýð­ræð­is­ins í land­inu. For­set­inn hefur umboð frá þjóð­inni. Hann á að vera var­nagli og örygg­is­vent­ill þjóð­ar­innar. Hann á ekki að vera undir hæl flokk­anna. Hann er þjónn fólks­ins.“


Sturla Jónsson

Sturla Jónsson.
Sturla Jónsson. Athafna­maður.

„Í ein­hverjum aðstæður mun ég meta hvort mér finn­ist þörf á að setja það fram, en hins vegar fái ég 25.000 und­ir­skriftir, þá fer málið í þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu. Við tölum um að koma vald­inu til fólks­ins, og þetta er byrj­unin, á meðan við erum ekki búin að breyta stjórn­ar­skránni. Þá verður þetta bæði hjá fólk­inu, af því ég mun hik­laust gera þetta, og svo ef mér líst illa á mál sem ekki hefur komið í fjöl­miðla þá mun ég einnig nýta rétt­inn. Ég held það væri ansi margt hér á landi sem væri öðru­vísi ef fólk gæti tekið þátt í því sem er að ger­ast hérna.“


* Fram­bjóð­and­inn Davíð Oddson fékk spurn­ing­arnar sendar og tæki­færi til þess að svara þeim en hefur ekki gert það. Berist svör frá honum mun þeim verða bætt við jafn­óðum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Forsetakosningar 2016

Saga af tveimur forsetum: Helgi fokking Björns. Og hnykkurinn
Karl Th. Birgisson
Skoðun

Karl Th. Birgisson

Saga af tveimur for­setum: Helgi fokk­ing Björns. Og hnykk­ur­inn

Guðni Th. Jóhann­es­son hefur flutt um 35 ræður og erindi frá því hann varð for­seti. Hann hefur notað þau í að kveða niður þjóð­rembu og forð­að­ist meðal ann­ars upp­hafn­ingu þjóð­kirkj­unnar. Hann sker sig frá Ólafi Ragnari Gríms­syni, sem í kosn­inga­bar­áttu sinni 1996 hafði sem ein­kenn­islag „Sjá dagar koma“ eftir Davíð Stef­áns­son, þar sem alda­löngum þrautum Íslend­inga er lýst.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár