Fimm manna fjölskylda ætlar engu að henda

Hjónin Guðrún Ásdís Stur­laugs­dóttir og Tjörvi Ósk­ars­son hafa dregið veru­lega úr allri sóun á und­an­förnum árum. Nýlega tóku þau ákvörðun um að stefna að því að lítið sem ekk­ert rusl fari út af heim­il­inu sem ekki má end­ur­vinna. Dæturnar þrjár eru spenntar fyrir áskor­un­inni og taka virkan þátt í verk­efn­inu.

Fimm manna fjölskylda ætlar engu að henda
Leggja sitt að mörkum Tjörvi og Guðrún og dæt­urnar þrjár, Freyja, Steinunn og Vaka, vilja gera allt sem í þeirra valdi stendur til að stuðla að umhverf­is­vernd. Mynd: Úr einkasafni

Það má segja að við höfum tekið fyrsta skrefið í átt að þessum lífs­stíl fyrir tveimur árum, þegar við eign­uð­umst yngstu dóttur okkar og tókum ákvörðun um að nota taubleiur fyrir hana. Þegar við vorum byrjuð að nota taubleiur var aug­ljós­lega næsta skref að hætta að nota blaut­þurrkur. Svona vatt þetta upp á sig,“ segir Guðrún Ásdís Stur­laugs­dóttir, þriggja dætra móðir á Höfn í Horna­firði, sem hefur, ásamt eig­in­manni sínum, Tjörva Ósk­ars­syni, tekið ákvörðun um að færa sig nær svoköll­uðum rusl­fr­íum lífs­stíl (e. Zero Waste Lifestyle).

Á þeim tíma þegar sú yngsta fædd­ist bjó fjöl­skyldan í bænum Terrassa á Spáni. Þar eru flokk­un­ar­mál komin tals­vert lengra á veg en víð­ast hvar á Íslandi. „Þar vönd­umst við á að flokka allt rusl og héldum því áfram að mestu leyti þegar við komum aftur heim. Áður en við fluttum út gáfum við líka allt dótið okkar. Ég gleymi því ekki hvað það var frelsandi til­finn­ing, að eiga ekki allt þetta dót og vera engu háður nema fjöl­skyld­unni. Á Spáni tókum við líka ákvörðun um að kaupa sem allra minnst af öllum hlutum. Þar er hefð fyrir því að fólk skilji heil hús­gögn sem það er hætt að nota eftir úti á götu á ákveðnum dögum og við nýttum okkur það. Við reyndum líka að nýta allt sem féll til. Þannig að það má segja að við höfum lengi verið að taka skref í átt að rusl­fr­íum lífs­stíl, án þess að pæla mikið í því sem end­an­legu mark­miði.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
4
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár