Eiginkona Ólafs týndi veskinu sínu á Kvíabryggju: Fangi fann það

Ingi­björg Krist­jáns­dóttir, eig­in­kona Ólafs Ólafs­sonar týndi vesk­inu sínu í heim­sókn í fang­els­inu á Kvía­bryggju. Hún seg­ist líta fang­elsið öðrum augum eftir reynslu sína af því.

Eiginkona Ólafs týndi veskinu sínu á Kvíabryggju: Fangi fann það
Ingi­björg Krist­jáns­dóttir Eig­in­kona Ólafs Ólafs­sonar varð fyrir því að týna veski sínu, með pen­ingum, skil­ríkjum og fleiru, á fang­els­is­svæð­inu á Kvía­bryggju. Mynd: Samsett

Á dög­unum var Ingi­björg Krist­jáns­dóttir í heim­sókn á Kvía­bryggju þar sem hún var komin til að hitta eig­in­mann sinn, kaup­sýslu­mann­inn Ólaf Ólafsson, sem nýverið var dæmdur í fjög­urra og hálfs árs fang­elsi fyrir aðkomu sína að Al-Thani mál­inu. Svo óheppi­lega vildi til fyrir Ingi­björgu að á leið sinni úr fang­els­inu tap­aði hún veski sínu. Sú saga gengur meðal fanga á Kvía­bryggju að veskið hafi verið troð­fullt af seðlum. Samfangi Ólafs fann veskið.

Fann veskið á bílaplaninu

Í svari við fyr­ir­spurn Stund­ar­innar seg­ist Ingi­björg stað­festa þessa frá­sögn með ánægju. „Ég var í heim­sókn á Kvía­bryggju og þegar ég var að fara frá staðnum þá hef ég lík­lega misst veskið mitt á jörð­ina.  Ég átt­aði mig hins vegar ekki á því fyrr en að Ólafur hringir í mig morg­un­inn eftir, og segir mér að sam­fangi hans hafi komið til hans rétt í þessu og látið hann fá veskið. Hann hafði fundið það á bílaplan­inu þegar hann fór út í göngutúr um morg­un­inn. Og já ég var með pen­ing í vesk­inu og auð­vitað skil­ríki og kort, og allt skil­aði þetta sér,“ skrifar Ingi­björg.

„Mér finnst þetta ótrú­lega flott hjá drengnum og ég reyndi að þakka honum fyrir eins vel og ég gat og vona að það hafi skilað sér.“

Ótrúlega flott hjá fanganum

Að sögn Ingi­bjargar vildi heið­ar­legi fang­inn lítið sem ekk­ert í fund­ar­laun, Ólafur hafi spurt hann hvað hann vildi og svarið var: Kók. „Ég bað Ólaf að spyrja sam­fang­ann hvort ég gæti eitt­hvað gert fyrir hann, hvort það væri eitt­hvað sem honum van­hag­aði um og hann bað um kók­flösku, það var nú ekki meira sem pilt­ur­inn bað um í stað­inn fyrir þennan greiða. Mér finnst þetta ótrú­lega flott hjá drengnum og ég reyndi að þakka honum fyrir eins vel og ég gat og vona að það hafi skilað sér,“ skrifar Ingi­björg.

„Lífsins böl verður að hismi þegar maður stendur frammi fyrir þess­ari stór­brotnu nátt­úru.“

Kvíabryggja hefur áhrif á andann

Ingi­björg segir að þetta atvik hafi orðið til þess að hún sjái fang­elsið með öðrum augum en áður. Hún seg­ist hafa fengið jákvæða til­finn­ingu fyrir staðnum og nú finn­ist henni auð­veld­ara að fara í heim­sókn til eig­in­manns síns. „Ég má kannski nota tæki­færið að koma því á fram­færi að mér finnst þessi staður afskap­lega mann­legur. Þegar ég kem þarna í heim­sókn, þá er alltaf tekið vel á móti mér og ég held að menn séu ein­fald­lega að reyna að gera sér og öðrum dvöl­ina þarna eins þol­an­lega og hægt er. Það getur vel verið að menn hafi mis­fal­legar sögur að segja og lífið hefur leikið suma grátt, en í grunn­inn þá kemur mér það ekki við.  Það er hins vegar ein­stök nátt­úru­feg­urð á Kvía­bryggju og ég er sann­færð um að það hefur áhrif á and­ann á staðnum. Lífsins böl verður að hismi þegar maður stendur frammi fyrir þess­ari stór­brotnu nátt­úru,“ segir Ingi­björg.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Dómsmál

FréttirDómsmál

Ógnaði heim­il­is­fólki með heima­gerðu sverði

Hér­aðs­dómur Vest­ur­lands dæmdi fyrir skömmu mann fyrir lík­ams­árás, hús­brot og akstur undir áhrifum áfengis. Í lýs­ingum vitna er sagt frá því að mað­ur­inn hafi kýlt heim­il­is­mann sem reyndi að koma í veg fyrir að mað­ur­inn kæmi inn um glugga á hús­inu. Þá er einnig sagt frá því að mað­ur­inn hafi á einum tíma­punkti dregið fram heima­gert sverð á sveiflað því í kringum sig fyrir utan húsið.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár