Fær ekki skuldaleiðréttingu vegna mistaka í tölvu

Átti að vera eins auð­velt og að panta pizzu, en eldri kona í Breið­holt­inu fékk áfall þegar henni var sagt að umsóknin hefði ekki farið í gegn

Fær ekki skuldaleiðréttingu vegna mistaka í tölvu
Greta Freydís Kalda­lóns Gerði mis­tök í tölv­unni og missir af almennu skulda­leið­rétt­ing­unni vegna þeirra. Mynd: Kristinn Magnússon

Ég veit að ég átti rétt á þessu,“ segir Greta Freydís Kalda­lóns, hús­næð­is­eig­andi í Hóla­hverf­inu í Breið­holti, sem missir af skulda­leið­rétt­ingu rík­is­stjórn­ar­innar vegna mis­taka í tölvu­að­gerð.

Umsókn var skilyrði

Þegar rík­is­stjórnin ákvað að fram­fylgja kosn­inga­lof­orði Fram­sókn­ar­flokks­ins um 300 millj­arða króna lækkun á hús­næð­is­skuldum almenn­ings var ákveðið að gerð yrði krafa um að hús­næð­is­eig­endur sæktu sér­stak­lega um nið­ur­fell­ing­una, fremur en að hún yrði sjálf­virk og sjálf­sögð. Þá lá fyrir að þeir sem ekki myndu sækja um leið­rétt­ing­una fyrir lok dags 1. sept­em­ber í fyrra myndu verða af henni. Greta var ein af þeim sem vildu fá pen­ing­ana sem voru í boði, en henni mistókst.

 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Skuldaleiðréttingin

Fréttir

Grein­ing­ar­deild Arion banka: Banka­skatt­ur­inn ein af ástæðum þess hve vextir eru háir

Sérstaki skatt­ur­inn á fjár­mála­fyr­ir­tæki var lög­festur árið 2010 en víkk­aður út og hækk­aður umtals­vert í tíð síð­ustu rík­is­stjórnar til að standa undir 80 millj­arða rík­is­út­gjöldum vegna höf­uð­stólslækk­unar verð­tryggðra hús­næð­is­lána. Grein­ing­ar­deild Arion banka full­yrðir að skatt­ur­inn hafi þrýst upp útlána­vöxtum bank­anna.
Leiðari

Jón Trausti Reynisson

Svikna kyn­slóðin í landi jakka­fatanna

Íslenski draum­ur­inn er í upp­námi. Í ein­fald­aðri mynd sér ungt fólk nú fram á að flytja á jað­ar­svæði, borga leigu til GAMMA og greiða veg­tolla á leið í og úr þjón­ustu­störfum fyrir ferða­menn til að fjár­magna vega­kerfi fyrir ferða­menn. Á þess­ari öld hafa ráð­stöf­un­ar­tekjur elsta ald­urs­hóps­ins auk­ist rúm­lega fimmt­án­falt meira en ráð­stöf­un­ar­tekjur fólks undir þrí­tugu og eignir safn­ast saman hjá eldri kyn­slóð­inni.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár