„Ég spurði hann mjög oft“

Grunaði Gísla en full­yrti í útvarps­við­tali að engar upp­lýs­ingar hefðu lekið úr ráðu­neyt­inu – Segir allt hafa verið á huldu um upp­runa minn­is­blaðs­ins

„Ég spurði hann mjög oft“

Þórey Vil­hjálms­dóttir, sem var aðstoð­ar­kona Hönnu Birnu Krist­jáns­dóttur fyrr­ver­andi inn­an­rík­is­ráð­herra, seg­ist hafa þrá­spurt Gísla Frey Val­dórs­son sam­starfs­mann sinn á sínum tíma hvort hann hefði lekið minn­is­blað­inu um hæl­is­leit­end­urna Tony Omos og Evelyn Glory Joseph úr inn­an­rík­is­ráðu­neyt­inu. Þetta kemur fram í ítar­legu við­tali sem birt­ist við Þóreyju í Sunnu­dags­mogg­anum í dag. „Auðvitað spurði ég hann og Hanna Birna spurði hann ítrekað að mér við­staddri. Og hann sagði alltaf við okkur að hann hefði ekki sent þetta minn­is­blað,“ er haft eftir henni. „Ég spurði hann beint um þetta og ég spurði hann mjög oft. Alltaf neit­aði hann, og þver­neit­aði.“ 

Á fyrstu mán­uðum leka­máls­ins hélt Þórey því hins vegar ítrekað fram að búið væri að stað­festa að engum gögnum um hæl­is­leit­endur hefði verið lekið úr inn­an­rík­is­ráðu­neyt­inu. Í við­tali Morg­un­út­varps Rásar 2 við Þóreyju þann 17. jan­úar 2014 full­yrti hún að það væri „raun­veru­lega búið að taka fyrir það að þessi gögn hafi farið, eða ein­hver gögn er varða þessa hæl­is­leit­endur hafi farið úr gögnum ráðu­neyt­is­ins að minn­is­blað­inu hefði verið lekið úr inn­an­rík­is­ráðu­neyt­inu“ og vís­aði í athugun rekstr­ar­fé­lags Stjórn­ar­ráðs­ins máli sínu til stuðn­ings.

Í kjöl­farið kvart­aði fram­kvæmda­stjóri rekstr­ar­fé­lags­ins til ráðu­neyt­is­stjóra inn­an­rík­is­ráðu­neyt­is­ins og gerði athuga­semdir við mál­flutn­ing Þóreyjar sem hann taldi vill­andi. Hann hvatti ráðu­neyt­is­stjór­ann til að upp­lýsa starfs­fólk ráðu­neyt­is­ins um stað­reyndir máls­ins, svo rétt væri um það fjallað. Ekki var orðið við þess­ari beiðni, því á næstu vikum og mán­uðum gaf Hanna Birna Krist­jáns­dóttir ráð­herra sams konar svör á Alþingi þegar hún var spurð um málið.

Í við­tal­inu við Þóreyju kemur fram að í árdaga leka­máls­ins hafi enn allt verið „á huldu um hvaðan minn­is­blaðið títt­nefnda hafi komið og hvers vegna upp­lýs­ing­arnar hafi ratað í fjöl­miðla“. Þetta er rangt, því líkt og fram kemur í dóms­skjölum máls­ins fengu ráð­herra, ráðu­neyt­is­stjóri og báðir aðstoð­ar­menn skjalið á póst­hólfið sitt frá skrif­stofu­stjóra í ráðu­neyt­inu kl. 17:17 þann 19. nóv­em­ber árið 2013. Þá lá strax fyrir að skjalið, sem lekið hafði verið, ætti upp­runa sinn í inn­an­rík­is­ráðu­neyt­inu.

Dýpkaði margt í lífi Þóreyjar
Þórey tjáir sig um eitt og annað í við­tal­inu við Morg­un­blaðið og segir leka­málið hafa verið með miklum ólík­indum. „Ég held að ef ég sæi bíó­mynd um það þá myndi mér finn­ast hún ótrú­leg. Í þessu máli er sann­leik­ur­inn ótrú­legri en nokkur lyga­saga,“ er haft eftir henni. Um Gísla Frey, sem dæmdur var fyrir trún­að­ar­brotið í inn­an­rík­is­ráðu­neyt­inu í nóv­em­ber í fyrra, segir Þórey: „Við unnum gríð­ar­lega náið saman á hverjum degi og hann vissi mjög mikið um mitt líf og það sem ég var að ganga í gegnum á þessum tíma – það særði mig mikið að hugsa til þess eft­irá að hann skyldi ekki stíga fram fyrr.“ Fram kemur að þótt reynslan af leka­mál­inu hafi verið sárs­auka­full hafi hún dýpkað margt í lífi Þóreyjar. 

Erfitt fyrir Hönnu Birnu
Þórey segir að sér hafi þótt erf­ið­ast að horfa upp á það sem Hanna Birna Krist­jáns­dóttir þurfti að ganga í gegnum. Segir hún að erfitt hafi verið að „sjá hvað var gengið nærri henni í þessu máli bæði póli­tískt og per­sónu­lega.“

Líkt og fram hefur komið fól inn­an­rík­is­ráðu­neytið lög­manns­stof­unni LEX að kanna hvort umfjöllun fjöl­miðla um leka­málið gæfi til­efni til höfð­unar meið­yrða­máls sum­arið 2014. Í kjöl­farið höfð­aði Þórey mál gegn blaða­mönnum DV, en að því er fram kemur í við­tal­inu við Morg­un­blaðið ákvað hún þetta eftir sam­tal við ömmu sína. Alls fékk LEX um 860 þús­und krónur frá hinu opin­bera. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Lekamálið

Mest lesið

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Búa við nýtt vindorkuver: „Við náttúrlega venjumst öllu“
5
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár