Ítrekaðar duldar auglýsingar hjá Stöð 2 og Bylgjunni

Rit­höf­undur og ferða­þjón­ustu­að­ili greina frá því að þeir hafi ekki fengið að koma í við­tal hjá Bylgj­unni vegna þess að þeir borg­uðu ekki fyrir það. Dulin við­skipta­skila­boð eru ólög­leg. Fjöl­miðla­nefnd skoðar keypta umfjöllun Mjólk­ur­sam­söl­unnar hjá Íslandi í dag.

Ítrekaðar duldar auglýsingar hjá Stöð 2 og Bylgjunni
Mannauðs­stjóri og aug­lýs­inga­stjóri á 365-miðlum Svanur Val­geirs­son segir að fyr­ir­tækið muni færa út kví­arnar í keyptri umfjöllun í sjón­varpi. Mynd: Samsett

Ólöglegt er að dul­búa aug­lýs­ingar sem óborg­aðar umfjall­anir, en engu að síður hafa Stöð 2 og Bylgjan birt seld við­töl án þess að greina áhorf­endum frá því að við­mæl­and­inn hafi borgað fyrir að koma í þætt­ina.
Svanur Val­geirs­son, sem er bæði mannauðs­stjóri og aug­lýs­inga­stjóri á 365-miðlum, sem senda út Bylgjuna og Stöð 2, segir að fyr­ir­tækið muni færa út kví­arnar í keyptri umfjöllun í sjón­varpi.

Ekki verður þó betur séð en kví­arnar séu komnar ansi langt út nú þegar á útvarps­stöðvum mið­ils­ins, Stöð 2 og Frétta­blað­inu hvað varðar duldar aug­lýs­ingar. 

Duldar aug­lýs­ingar, sem eru ólög­legar, eru skil­greindar svo í Fjöl­miðla­lögum: „Dulin við­skipta­boð eru kynn­ing í máli eða myndum á vörum, þjón­ustu, heiti, vöru­merki eða starf­semi aðila sem fram­leiðir vöru eða veitir þjón­ustu í dag­skrár­liðum þegar slík kynn­ing er til þess ætluð af hálfu fjöl­miðla­veitu að þjóna aug­lýs­inga­mark­miðum og gæti villt um fyrir neyt­endum að því er eðli hennar varðar.“

Eðli máls sam­kvæmt er oft erfitt að koma auga á duldar aug­lýs­ingar en hér verða þó rakin nokkur skýr dæmi. Annars vegar má nefna rit­höf­und og hins vegar eig­anda ferða­skrif­stofu sem fengu ekki að koma í útvarpið án þessa að borga fyrir. Auk þess má nefna mál, sem Stundin fjall­aði um á dög­unum, um umfjöllun Íslands í dag um aug­lýs­inga­her­ferð Mjólk­ur­sam­söl­unnar (MS) 28. maí síð­ast­lið­inn, sem var unnin gegn greiðslu MS til 365.
Svanur Val­geirs­son, aug­lýs­inga- og mannauðs­stjóri 365, sagði þá að það hefðu verið mis­tök dag­skrár­gerð­ar­manna að taka ekki fram eða birta skjá­borða sem gæfi til kynna að um aug­lýs­ingu væri að ræða. 
Þessi sömu mis­tök virð­ast þó hafa átt sér stað fáeinum dögum síðar í Bítinu á Bylgj­unni en innslagið var nán­asta end­ur­tekið í útvarps­þætt­inum 1. júní. Á engum tíma­punkti nefna dag­skrár­gerð­ar­menn Bítisins að um sé að ræða aug­lýs­ingu.

Athuga­semd 6. júlí

 

Þessi frétt birt­ist í síð­asta tölu­blaði Stund­ar­innar 2. júlí síð­ast­lið­inn. Í frétta­til­kynn­ingu frá Fjöl­miða­nefnd í dag kemur fram að ekk­ert verði gert í máli Ísland í dag og Mjólk­ur­sam­söl­unnar þar sem það hafi verið mis­tök hjá fyr­ir­tæk­inu að merkja innslagið ekki sér­stak­lega sem aug­lýs­ingu. Ekki er litið til þess að þessi sömu mis­tök hafi átt sér stað í Bítinu nokkrum dögum eftir Ísland í dag innslagið.

„Nefndin hefur einnig sent 365 miðlum erindi vegna frétta af duldri aug­lýs­ingu í sjón­varps­þætt­inum Ísland í dag á Stöð 2 þann 28. maí sl. Fjallað var um málið í Kjarn­anum 7. júní og Stund­inni 11. júní sl., þar sem haft var eftir aug­lýs­inga- og mannauðs­stjóra 365 miðla að mis­tök hefðu átt sér stað við efn­is­vinnslu og hafi hið kost­aða efni af þeim sökum ekki verið auð­kennt sem slíkt.

Í erindi fjöl­miðla­nefndar til 365 miðla segir að nefndin geri að svo stöddu ekki frek­ari athuga­semdir við þá duldu aug­lýs­ingu á Stöð 2, sem hér hefur verið vísað til, þar sem fram hafi komið að mis­tök við efn­is­vinnslu hafi átt sér stað hjá 365 miðlum. Um leið ítrekar fjöl­miðla­nefnd að lögum sam­kvæmt eru dulin við­skipta­boð bönnuð og að 365 miðlum, sem og öðrum fjöl­miðlum, ber að aðgreina við­skipta­boð og rit­stjórn­ar­efni með skýrum hætti. Þá eru óheimil við­skipta­boð og fjar­kaup fyrir tóbaks­vörur, áfengi, lyf­seð­ils­skyld lyf og happ­drættis- og veð­mála­starf­semi, sem ekki hefur leyfi hér á landi,“ segir í til­kynn­ingu Fjöl­miðla­nefndar.

 

Þurfti að borga til að gefa

Margeir Ing­ólfs­son, annar eig­andi ferða­skrif­stof­unnar Ferðin, full­yrðir að sér hafi verið tjáð af Heimi Karls­syni, þátta­stjórn­anda í Bítinu, að hann þyrfti að borga til að koma í við­tal í þætt­inum. Margeir segir í sam­tali við Stundina að hann hafi haft sam­band við þátta­stjórn­endur í því mark­mikið að gefa hlust­endum gjafa­bréf í ferðir hjá félag­inu. 

„Ástæða þess að mér datt í hug að bjóða Bylgj­unni þetta var að ég hafði í tvígang, nokkrum vikum áður, heyrt þá Bít­is­menn vera með full­trúa frá Úrval Útsýn í við­tali hjá sér þar sem þeir kynntu sér­stakar ferðir hjá Úrval Útsýn og gáfu síðan gjafa­bréf í lok við­tals­ins,“ segir Margeir.

Margeir segir að eftir að hafa sent nokkra tölvu­póst hafi hann fengið sím­hring­ingu frá Heimi. „Mér var þá kurt­eis­is­lega bent á að það gengi ekki þannig fyrir sig að ég kæmi bara í við­tal með gjafa­bréf með mér, því að allt svona þurfi að borga þeim fyrir, enda eins og hann sagði: „Það þurfa allir salt í graut­inn“. Mér var sagt að allt svona fari í gegnum aug­lýs­inga­deild­ina og ég ætti að hafa sam­band við þá ef ég vildi koma með gjafa­bréf fyrir áheyr­endur Bylgj­unnar. Þetta fór síðan ekki lengra þar sem mér datt ekki í hug að fara að borga Bylgj­unni fyrir það að fá að gefa les­endum þeirra gjafa­bréf, án þess að það kæmi fram að stöðin rukk­aði sér­stak­lega fyrir það. Mér fannst þetta svo­lítið „sjúkt“,“ segir Margeir.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Duldar auglýsingar

Mest lesið

Ástleysið er sárt
1
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.
Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
3
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.
Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár