Tinna Alavis vill ekki tjá sig opinberlega um auglýsingar í barnaafmæli

Lífs­stíls­blogg­ar­inn Tinna Alavis aug­lýsir barna­föt og fylgi­hluti með myndum af dóttur sinni á blogg­síðu sinni Alavis.is. Dóttur sinnar vegna seg­ist hún ekki vilja tjá sig opin­ber­lega um umtalað barna­af­mæli sem kostað var af níu fyr­ir­tækjum.

Tinna Alavis vill ekki tjá sig opinberlega um auglýsingar í barnaafmæli
Tinna Alavis Heldur úti lífs­stíls­bloggi þar sem hún kynnir vörur gegn greiðslu.

Lífs­stíls­blogg­ar­inn Tinna Alavis vill ekki tjá sig um aug­lýs­ingar í umfjöllun hennar um barna­af­mæli dóttur hennar, sem hún birti á blogg­svæði sínu. Ástæðan er að hún vill ekki að athygli fær­ist á afmæli dóttur hennar.

Við­skipta­blaðið fjall­aði um að níu fyr­ir­tæki hefðu styrkt barna­af­mæli sem Tinna hélt á dög­unum, en fyr­ir­tækin greiða Tinnu fyrir að birta myndir af vörum þeirra í umfjöll­unum á bloggi og sam­fé­lags­miðlum. 

Í sam­tali við blaða­mann Stund­ar­innar segir Tinna ekki vilja tjá sig um færsl­una í opin­berum fjöl­miðlum þar sem umfjöll­unin varðar dóttur hennar. 

„Vegna þess að þetta er afmæli dóttur okkar og við vildum ekki setja þetta inn á svona opin­beran miðil, svona stóran,“ segir Tinna við fyr­ir­spurn blaða­manns og bætir við: „Þannig að við vorum að hugsa um að hafa þetta bara á blogg­inu.“ 

Í færslu sem Tinna birti í gær um barna­af­mæli dóttur sinnar eru myndir úr afmæl­inu, af gestum, veit­ingum og skreyt­ingum og níu fyr­ir­tæki nefnd á nafn sem komu að veisl­unni.  

„Síðustu þrjú árin hef ég haldið úti síð­unni Alavis.is þar sem ég fjalla um mitt dag­lega líf & áhuga­mál,“ skrifar Tinna meðal ann­ars í lýs­ingu á vef­síð­unni. Þar kemur ekki fram að flestar færslur enda með smáu letri þar sem tekið er fram að færsl­urnar séu kost­aðar.

Tinna fjallar gjarnan um barna­vörur á bloggi sínu og á sam­fé­lags­miðlum þar sem dóttir hennar er aðal­við­fangs­efni mynd­anna. Í sein­ustu viku fjall­aði hún til dæmis um barna­föt frá Polarn O. Pyret. Í færsl­unni eru myndir af dóttur hennar, heima hjá sér, klædda kjól frá fyr­ir­tæk­inu, og skrifar Tinna meðal ann­ars:

„Ég tók nokkrar myndir af Ísabellu minni í dag í nýja kjólnum sínum frá Polarn O.Pyret. Hún var ótrú­lega sátt með lífið & til­ver­una eins & sést á mynd­unum. Þessi litla dama verður 3. ára í næsta mán­uði & bíður spennt eftir afmæl­inu sínu. Ísabella elskar að fá ný föt & ég er ekki frá því að henni finn­ist það skemmti­legra en að fá nýtt dót!“ 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Duldar auglýsingar

Mest lesið

Ástleysið er sárt
1
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.
Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
3
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.
Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár